Feykir - 09.02.2012, Síða 5
06/2012 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
Helga Margrét Þorsteins-
dóttir sjöþrautarkona úr
Ármanni bætti Íslandsmet
sitt er hún keppti í
fimmtarþraut innanhúss á
alþjóðlegu móti í Tallin í
Eistlandi, dagana 3. og 4.
febrúar.
Fyrra met hennar var 4.205
stig frá árinu 2010, en hún
bætti met sitt um 93 stig og
hlaut samtals 4.298 stig í
keppninni.
Helga Margrét varð í 2. sæti
í mótinu, á eftir Lauru
Ikauniece frá Lettlandi sem
hlaut 4.346 stig. Jafnframt
kemur árangur Helgu, með
4.298 stig, henni í 11 sætið á
heimslistanum og best á
Norðurlöndunum. /BÞ
Frjálsar íþróttir : Helga Margrét Þorsteinsdóttir
Bætti Íslandsmetið
Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum fyrir 15-22
ára fór fram um sl. helgi í
Laugardalshöll í Reykjavík.
Um 240 keppendur voru
skráðir til leiks sem var
nokkuð meira en á sl. ári,
samkvæmt heimasíðu
Frjálsíþróttasambandi
Íslands (FRÍ).
Keppendur komu frá 17
félögum og samböndum og
kepptu í samtals 784 greinum.
Skagfirðingar fjölmenntu á
mótið og unnu keppendur
UMSS fjóra Íslandsmeistara-
titla á mótinu, fjögur silfur og
þrjú brons. Skagfirsku piltarnir
í flokki 16-17 ára urðu í 3. sæti
í stigakeppninni en allur
hópurinn hafnaði í 6. sæti af
19 liðum í samanlagðri stiga-
keppni mótsins, segir á heima-
síðu Tindastóls. /BÞ
MÍ 15-22 ára í frjálsíþróttum
Fjórir Íslands-
meistaratitlar
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@feykir.is
Guðrún Gróa hefur meira og
minna dvalist í Reykjavík síðan
hún kláraði grunnskóla en
alltaf fundist hún eiga heima
á Reykjum í Hrútafirði þar sem
hún ólst upp. Hún er árgangur
1989, dóttir bændanna
Þorsteins Sigurjónssonar og
Aðalheiðar Böðvarsdóttur.
Guðrún æfir kraftlyftingar
en rifjaði upp gamla takta í
kúluvarpi í sumar og fannst
það svo gaman að hún hefur
æft og keppt í því í vetur með
lyftingunum. Íþróttafélög
Guðrúnar eru Grótta og FH.
Helstu íþróttaafrek: Ég átti
nokkur aldursflokkamet í frjálsum
en Helga systir sá til þess að þau
stóðu ekki lengi. Ég hef unnið
Íslands- og bikarmeistaratitla auk
minni titla með KR í körfubolta
bæði í mestaraflokk og yngri
flokkum. Svo á ég nokkur met í
kraftlyftingum.
Skemmtilegasta augnablikið:
Ég get ómögulega nefnt bara eitt
augnablik. Skemmtilegast af öllu
finnst mér þegar öll fölskyldan er
saman komin en það gerist yfirleitt
bara á jólum og í réttunum því við
systkinin erum á víð og dreif um
heiminn. Það bregst ekki að þegar
allur „krakkaskarinn“ kemur
saman heim í sveit þá er mikið
líf og fjör. Þess utan eru mínar
bestu stundir tengdar íþróttum.
Það er fátt sem jafnast á við það,
eftir mikla vinnu og æfingar, að ná
settum markmiðum, vinna sigra
eða slá met. Þegar illa gengur
spyr ég mig stundum til hvers ég
sé eiginlega að leggja þetta á mig
en þegar maður uppsker árangur
erfiðisins þá fæ ég svarið við því.
Neyðarlegasta atvikið: Ég lenti
í frekar vandræðalegu atviki í
skólanum um daginn. Þá var ég
eitthvað að vafra á Facebook
og asnaðist til að ýta á tengil á
frétt sem vakti athygli mína. Það
vildi ekki betur til en svo að um
hrekk var að ræða og það birtist
einhver ófreskja á skjánum
og það upphófust mikil óhljóð
sem hættu ekki þó ég lokaði
tölvunni. Það var engu líkara en
ég hefði sett brunavarnarkerfi alls
háskólasvæðisins í gang. Sem
betur fer var kaffihlé svo kennslan
var ekki í gangi og kennarinn ekki
inni í stofunni ef svo hefði ekki
verið hefði ég neyðst til að mæta
með hauspoka í tíma það sem
eftir lifir vetrar.
Einhver sérviska eða hjátrú?
Nei ég held bara ekki en á
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
Berst í gegnum bókmennta-
sögu síðustu 4000 ára
keppnisdögum er allt frekar
rútínubundið hjá mér og í föstum
skorðum, sérstaklega þegar ég var í
körfunni þá var dagskráin á leikdegi
yfirleitt niðurnjörfuð, t.d. hvað
ég borðaði, hvenær ég fékk mér
síðasta kaffibollan fyrir leik, hvenær
ég mætti í íþróttahúsið o.s.frv. Það
var samt ekkert tengt neinni hjátrú.
Þegar ég hef fundið eitthvað sem
hentar mér vel þá held ég mig bara
við það og er lítið að breyta til.
Uppáhalds íþróttamaður? Það
eru margir íþróttamenn sem ég
hef fylgst með í gegnum tíðina og
litið upp til. Ég fæ ennþá gæsahúð
þegar ég hugsa til þess þegar
Vala Flosadóttir vann til verðlauna
á ólympíuleikunum og hún er í
miklu uppáhaldi hjá mér sem og
margir aðrir frjálsíþróttamenn, má
þar nefna Jón Arnar Magnússon,
Carolinu Klüft og svo auðvitað Helgu
Margréti Þorsteinsdóttur.
Ef þú mættir velja þér andstæðing,
hver myndi það vera og í hvaða
grein mynduð þið spreyta ykkur?
Það er alltaf stórskemmtilegt að
mæta Helgu systur í 1á1 í körfu-
bolta í gamla íþróttahúsinu heima í
Reykjaskóla.
Hvernig myndir þú lýsa rimmunni?
Þegar við systur mætumst í kappleik
er baráttan alltaf hatrömm og allra
bragða beitt til að knýja fram sigur.
Eins og gefur að skilja verður það
oft til þess að keppnisskapið ber
hinn sanna íþróttaanda ofurliði og
oftar en ekki þarf að leggja reglur
leiksins til hliðar og útkljá leikinn
með allsherjar barsmíðum.
Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar?
Það er nú eitthvað lítið sem ég hef
náð að afreka, á það vonandi eftir.
Ætli ég verði ekki bara að segja sigur
í Söngvarakeppni í grunnskólanna
þegar við Erla Sif vinkona mín
röppuðum Skólarapp. Það var
klárlega toppurinn á rappferli
okkar og að sama skapi voru það
mikil vonbrigði að við skyldum ekki
„meika það“ á alþjóðavísu.
Lífsmottó: Þolinmæði þrautir
vinnur allar. Ég er því miður ekki
sérstaklega þolinmóð en hvað sem
maður tekur sér fyrir hendur þá
skiptast á skin og skúrir og þegar á
reynir skiptir öllu að vera þolinmóður
því eins og mamma segir svo oft við
mig þá birta öll él upp um síðir.
Helsta fyrirmynd í lífinu: (og af
hverju). Foreldrar mínir eru mínar
stærstu fyrirmyndir. Það er ótrúlegt
hvað þau hafa innt af hendi og sýnt
mikla þrautseigju í gegnum tíðina.
Þó ég yrði 200 ára næði ég ekki
að gera helminginn af því sem þau
hafa gert.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? Þessa dagana fer mestur
tími minn í æfingar og lestur
námsbókanna.
Hvað er framundan? Á næstunni
ætla ég að halda áfram að lyfta
lóðunum af miklum móð og reyna
að verða sterkari á morgun en
ég var í gær. Það eru nokkur mót
erlendis í vor og sumar sem ég
stefni á og því er verk að vinna.
Fyrir utan íþróttirnar liggur meðal
annars fyrir að berjast í gegnum
bókmenntasögu síðustu 4000
ára og fyrstu málfræðiritgerðina.
Hvorutveggja afar áhugavert. Svo
tel ég bara niður dagana þangað til
fer að vora.
Tindastóll lagði gott lið KR
í undanúrslitum Powerade
bikarsins í Síkinu sl.
sunnudagskvöld og var
sigurinn sanngjarn.
Stólarnir voru oftar en ekki
skrefinu á undan Vestur-
bæingum í hreint geggjuðum
körfuboltaleik sem var spil-
aður á fullu tempói frá fyrstu
til síðustu mínútu, leikmenn
voru á stóru tánum og
áhorfendur stóðu á öndinni.
Tindastóll var þremur stigum
yfir í leikhléi, 45-42, og þegar
upp var staðið munaði enn
þremur stigum, lokatölur 89-
86. Lið Tindastóls er því
komið í úrslitaleikinn þar sem
það mætir Keflavík.
Stólarnir komu einbeittir
til leiks og ætluðu greinilega
að rífa sig upp eftir tvo slæma
tapleiki í deildinni. Stemn-
ingin í hópnum var mikil og
smitaði stuðningsmennina
sem fjölmenntu í Síkið og létu
vel í sér heyra. Strákarnir
stóðu allir fyrir sínu og rúm-
lega það en kannski má nefna
sérstaklega hinn splunkunýja
Tratnik sem var góður bæði í
vörn og sókn og þá var mikil
og góð stemning í kringum
Þröst Leó og Allen nýtti færi
sín innan teigs frábærlega.
Níu leikmenn Tindastóls
komust á blað, allir þeir sem
annað borð komu inná. /ÓAB
Stig Tindastóls: Tratnik 19 / 5 varin skot,
Allen 18 / 7 fráköst, Þröstur Leó 11,
Svabbi 9, Miller 9 / 8 stoðsendingar,
Rikki 8, Hreinsi 6, Helgi Freyr 5 og Helgi
Rafn 4.
Undanúrslit Poweradebikarsins : Tindastóll - KR 89-86
Á leið í Höllina