Feykir


Feykir - 12.01.2012, Blaðsíða 10

Feykir - 12.01.2012, Blaðsíða 10
10 Feykir 02/2012 Þrettándinn var samkvæmt almanaki sl. föstudag en þjóðsögur herma að síðasti jólasveinninn drífi sig heim á þrettánda degi jóla. Margur notar daginn til að slútta jólunum með veisluhöldum og flugeldauppskotum. Þessi jólin voru vel hvít, snjókoma nánast alla daga og flestir dagar einkenndust af snjómokstursmaskínum með blikkandi ljós um allar trissur, veðrið þó ekki vont og sjálfsagt finnst flestum stemning í snjónum og jólaljósin njóta sín vel við þessar aðstæður. Ljósmyndari Feykis kíkti í nokkrar götur á Króknum á þrettándanum og tók fáeinar myndir. Hólatún var sennilega mest skreytta gatan og ef einhver hefur tölu á því hversu mörg jólaljósin eru í þeirri götu þá væri gaman að fá upplýsingar um það. /ÓAB Sauðárkrókur Ljósin í bænum

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.