Feykir - 25.08.2011, Side 3
31/2011 Feykir 3
Multi Musica hópurinn
Með útgáfutónleika í
Salnum í Kópavogi
Viltu koma í heimsreisu
með Multi Musica? Þann
17. september verða
útgáfutónleikar Multi
Musica hópsins í Salnum
Kópavogi en diskurinn
Unus Mundus er nýkominn
út.
Á diskinum eru 13 lög frá
11 löndum, farið er í ferðalag í
fylgd tónlistar frá Mexíkó,
Chilé, Kúbu, Brasilíu, Suður-
Afríku, Keníu, Indlandi, Rúm-
eníu, Spáni, Grikklandi og
endar ferðin á Íslandi.
Hópinn skipa níu tónlistar-
menn úr Skagafirði en diskur-
inn er gefinn út í samstarfi við
Soroptimistaklúbb Skagafjarð-
ar og Vini Kenía, en hluti af
ágóða disksins rennur til upp-
byggingu Lakeview skólans í
Maeri við Viktoríuvatn í
Kenýa.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
og er aðgangseyrir kr.2.500.
Framtíðaratvinna
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal
í síma 455 4411 og á staðnum.
FISK Seafood hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir út fjóra togara
og rekur landvinnslur á Sauðárkróki, Skagaströnd og Grundarfirði.
Fólk vantar til starfa í landvinnsluna á Sauðárkróki
til hefðbundinna fiskvinnslustarfa.
Vinnutíminn er frá kl. 07:00 – 15:30
Framtíðaratvinna
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal
í síma 455 4411 og á staðnum.
FISK Seafood hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir út fjóra togara
og rekur landvinnslur á Sauðárkróki, Skagaströnd og Grundarfirði.
Fólk vantar til starfa í landvinnsluna á Sauðárkróki
til hefðbundinna fiskvinnslustarfa.
Vinnutíminn er frá kl. 07:00 – 15:30
Framtíðaratvinna
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal
í síma 455 4411 og á staðnum.
FISK Seafood hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir út fjór togara
og rekur landvinnslur á Sauðárkróki, Skagaströnd og Grundarfirði.
Fólk vantar til starfa í landvinnsluna á Sauðárkróki
til hefðbundinna fiskvinnslustarfa.
Vinnutíminn er frá kl. 07:00 – 15:30
Fra tíðaratvinna
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal
í síma 455 4411 og á staðnum.
FISK Seafood hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir út fjóra togara
og rekur landvinnslur á Sauðárkróki, Skagaströnd og Grundarfirði.
Fólk vantar til starfa í landvinnsluna Sauðárkróki
til hefðbundinna fiskvinnslustarfa.
Vinnutíminn er frá kl. 07:00 – 15:30
Framtíðaratvinna
Fólk vantar til starfa í landvinnslu FiSK Seafood
á Sauðárkróki til hef u din a fiskvinnslustarfa.
vinnutíminn er frá kl. 07:00 – 15:30
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal í síma 455 4411 og á staðnum.
Byggðastofnun
Ráðherraskipuð
stjórn tekur við
Mbl.is segir frá því að ný
stjórn Byggðastofnunar tók
við á ársfundi stofnunarinnar
í dag. Nýr stjórnarformaður
er Þóroddur Bjarnason
prófessor á hug- og félags-
vísindasviði Háskólans á
Akureyri.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar-
ráðherra, skipaði stjórnina en
ekki var leitað eftir tilnefning-
um frá þingflokkum stjórn-
málaflokkanna. Segir iðnaðar-
ráðuneytið að það sé í samræmi
við álit ríkisendurskoðunar frá
árinu 1996 en þar var lagt til að
komið yrði á beinu stjórnsýslu-
sambandi milli ráðherra og
stofnunarinnar. Samkvæmt því
skuli ráðherra skipa beint í
stjórn stofnunarinnar þar sem
hann beri ábyrgð á stofnuninni
og gagnvart Alþingi samkvæmt
ráðherraábyrgð.
Aðrir í stjórninni eru Ásta
Dís Óladóttir framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar, Guð-
mundur Gíslason fram-
kvæmdastjóri Gámaþjónustu
Austurlands, Gunnar Svavars-
son sjálfstætt starfandi ráðgjafi,
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
framkvæmdastjóri ráðgjafa-
fyrirtækisins Ildi, Valdimar
Hafsteinsson framkvæmda-
stjóri Kjöríss og Ólöf Hall-
grímsdóttir, ferðaþjónustu-
bóndi á Vogum í Mývatnssveit.
Varamenn í stjórn eru
Þorsteinn Gunnarsson f.v.
rektor Háskólans á Akureyri,
Þorkell Sigurlaugsson fram-
kvæmdastjóri fjármála- og
þróunarsviðs Háskólans í
Reykjavík, Bergsteinn Einars-
son, framkvæmdastjóri Set ehf.,
Matthildur Helgadóttir Jónu-
dóttir framkvæmdastjóri
Tölvuþjónustunnar Snerpu,
Jóna Árný Þórðardóttir grein-
ingarsérfræðingur innra eftir-
lits hjá Alcoa Fjarðaáli, Laufey
Helgadóttir hótelhaldari á Hótel
Smyrlabjörgum og Guðrún
Þóra Gunnarsdóttir lektor við
Háskólann á Hólum.
Multi Musica-hópinn skipa f.v. Jóhann og Margeir Friðriks, Rögnvaldur Valbergs, Ásdís
Guðmunds, Íris Baldvins, Ólöf Ólafs, Jóhanna Óskars, Sorin Lazar og Sveinn Sigurbjörns.
Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar afhenti Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauðárkróki garðbekk að gjöf í gær.
Herdís Klausen, framkvæmdastjóri hjúkrunar, veitti
bekknum formlega viðtöku fyrir hönd Heilbrigðisstofn-
unarinnar.
Bekkurinn er staðsettur sunnan við Heilbrigðisstofnunina
og á honum er skilti með áletrunina: „Góð áning við
vinarþel.“
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
HS fær bekk að gjöf
Herdís Klausen tekur við bekk fyrir hönd HS. Bekkurinn var gjöf
frá Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar.