Feykir - 25.08.2011, Side 4
4 Feykir 31/2011
Feykir
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Er eitthvað
að frétta?
Biskup í
Ábæjarmessu
Hin árlega messa í
Ábæjarkirkju í Austurdal var
sunnudaginn 31. júlí sl. um
verslunarmannahelgina.
Sóknarpresturinn, séra Dalla
Þórðardóttir, þjónaði fyrir
altari.
Kirkjukór Flugumýrar- og
Miklabæjarsókna leiddi söng,
en organisti var Jóhanna Marín
Óskarsdóttir. Kristín Halla
Bergsdóttir spilaði á fiðlu.
Biskup Íslands, hr. Karl
Sigurbjörnsson, vísiteraði kirkj-
una og predikaði í messunni en
þetta er í fyrsta skipti sem hann
kemur í Ábæ. Með biskupi í för
var kona hans, Kristín Guðjóns-
dóttir.
Í predikun sinni, sem var
mjög áhrifamikil, ræddi biskup
fyrst um þann helga stað Ábæ,
þar sem gott væri að vera og
hafa handverk Skaparans fyrir
augum. Út frá því ræddi hann
nokkuð um lífið, undir lífsins,
hvað það felur í sér að vera
manneskja, hver við séum og á
hvaða leið við erum.
Því næst trú og vísindi.
Margir álitu guðstrú úrelta eins
og hvern annan barnaskap.
„Vísindi hafa ekki afsannað
trúna, þótt þau hafi gert margt
gott,“ sagði biskup. Darwin
gerði merkar uppgötvanir um
þróun lífsins og flest líklega
rétt, en hvorki honum né
raunvísindum hefur tekist að
útskýra til hlítar hið flókna
undur, sem maðurinn er. Það
er hugsun, hugar að baki öllu
lífi, kærleiksríkur guð, sem
elskar heiminn og sendi son
sinn til að frelsa heiminn.
Undir lífsins verður ekki
skilið né skýrt með vísinda-
legum aðferðum einvörðungu
heldur aðeins í trú.
„Vísindi og trú eiga samleið,“
sagði biskup m.a. í predikun
sinni.
Vel var hlustað á predikun
biskups og mátti heyra saumnál
detta, svo hljótt var umhverfis
kirkjuna, þar sem fjöldi fólks
sat á meðan á guðsþjónustunni
stóð.
Að lokinni athöfn buðu
systkini Helga heitins Jónssonar
öllum kirkjugestum, sem voru
um 170 í kaffi heim að Merki-
gili, eins og þau hafa gert frá
árinu 1997, er Helgi hrapaði til
bana í Merkigilinu.
Með því vilja þau heiðra
minningu hans, en einnig hafa
þau gefið kirkjunni stórgjafir,
málað hana og prýtt. Hitann og
þungann nú síðustu árin hafa
borið hjónin Kristín Jónsdóttir
og Þórarinn Eggertsson,
Hraungerði í Álftaveri.
Tóku þau sig til ásamt
dætrum sínum tveimur og
máluðu kirkjuna að utan, áður
en þau héldu aftur suður til síns
heima.
Almenn ánægja var með
komu biskupshjónanna, sem
með ljúfmannlegri framkomu
unnu hug og hjörtu kirkjugesta
og blönduðu við þá geði. Þess
má geta, að biskup fór yfir á
kláfnum við Skagastaði á leið
fram að kirkju og gekk yfir
Merkigilið í bakaleiðinni ásamt
Agnari á Miklabæ og Gunnari
á Löngumýri.
AÐSEND GREIN Ólafur Hallgrímsson skrifar
Skagafjörður
Forn grafreitur
á Óslandi
Forn grafreitur fannst við
fornleifarannsóknir á
Óslandi í Óslandshlíð. Þar
voru fornleifafræðingar
Byggðasafns Skagfirðinga á
ferðinni, við hina svokölluðu
Skagfirsku kirkjurannsókn.
Við fornleifauppgröftinn
fundust átta til tíu grafir saman
á litlu svæði, sem bendir til að
þétt hafi verið grafið í garðinn.
Ein gröfin var opnuð og var þar
komið niður á bein barns sem
hefur verið um 5 – 6 ára þegar
það lést.
Elstu heimildir um kirkju á
Óslandi eru frá árinu 1591 og
samkvæmt ritheimildum virð-
ist kirkjuhald hafa verið þar
fram til um 1690. Leifar hring-
laga kirkjugarðs og kirkjutóftar
innan hans, voru sýnileg fram
yfir miðja síðustu öld en um-
merki þeirra hurfu að mestu
við jarðrækt.
Helstu niðurstöður forn-
leifarannsóknarinnar eru þær
að þar sem grafir fundust undir
óhreyfðu gjóskulagi úr Heklu
frá 1104 er ljóst að kirkju-
garðurinn hefur verið í notkun
þegar á 11. öld. Bætti þessi
rannsókn því 500 árum framan
við þekkta sögu kirkjuhalds á
Óslandi.
Hægt er að sjá nánari upp-
lýsingar um rannsóknina á
heimasíðu Byggðasafns Skag-
firðinga
( ÁSKORENDAPENNINN )
Anna Lilja Pétursdóttir í Varmahlíð
Þá er nú betur
heima setið en
af stað farið!
Í vor lágu fyrir boð í nokkur
brúðkaup og því ljóst að
framundan var ferðasumarið
mikla hjá mér. Fyrsta
brúðkaupið var reyndar utan
landsteinanna, í smáþorpi fyrir
utan Manchester. Þeir sem
þekkja mig vita að ferðalög
mín hafa oftast kostulegar
ferðasögur í för með sér.
Borðfélagi minn í brúðkaupinu
í Manchester þekkti heldur
betur vel til Íslands enda
átti hann systur sem hafði
unnið sem kynningar- og
almennatengslafulltrúi fyrir
íslenskt verkefni í Bretlandi,
nánar tiltekið margumrætt
ICESAVE. Eftir hrun missti
systirin vinnuna og það að hafa
tekið þátt frá byrjun í ICESAVE
spunanum virtist ekki vera góður
stökkpallur fyrir starfsferilinn því
eina starfið sem henni bauðst
eftir þetta var í Ástralíu. Við
borðfélaginn ræddum ekki mikið
um landsins gagn og nauðsynjar
eftir að þetta kom fram þar sem
hann hélt mínu heimalandi
að hluta til ábyrgu fyrir því að
missa einkasystkini sitt í aðra
heimsálfu.
Daginn eftir brúðkaupið mikla
kom í ljós að Grímsvatnagos
var hafið, brúðhjónin og
helmingur brúðkaupsgestanna
voru því strandaglópar í bili,
engin heimferð og engin
brúðkaupsferð. Það sama mátti
svo sem segja um mig, engin
heimferð á dagskrá hjá mér
þar sem Icelandair hreinlega
gleymdi okkur sem vorum stödd
í Manchester á þessu tímabili.
Ég get sagt ykkur núna að
þegar flugfélag gleymir ykkur í
öðru landi þá eruð þið í veseni,
hafið það bara í huga. Heim
komst ég þó á endanum en
væri eflaust enn í Manchester
ef ekki væri fyrir brjálaða Man.
Utd. aðdáendur sem voru fastir
með mér í borginni og gátu ekki
hugsað sér að vera þar þegar
Man.City liðið tæki sigurhring
í miðbæinn með bikarinn sem
liðið var nýbúið að vinna. Það
kom þó að því að eitthvað gagn
væri í þessu Man.Utd. mönnum.
Þegar heim var komið tók
næsta brúðkaup við. Það átti
heldur betur að vera þjóðlegt og
notalegt, veislan í afskekktustu
byggð landsins og allir gestirnir
áttu að kúra í tjöldunum sínum,
enda ekki önnur gisting í boði.
Til að gera langa sögu stutta
fauk tjaldið mitt, niðdimm þokan
kom í veg fyrir að hægt væri að
njóta stórbrotins útsýnisins sem
mér skilst að Strandirnar bjóði
upp á og ríkið á Hólmavík er víst
bara opið stundum og þá mjög
stuttan tíma í einu.
Til að fyrirbyggja allan
misskilning þá voru bæði
ferðalögin gríðarskemmtileg.
Eftir viðkomu á stöðum eins
og Drangsnesi, Djúpuvík og
Króksfjarðarnesi hefur þó
sjaldan verið eins gott að koma
heim til Varmahlíðar. Stundum
þarf maður að fara að heiman
til að átta sig á því hvað það er
gott að koma heim aftur.
- - - - - -
Anna Lilja skorar á Pétur
Fannberg Víglundsson frá
Varmahlíð.
Bjórhátíðin Hólasumbl
hefst á Hólum
laugardaginn 27. ágúst og
verður þar fjölbreytt
dagskrá í boði.
Þar á meðal verða bjór-
kynningar, þar sem smakkað
verður á hinum ýmsum gerð-
um af íslenskum bjór, hægt að
spreyta sig í kútarúllkeppni og
loks verður kosning um besta
bjór hátíðarinnar.
Aðgangseyrir á hátíðina er
4500 kr. Innifalið er glas,
merkt Bjórsetri Íslands, þrír
bjórmiðar og miði fyrir ham-
borgara frá Ferðaþjónustunni
á Hólum. Aldurstakmark er
20 ár.
Nánari upplýsingar eru
fáanlegar hjá bjorsetur@mail.
holar.is
Bjórhátíð á Hólum
Hólasumbl
Biskup við altari Ábæjarkirkju. Mynd: ÓÞH