Feykir - 25.08.2011, Síða 5
31/2011 Feykir 5
Knattspyrna 2. deild : Tindastóll/Hvöt
Komnir á toppinn
Á laugardag mætti lið
Tindastóls/Hvatar
Hvergerðingum í Hamri í
mikilvægum leik í 2. deildinni
í knattspyrnu. Það var ljóst
fyrir leikinn að ef heimamenn
næðu að fagna sigri væru
þeir komnir í toppsæti 2.
deildar
Leikurinn var nokkuð jafn í
fyrri hálfleik en heimamenn
voru sterkari síðustu mínút-
urnar og höfðu náð yfir-
höndinni fyrir hlé með marki
frá Atla Arnarsyni.
Í síðari hálfleik bætti Ingvi
Hrannar Ómarsson við marki
en gestirnir úr Hveragerði
hleyptu spennu í leikinn þegar
þeir minnkuðu muninn í 2-1.
Þeir lögðu síðan kapp á að jafna
metin en það bitnaði á varn-
arleiknum og heimamenn
gengu á lagið. Arnar Sigurðsson
gerði þriðja markið eftir að
hafa fengið stungu inn fyrir
vörn Hamars og Ingvi Hrannar
bætti svo við öðru marki sínu í
leiknum og lokatölur 4-1.
Lið Tindastóls/Hvatar er á
toppi 2. deildar þegar fjórar
umferðir eru eftir en það eru
hörkuleikir framundan og
staðan í deildinni hnífjöfn
þannig að okkar menn verða
að halda vel á spöðunum ef
þeir ætla sér upp. Næsti leikur
er úti gegn Árborg á 26. ágúst.
Byrðuhlaup Ungmennafél-
agsins Hjalta var haldið
laugardaginn 13.ágúst
síðastliðinn í 3.sinn í blíð-
skaparveðri sem hafði sitt
að segja um þann árangur
sem náðist í hlaupinu.
Hlaupið er ræst í hliði sem
liggur inná tjaldsvæði Hóla-
skógar og hlaupið eftir vegum
og göngustígum upp í
Gvendarskál. Að þessu sinni
spreyttu 8 hlauparar sig og
luku þeir allir hlaupinu með
sóma. Byrðuhlaupari ársins
er Guðmundur Þór Elíasson,
Vestur-Húnvetningur og
hrossabóndi á Varmalæk 1 og
setti hann nýtt met á leiðinni
þegar hann hljóp á 29,30
mínútum.
Fast á hæla hans kom
Nökkvi Már Víðisson (14 ára)
frá Kjarvalsstöðum á 29,37
mín en hann varð fyrir því
óhappi að detta á enda-
sprettinum. Til marks um
góðan árangur hlauparanna
voru fyrstu 5 hlaupararnir
undir gamla metinu sem
Guðmundur Elí Jóhannsson
(12 ára) átti og voru 34,09
mínútur. Guðmundur Elí er
jafnframt eini hlauparinn
sem hefur tekið þátt í
Byrðuhlaupinu öll þau 3
skipti sem það hefur verið
haldið en að þessu sinni hljóp
hann þrátt fyrir að vera
hálflasinn. Fyrst kvenna var
Sigríður Vaka Víkingsdóttir
(12 ára) á 33,37 mínútum og
er það nýtt met í kvennaflokki.
Sigurvegarar í karla og
kvennaflokki fengu veglega
verðlaunapeninga og Byrðu-
hlaupari ársins fékk farand-
bikarinn til vörslu í eitt ár.
Ungmennafélagið Hjalti
færir þeim sem aðstoðuðu
við hlaupið og undirbúning
þess bestu þakkir fyrir ómet-
anlega aðstoð.
Texti og myndir: Guðrún Stefánsdóttir
Byrðuhlaupið 2011
Guðmundur Þór
sigraði á nýju meti
Íþróttafréttir Feykis Nánari fréttir af íþróttum má finna á slóðinni > www.feykir.is/ithrottir
Sigurvegarar í karla- og kvennaflokki, Guðmundur Þór og Sigríður Vaka.
Opið íþróttamót Þyts
Mette Mannseth var stigahæst
Þá er Opna íþróttamóti Þyts
2011 lokið. Mótið var sterkt,
góð hross og flottir knapar af
öllu Norðurlandi vestra mættir
til leiks.
Fjórgangssigurvegari var
Mette Mannseth og Segull frá
Flugumýri II og fimmgangs-
sigurvegari var einnig Mette
Mannseth og Hnokki frá
Þúfum. Stigahæsti knapi
mótsins var ofurkonan Mette
Mannseth.
Hér fyrir neðan má sjá úrslit
dagsins.
Fimmgangur b-úrslit - 1. flokkur
6. Ísólfur Líndal Þórisson /
Ræll frá Gauksmýri 6,55
7. James Bóas Faulkner /
Flugar frá Barkarstöðum 6,19
8. Sverrir Sigurðsson /
Rammur frá Höfðabakka 5,88
9. Greta Brimrún Karlsdóttir /
Hula frá Efri-Fitjum 5,76
Fimmgangur a-úrslit - 1. flokkur
1. Mette Mannseth /
Hnokki frá Þúfum 7,26
2. Bjarni Jónasson /
Djásn frá Hnjúki 7,21
3. Þórarinn Eymundsson /
Seyðir frá Hafsteinsstöðum 7,14
4. Jóhann Magnússon /
Hugsýn frá Þóreyjarnúpi 6,60
5. Fanney Dögg Indriðadóttir /
Kara frá Grafarkoti 6,21
Fjórgangur - 1. flokkur
1. Mette Mannseth /
Segull frá Flugumýri II 7,53
2. Ísólfur Líndal Þórisson /
Kristófer frá Hjaltastaðahv. 6,93
3. Tryggvi Björnsson /
Stimpill frá Vatni 6,83
4. Riikka Anniina /
Gnótt frá Grund II 6,40
5. Sonja Líndal Þórisdóttir /
Kvaran frá Lækjamóti 6,13
Fjórgangur - 2. flokkur
1 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir /
Ræll frá Varmalæk 6,77
2 Vigdís Gunnarsdóttir / Sögn frá
Lækjamóti 6,50
3 Kolbrún Stella Indriðadóttir /
Vottur frá Grafarkoti 6,27
4 Sandra Marin / Glymur frá
Akureyri 6,23
5 Íris Sveinbjörnsdóttir / Bráinn
frá Akureyri 5,57
Fjórgangur - unglingaflokkur
1 Elín Magnea Björnsdóttir /
Stefnir frá Hofsstaðaseli 6,67
2 Brynja Kristinsdóttir /
Tryggvi Geir frá Steinnesi 6,57
3 Finnbogi Bjarnason /
Svala frá Garði 6,17
4 Bryndís Rún Baldursdóttir /
Birna frá Vatnsleysu 6,03
5 Birna Olivia Ödqvist /
Björk frá Lækjamóti 5,33
Fjórgangur - barnaflokkur
1 Viktor Jóhannes Kristófersson /
Flosi frá Litlu-Brekku 6,30
2 Jónína Ósk Sigsteinsdóttir /
Vár frá Lækjamóti 5,27
3 Eva Dögg Pálsdóttir /
Katla frá Fremri-Fitjum 5,20
4 Nína Guðbjörg Gunnarsdóttir /
Mímir frá Syðra-Kolugili 3,90
5 Karítas Aradóttir /
Gyðja frá Miklagarði 3,70
Tölt T2
1 Mette Mannseth /
Háttur frá Þúfum 6,50
2 Kolbrún Stella Indriðadóttir /
Kátur frá Grafarkoti 6,42
3 Ragnar Stefánsson /
Saxi frá Sauðanesi 6,04
4 Sverrir Sigurðsson /
Arfur frá Höfðabakka 5,00
5 Þóranna Másdóttir /
Hvítserkur frá Gauksmýri 4,17
Tölt - 1. flokkur
1 Þórarinn Eymundsson /
Taktur frá Varmalæk 8,11
2 Mette Mannseth /
Segull frá Flugumýri II 7,67
3 Tryggvi Björnsson /
Sif frá Söguey 7,33
4 Riikka Anniina /
Gnótt frá Grund II 6,72
5 Elvar Logi Friðriksson /
Stuðull frá Grafarkoti 6,61
Tölt - 2. flokkur
1 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir /
Kolgerður frá Vestri-Leirárg. 6,94
2 Ragnar Smári Helgason /
Kóði frá Grafarkoti 6,33
3 Vigdís Gunnarsdóttir /
Ræll frá Gauksmýri 5,94
4 Halldór Sigfússon /
Seiður frá Breið 5,78
5 Anna Lena Aldenhoff /
Dorit frá frá Gauksmýri 5,67
Tölt - unglingaflokkur
1 Valdimar Sigurðsson /
Fönix frá Hlíðartúni 6,62
2 Finnbogi Bjarnason /
Svala frá Garði 6,56
3 Aron Orri Tryggvason /
Sóldögg frá Efri-Fitjum 6,50
4 Atli Steinar Ingason /
Diðrik frá Grenstanga 6,22
5 Elín Magnea Björnsdóttir /
Stefnir frá Hofsstaðaseli 6,11
Tölt - barnaflokkur
1 Anna Herdís Sigurbjartsdóttir /
Funi frá Fremri-Fitjum 5,50
2 Viktor Jóhannes Kristófersson /
Flosi frá Litlu-Brekku 5,39
3 Jónína Ósk Sigsteinsdóttir /
Vár frá Lækjamóti 5,11
4 Eva Dögg Pálsdóttir /
Katla frá Fremri-Fitjum 5,00
5 Telma Rún Magnúsdóttir /
Efling frá Hvoli 4,61
Gæðingaskeið
1. sæti - Tryggvi Björnsson,
Dynfari frá Steinnesi - 8,00
Umferð 1 6,00 8,00 8,00 8,40
6,50 7,75
Umferð 2 7,00 8,00 8,00 8,20
7,50 8,25
2. sæti - Mette Mannseth,
Háttur frá Þúfum - 7,13
Umferð 1 7,00 7,50 7,00 8,80
7,00 7,42
Umferð 2 6,50 7,00 7,00 9,20
6,50 6,83
3. sæti - Sverrir Sigurðsson,
Rammur frá Höfðabakka - 6,67
Umferð 1 5,00 7,00 7,50 9,50
6,00 6,33
Umferð 2 4,00 8,00 8,00 9,10
7,50 7,00
4. sæti - Mette Mannseth,
Hnokki frá Þúfum - 6,38
Umferð 1 6,50 6,50 6,50 9,22
5,00 6,42
Umferð 2 6,00 6,00 6,50 9,50
7,00 6,33
5. sæti - Elvar Logi Friðriksson,
Kaleikur frá Grafarkoti - 6,29
Umferð 1 2,00 7,00 6,50 8,80
3,50 5,83
Umferð 2 3,50 7,50 7,00 8,70
6,00 6,75
Tryggvi Björnsson og Dynfari frá Steinnesi, sigurvegarar í Gæðingaskeiði og 100 m skeiði.
Mynd: thytur.123.is