Feykir - 25.08.2011, Qupperneq 2
2 Feykir 31/2011
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Guðný Jóhannesdóttir – gudny@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 861 9842
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur: Karl Jónsson
Áskriftarverð: 317 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Feykir
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Ríkið gaf og ríkið tók
Á síðustu árum árunum fyrir hrun og árið eftir var á Norð-
urlandi vestra unnið eftir svo kölluðum Vaxtarsamningi
auk þess sem sérsök störf í voru búin til í sérstöku átaki er
kvótinn var minnkaður. Í þessum átökum urðu til störf
bæði hér á Norðurlandi vestra svo og víðar á landsbyggðinni.
Flest störfin voru búin til í kring um hin ýmsu setur og söfn.
Þá fengu stofnanir aukið fé til rannsóknavinnu sem unnin
var úti á landi. Síðustu tvö árin hafa þessi störf síðan smá
saman verði tekin til baka, fjármagni til rannsóknarstarfa
og sérstakra verkefna hefur verið kippt nánast alveg til baka
auk þess sem fjármagn sem hin fjölmörgu setur hafa haft til
umráða hefur minnkað það mikið að þau eru vart starfhæf.
Tugir og jafnvel hundruð milljóna hafa verið lögð í þessi
verkefni sem í dag eru sum hver horfin, önnur hanga á
horriminni. Segja má að ríkið hafi gefið og ríkið hafi tekið.
Ég hef undan farin ár oft velt fyrir mér því sem mér hefur
virst skortur á skilvirkni í því hvernig fé frá hinum opinbera
er dreift um landið. Stundum finnst mér eins og að
landsbyggðinni sé rétt, hugsunarlaust, summa fjár og sagt
um leið. „Hana, byggið nú eitthvert setur eða skráið einhver
söfn og í guðs bænum þegið rétt á meðan.“
Setrunum og skráningarverkefnunum eru síðan allir
búnir að gleyma þegar kemur að næstu fjárlögum og fá
verkefni verða sjálfbær.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig þetta hefði farið ef
við hefðum reynt í sameiningu að berjast fyrir því að þessum
peningum yrði varið í færri en stærri verkefni. Verkefni
sem hefðu átt möguleika á sjálfbærni og jafnvel störfum.
Hættum að taka á móti tímabundnum smádúsum,
heimtum alvöru lausnir. Við eigum það skilið.
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri
Sveitarstjórn Skagafjarðar
Átelur seinagang
menntamálaráðherra
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti samhljóða í gær
bókun frá Sigurjóni Þórðarsyni, fulltrúa Frjálslyndra- og
óháðra, þar sem sveitastjórn átelur þann drátt sem
orðið hefur á skipun í stöðu skólameistara við
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Ályktun sveitastjórnar; „Sveitarstjórn Sveitarfélagins
Skagafjarðar átelur þann drátt sem orðið hefur á skipun í stöðu
skólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Sam-
kvæmt auglýsingu um starfið var gert ráð fyrir að nýr skóla-
meistari tæki til starfa þann 1. ágúst síðastliðinn. Ljóst er að nú
þann 23. ágúst þegar skólinn verður settur, hefur ekki verið
gengið frá ráðningu nýs skólameistara og hlýtur það að bitna á
allri skipulagsvinnu, sem er nauðsynlegt til þess að skólastarf
geti gengið hnökralaust fyrir sig."
Barnavernd Skagafjarðar
telur ekki tímabært að til
starfa taki ein sameig-
inleg barnaverndarnefnd
fyrir Norðurland vestra líkt
og stjórn SSNV hefur lagt
til.
Telur nefndin að undirbúa
þurfi slíka aðgerð betur en
gert er í fyrirliggjandi skýrslu
stjórnar SSNV sem fylgdi
tillögunni. Nefndin telur
fjárhagslegan og faglegan
ávinning af sameiningu ekki
ljósan. Nefndin telur að
málið þurfi frekari meðferð
innan aðildarsveitarfélaga
SSNV.
Skagafjörður
Telur
sameiningu
ekki
tímabæra
Byggðarráð Húnaþings vestra
Leggur línurnar
fyrir ársþing SSNV
Byggðarráð Húnaþings
vestra hefur ákveðið að
senda fulltrúa sína með
ákveðin erindi á ársþing
SSNV sem haldið verður í
Reykjaskóla dagana 26. –
27. ágúst. Snúa erindin að
þeim verkefnum sem
Húnaþing vestra leggur
áherslu á í samstarfinu.
Verkefnin eru þessi; „Sveit-
arstjórn Húnaþings vestra hefur
samþykkt að sameina félags- og
skólaþjónustu í sveitarfélaginu
og með því veita íbúum heild-
stæða þjónustu. Þar er gert ráð
fyrir ráðgjöf við börn og full-
orðna í málefnum fatlaðra.
Byggðarráð ítrekar beiðni um
að stjórn byggðasamlags um
málefni fatlaðra greiði sveitarfél-
aginu fyrir þá þjónustu og geri
ráð fyrir því í fjárhagsáætlun
2012. Í tengslum við Landshluta-
áætlun Norðurlands vestra,
Ísland 2020, leggur byggðarráð
áherslu á að koma á dreifnámi í
Húnaþingi vestra og stuðning
við lagningu hitaveitu í dreifbýli
í Húnaþingi vestra.
Vegna samgönguáætlunar
áranna 2011-2014 er áherslu-
atriði Húnaþings vestra lagning
bundins slitlags á Vatnsnesveg
og Miðfjarðarveg.“
Byggðarráð Húnaþings
vestra hefur gengið frá
samningi við Skeljung ehf
um leigu á landspildu í
Melstaðarlandi undir
bensínstöð og
veitingaskála.
Mun hinn nýi skáli því
vera í samkeppni og hrein
viðbót við Staðarskála í
Hrútafirði.
Húnaþing vestra
Skeljungur
ætlar að
opna veit-
ingaskála
„Þetta kom á óvart, við
vissum ekkert af þessu
fyrr en blaðamenn fóru að
hringja í mig ,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson
þegar hann var inntur eftir
viðbrögðum við úrsögn
Guðmundar
Steingrímssonar úr
Framsóknarflokknum í
gær.
Gunnar Bragi segir að
Guðmundur hafi áður en
blaðamenn fóru að grafast
fyrir um málið ekki sagt
félögum sínum í þingflokkn-
um frá ákvörðun sinni.
Skagafjörður
Guðmundur
yfirgefur
Framsókn
Fulltrúi Frjálslyndra og óháðra í sveitarstjórn Skagafjarðar
Álítur endurskoðun
fjárhagsáætlunar
tímasóun
Sigurjón Þórðarson fulltrúi
Frjálslyndra og óháðra í
sveitarstjórn Skagafjarðar
óskaði bókað á fundi
sveitarstjórnar í gær að
hann teldi endurskoðun
fjárhagsáætlunar 2011
tímaeyðslu.
Nær væri að beita sér fyrir
aðgerðum sem gætu orðið til
þess að endar næðu saman í
rekstri sveitarfélagsins.
Segir Sigurjón í bókun sinni
að upplýsingar úr bókhaldi
sveitarfélagsins beri með sér að
tap sveitarfélagsins á hverjum
degi sé liðlega ein milljón
króna. Segir Sigurjón að í stað
þess að fara í hagræðingar-
aðgerðir sem hagræðingar-
nefnd á vegum sveitarfélagsins
hafi lagt til hafi meirihlutinn
staðið fyrir tugmilljóna út-
gjöldum sem ekki hafi verið
gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun
Skagafjarðar.
Blönduós
Rekstur Blönduós-
bæjar á áætlun
Húni.is segir frá því að
rekstur Blönduósbæjar
fyrstu sjö mánuði ársins
gengur samkvæmt áætlun.
Bókfærðar tekjur á
tímabilinu nema um 396,5
milljónum króna en fjár-
hagsáætlun gerir ráð fyrir
tekjum að fjárhæð 640
milljónum króna fyrir allt
árið. Bókuð útgjöld tíma-
bilsins nema um 333,2
milljónum króna en fjárhags-
áætlun ársins gerir ráð fyrir
útgjöldum upp á 580,6
milljónum króna.
Rekstrarniðurstaða fyrstu
sjö mánuði ársins er jákvæð
um sem nemur 62,2 mill-
jónum króna en fjárhags-
áætlun án afskrifta, verðbóta
og söluhagnaðar gerir ráð
fyrir að tekjur nemi 59,4
milljón króna umfram gjöld.
Þetta kom fram á fundi
bæjarráðs í dag. Þar kom
einnig fram að fjárfestingar
fyrstu sjö mánuði ársins
námu um 2,6 milljónum
króna en gert er ráð fyrir um
7 milljónum króna í fjárfest-
ingar á árinu.