Feykir - 25.08.2011, Blaðsíða 6
6 Feykir 31/2011
Úlfur Úlfur er nýtt band sem
á síðustu vikum hefur vakið
verðskuldaða athygli enda
spila strákarnir flotta tónlist
auk þess að vera duglegir
að koma sér á framfæri. Til
þess nota þeir Facebook
og Youtube og segja fullum
fetum að internetið sé
málið. Feykir eyddi í síðustu
viku hádeginu með þessum
stjörnum framtíðarinnar inni
í listasmiðju á leikskóla í
Reykjavík.
Bandið skipa Króksararnir
Helgi Sæmundur Guðmunds-
son og Arnar Freyr Frostason
auk Keflvíkingsins Þorbjörns
Einars Guðmundssonar, eða
Bjössa. Þegar blaðamann ber
að garði voru þeir Arnar og
Bjössi fastir í umferð en Helgi
Sæmundur var að gefa verðandi
skólabörnum sem flest voru
á sínum síðasta leikskóladegi
hádegisverð. Blaðamaður að-
stoðar við hádegisverðinn og
úr verða fjörugar samræður.
Krökkunum finnst mikið til
að Helgi Sæmundur sé að fara
í blaðaviðtal þó ekki þekki þau
blaðið. Umferðahnúturinn
losnar og maturinn á diskunum
klárast, börnin fara í hvíld og
Helgi Sæmundur fær örstutt
hlé til þess að geta svarað spurn-
ingum blaðamanns. Svona er líf
popparans á Íslandi í dag.
Við fáum okkur sæti inni í
listasmiðju og ég byrja á því að
spyrja strákana út í hvers konar
band Úlfur Úlfur sé? „Vá, nú
langar mig að segja eitthvað
geðveikt stórt og framúrskarandi
en skortir orðin,“ svarar Arnar
og þeir hlæja allir. „Við erum
band í útrás, okkar nálgun
á popptónlist er meira í ætt
við rapp en samt sem áður er
við með öll poppelementin í
þessu,“ bætir hann við.
Náðu saman í
gegnum FIFA
Þeir Arnar og Helgi Sæmundur
hafa lengi starfað saman í tónlist
en hvernig skyldi Bjössi hafa
komið inn í þetta samstarf?
„Hann er bara svo góður, snýst
þetta ekki allt um hæfileika,“
spyr Arnar á móti og Helgi
Sæmundur bætir við. „Við
hittum hann þegar verið var að
taka upp video með MC Gauta,
eftir upptökur fórum við í FIFA
og eftir það var ekki aftur snúið.
Þegar þú hefur spilað FIFA með
einhverjum þá er hann orðinn
svo gott sem besti vinur þinn.“
(Fyrir þá sem ekki vita þá er
FIFA fótboltaleikur)
Bjössi er sjálfur samhliða
starfi sínu með strákunum að
vinna að sinni fyrstu sólóplötu
en hún mun eingöngu koma út
rafrænt. „Frítt og gott, það er
fín leið þegar maður er að koma
sér á framfæri að byrja á því að
gefa út rafrænt og leyfa þá frítt
niðurhal á tónlistinni. Síðan fær
maður bara peningana fyrir að
spila,“ úrskýrir Bjössi og bætir
síðan við. „Internetið er það
besta sem komið hefur fyrir
unga og fátæka tónlistarmenn.
„Það er frábær leið til þess að
kynna sig fyrir svo gott sem
engan pening. Það eina sem
maður þarf að kosta til eru
græjurnar til þess að geta komið
tónlistinni á netið.“
Ég ákveð að bakka örlítið
með viðtalið og koma að
íslenskum sveitasið með
betri kynningu á strákunum,
ættum þeirra og uppruna. Við
byrjum á Arnari Frey. „Já, þú
segir það, ég er sonur þeirra
Frosta Frostasonar og Sigríðar
Ragnarsdóttur,“ svarar hann
og lítur á Helga. „Vá, ég veit
ekki hvað ég á að segja meira,“
segir hann og þeir hlæja allir en
Arnar heldur þó áfram: „Ég er
búin að vera viðloðandi tónlist
síðan ég var í grunnskóla og
lengst af í einhverju samstarfi
við hann Helga Sæmund hér.
Rappið og tónlistin er mín
ástríða í lífinu í raun mín eina
ástríða.“ Arnar Freyr hefur í
sumar starfað á heimili fyrir
einhverfa drengi en þegar
blaðið kemur út verður hann
sestur á skólabekk en hann
hefur nú valið sitt framtíðar fag
og hyggst leggja stund á nám í
kennarafræðum. „Ég ætla að
vera í skóla og reyna samhliða
því að semja og framleiða eins
mikla tónlist og ég get. Þetta
er því voða einfalt og ljúft líf.“
Svo mörg voru þau orð og
við beinum athygli okkar að
Helga Sæmundi sem er sonur
Guðmundar Ragnarssonar og
Herdísar Sæmundardóttur.
Helgi líkt og Arnar segist
eiga erfitt með að svara svona
spurning um persónu sína. „Ég
er úr Fljótunum í Skagafirði
og Siglufirði. Ég hef verið í
kringum tónlist mjög lengi. Tók
þátt í að stofna tónlistarklúbb
við FNV þar sem starfaði
Hlutirnir gerast
á Internetinu
Strákarnir í Úlfi Úlfi í Feykisviðtali
Arnar Freyr, Helgi Sæmundur og Þorbjörn Einar.