Feykir - 12.01.2012, Blaðsíða 9
02/2012 Feykir 9
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berglindth@feykir.is
Guðrún og Hjálmar kokka
Fillet og lundir
með sinnepssósu
Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru þau Guðrún
Halldóra Baldursdóttir og Hjálmar Ólafsson
kerfisfræðingur, frá í Kárdalstungu í Vatnsdal. Þau skora á Jóhönnu Halldórsdóttir og Brynjólf Friðriksson
frá Brandsstöðum í Blöndudal, að koma með uppskriftir í
Feyki og munu þær vera birtar í blaðinu að þremur vikum
liðnum.
FORRÉTTUR
Grafið kindafillet
með sinnepssósu
Um 200 g kinda- eða lambafillet, án fitu
2 tsk. Maldon-salt eða annað flögusalt
1 msk. blóðberg, þurrkað
1 tsk. Herbes de Provence eða ítölsk
kryddjurtablanda (einnig má
sleppa blóðberginu og nota 2 tsk.
af kryddjurtablöndu)
½ tsk. nýmalaður svartur pipar
Aðferð: Best er að nota fremur þunnan
vöðva. Salti, kryddjurtum og pipar blandað
saman, kjötinu velt upp úr blöndunni og
henni þrýst vel inn í vöðvann. Kjötinu
pakkað í álpappír eða plastfilmu, sett á lítið
bretti eða bakka, annað bretti lagt yfir, sett
í ísskápinn, farg sett ofan á og látið standa
í 1-2 sólarhringa. Snúið tvisvar eða þrisvar.
Síðan er kjötið skorið í örþunnar sneiðar á
ská með beittum hníf og borið fram með
salatblöðum, ristuðu brauði og e.t.v. góðu
vinaigrette.
Balsam-sinneps-vinaigrette:
1 msk. rauðvínsedik
1 tsk. gott balsamedik
1 tsk. dijonsinnep, helst grófkorna
6 msk. ólífuolía
Nokkur rósmarínblöð, söxuð smátt
Nýmalaður pipar
Salt
Aðferð: Allt nema olían hrært vel saman
í skál og síðan er olíunni þeytt saman við
smátt og smátt.
AÐALRÉTTUR
Folaldalund með
sinnepskryddaðri piparsósu
800 g folaldalundir
30 stk. græn piparkorn, niðursoðin, Opies
3 dl rjómi
2 msk. koníak
2 msk. ólífuolía
2 msk. sinnep
Nautateningur eða annað kjötsoð
Svartur Pipar
Salt
Aðferð: Hitið olíuna og steikið piparkornin
létt. Hellið koníakinu út í og berið að
því eld. Hellið rjómanum út í og hrærið
sinnepinu saman við. Bætið við kjötkrafti
og kryddið með salti ef með þarf. Kryddið
kjötsneiðarnar með salti og pipar. Steikið
þær á pönnu í um 2 mínútur hvorum
megin.
Berið kjötið fram með sósunni ásamt
kartöflunum og grænmeti.
EFTIRRÉTTUR
Frosin ávaxtakaka
100 g makkarónukökur
1 1/2 dl appelsínusafi eða sérrí
1 appelsína
2 epli
3 litlir bananar
100 g suðusúkkulaði
100 g döðlur
50 g hnetur
2-3 kíwí
Aðferð: Myljið makkarónukökurnar
og látið á fat með börmum. Hellið
appelsínusafa/sérrí yfir kökurnar. Afhýðið
appelsínurnar, eplin og banana og
skerið í bita. Saxið súkkulaði, döðlur og
hnetur. Blandið öllu saman og dreifið yfir
makkarónukökurnar. Setjið álpappír yfir
fatið og frystið (u.þ.b. 12 tíma eða lengur).
Takið fatið úr frysti tveim tímum áður en
kakan er borin fram. Afþýðið og sneiðið
kíwí-ávextina og skreytið kökuna með því.
Berið fram með rjóma ef vill.
Verði ykkur að góðu!
Söngvakeppni Sjónvarpsins
Fúgustef varð
Júrósmellur
Gestur Guðnason er
Sauðkrækingur í húð
og hár en hefur búið í
höfuðborginni í áratug og
starfar þar sem gítarkennari.
Hann á, ásamt vini sínum
Hallvarði Ásgeirssyni, lag í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
sem er undanfari Júróvisjón
keppninnar vinsælu en þetta
er í fyrsta skiptið sem hann
sendir lag í keppni.
Þeir kumpánar taka nú þátt
í Söngvakeppninni í fyrsta
sinn en hljómsveit þeirra
Fatherz'n'Sonz sem mun
flytja lag þeirra, Rýtingur,
næstkomandi laugardag 14.
janúar. Feykir sendi Gesti
nokkrar spurningar og
forvitnaðist um tilurð lagsins
og fleira.
Hvernig hljómar tónlistar-
ferillinn hjá Gesti Guðna-
syni? -Ég er í grunninn
sjálfmenntaður. Seinna lærði
ég klassískan gítarleik og í
framhaldi af því tónsmíðar.
Af þeim hljómsveitum sem ég
hef spilað með má helst nefna
Númer Núll, Stórsveit Nix
Noltes og 5tu Herdeildina.
Þið eruð tveir skráðir
fyrir lagi og texta, hvernig
unnuð þið lagið? -Einhvern
daginn eins og oft áður kíkti
Hallvarður yfir með strákinn
sinn í kaffi, þaðan kemur
einmitt nafnið Fatherz'n'Sonz,
því við hittumst oft með
strákana okkar, þeir leika sér
og við semjum lög. Allavega
stingur Varði upp á því hvort
við ættum ekki að senda inn
lag í Júróvisjón. Ég fór að klóra
mér í hausnum og mundi þá
eftir fúgustefi sem ég hafði átt
lengi en ekki vitað hvað ég ætti
að gera við. Ég snaraði þess
vegna upp lagaformi kringum
þetta stef og svo lögðumst ég og
Varði í mikla rannsóknarvinnu
við að útsetja lagið. Textanum
hentum við upp milli okkar
yfir eldhúsborðið, nokkurn
veginn þannig að ég kom með
eina línu og Varði með þá
næstu. Svo var hann lagaður
betur að laglínunni.
Hvernig tengist þið Hall-
varður? -Við kynntumst
í Listaháskóla Íslands og
ferðuðumst svo saman og
tókum upp plötur með
Stórsveit Nix Noltes.
Hvernig myndir þú lýsa
laginu? -Úff, einhver sem
heyrði það um daginn líkti
því við Depeche Mode
og Sigur Rós, það eru líka
einhverjir kommentar og
samlíkingar komnar inn á
YouTube. Textinn er elegy-a
eða harmljóð.
Var lagið samið fyrir Júró-
visjón? -Allt nema viðlagið já.
Hefurðu áður sent lag í þessa
eða einhverja aðra keppni?
-Ekki í Júróvisjón og nei ég
bara man svei mér þá ekki
eftir að hafa sent lag í neina
keppni.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri í lokin? -Lagið er
komið inn á netið, allavega
á YouTube, þannig að fólk
getur hlustað þar ef það hefur
áhuga. Svo bara að horfa næsta
laugardag 14. janúar og kjósa!
/PF
Í 46. tbl. Feykis segir frá
andfætlingi okkar Íslendinga
sem tjaldaði á Blönduósi í
brunagaddi og fylgdi með vísa
sem sögð var eftir Önnu
Árnadóttur.
Hafði hún samband við
blaðið og sagðist ekki kannast
við að hafa samið hana og lét
eftirfarandi vísu fylgja og kennir
Jóni sjálfum krógann.
Undrafrétt að eyrum ber
á okkar kalda Fróni.
Einn í tjaldi unir sér
án þess að vera róni.
En vísuangann af mér sver,
hún er eitthvað skyld honum Jóni.
Leiðrétting
Kannast
ekki við
vísuna
Gestur Guðnason til vinstri en Hallvarður Ásgeirsson til hægri. Gestur er sonur Guðna Friðrikssonar og
Valgerðar Einarsdóttur á Sauðárkróki.