Feykir - 01.03.2012, Qupperneq 2
2 Feykir 09/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
29. febrúar
Blönduósbær auglýsir eftir
starfsmanni við stjórnun og
umsjón með viðburðum í
sveitarfélaginu á árinu
2012.
Um er að ræða tímabundið
starf og felst það m.a. í að hafa
umsjón með Húnavöku,
bæjarhátíð Blönduóss, sem
haldin verður dagana 20.-22.
júlí nk. og útgáfu kynn-
ingarefnis þar sem vakin er
athygli á viðburðum í
sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til 5.
mars 2012. /BÞ
Blönduós
Vantar
viðburða-
stjóra
Í gær var hlaupársdagur en hann er samkvæmt okkar
tímatali 29. febrúar en daginn má rekja allt til ársins 46. f. Kr.
Hlaupársdagur er notaður til að rétta tímatalið af, þannig að
meðalár tímatalsins verður 365,2425 sólarhringar að lengd
samkvæmt Vísindavefnum. Hlaupár samkvæmt okkar
tímatali eru alltaf þegar 4 ganga upp í ártalinu, að
undanskildum aldamótaárum þegar 4 ganga ekki upp í
öldinni. Þannig eru árin 1700, 1800 og 1900 ekki hlaupár en
árið 2000 er hlaupár. Árin 2100, 2200 og 2300 verða ekki
hlaupár en árið 2400 verður það aftur á móti.
Okkar tímatal nefnist gregoríanskt tímatal og meginein-
kenni þess er einmitt hlaupársreglan. Það var tekið upp í
kaþólskum löndum árið 1582 og innleitt hér á Íslandi árið
1700. Þá kom 28. nóvember í stað 17. nóvember og var það
gert til að vinna upp skekkjuna sem hafði safnast upp.
Ég vil óska öllum afmælisbörnum gærdagsins til ham-
ingju með afmælið með ósk um þolinmæði næstu fjögur
árin.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Hafist var handa í síðustu
viku við að lengja
sandfangara við
Sauðárkrókshöfn en það
eru Norðurtak og Krókverks
sem vinnur það verk.
Sandfangarinn verður
lengdur um 30 metra út í sjó
en hann á að hefta sandburð í
höfnina en um leið færist
fjaran út og landrými eykst.
Að sögn Rögnvaldar
Árnasonar hjá Norðurtak er
stefnan sett á að klára verkið
fyrir páska ef ekkert óvænt
gerist. Efnið í garðinn er
fengið annarsvegar úr námu
við Veðramót í Skörðum og
hinsvegar á Fagranesi á
Reykjaströnd. /PF
Sauðárkrókur
Sandfangari
lengdur
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
Leitað að læknum
Heilbrigðisstofnunin á
Sauðárkróki hefur um
nokkurt skeið auglýst laust
til umsóknar starf
heilsugæslulæknis við
stofnunina.
Um er að ræða 100% stöðu
auk vakta á heilsugæslu og er
staðan laus nú þegar. Að sögn
Arnar Ragnarssonar yfirlæknis
heilsugæslusviðs eru tvær
stöður lausar en ekki hefur
komið nein umsókn ennþá.
Af fimm læknum eru þrír
eftir af þeim fastráðnu en Örn
segir að einn af þessum þremur
hafi verið í veikindaleyfi í
janúar. -Hann hefur verið að
koma inn að hluta í febrúar og í
fulla vinnu í mars. Síðan erum
við með afleysingafólk, einn
sem hefur verið frá hausti og
verður fram á vor en hitt er
skammtímaafleysingar, redd-
ingar yfir helgi, í eina viku
o.s.frv., segir Örn.
Leitað er að læknum með
víðtæka almenna reynslu og
sérfræðimenntun í heimilis-
lækningum. /PF
Rekstur Steinullar hf. á
Sauðárkróki hefur gengið
nokkuð vel, segir Einar
Einarsson framkvæmda-
stjóri en síðustu 4 árin frá
hruni hefur að meðaltali
verið um 80 milljón króna
hagnaður á ári. Eiginfjárhlut-
fall í lok síðasta árs var tæp
60% og veltufjárhlutfall
u.þ.b. 3%.
Einar segir að reksturinn
hafi gengið nokkuð vel frá
hruni og reyndar verið hagn-
aður síðustu 20 árin en
verksmiðjan hóf framleiðslu í
lok árs 1985.
-Salan núna hér innanlands
er svipuð og hún var á árunum
upp úr 1990 og er því aðeins
40% af því, sem mest var árið
2007. Útflutningur okkar er
nokkuð stöðugur og hefur
skipt sköpum um afkomu
fyrirtækisins eftir hrun og við
prísum okkur sæla fyrir að
halda í þessa markaði enda
þótt framlegðin af útflutn-
ingnum hafi engin verið
meðan mesta hágengisbrjál-
æðið gekk yfir, segir Einar.
Helstu útflutningsmarkaðir
steinullar eru Færeyjar,
Bretland og Benelux löndin en
Einar segir að flutningskostn-
aður geri þeim erfitt fyrir og
þurfi því að einbeita sér að
framleiðslu sérafurða á þessa
markaði.
-Við gerum ráð fyrir óveru-
legri aukningu á innanlands-
markaði í ár en að útflutningur
aukist lítilsháttar og að áfram
verði reksturinn réttu megin
við strikið.
Nýlega birti Creditinfo lista
yfir fyrirtæki sem þau flokka
sem framúrskarandi fyrirtæki
á Íslandi og eftir ítarlega grein-
ingu sem sýnir hvaða íslensk
fyrirtæki fá bestu einkunn í
styrk- og stöðugleikamati
félagsins kom í ljós að Stein-
ullarverksmiðjan á Sauðár-
króki er meðal þeirra. Á
heimasíðu Creditinfo segir að
af rúmlega 32.000 fyrirtækjum
sem skráð eru í Hlutafélagaskrá
reyndust 245 þeirra uppfylla
þau skilyrði sem félagið setur
til að fá viðurkenningu sem
framúrskarandi fyrirtæki.
Vottun af þessu tagi þekkist
víða erlendis en á stærri
mörkuðum er algengara að
skilyrði vottunar séu ekki eins
ströng og ákveðið var að setja
hér á landi. /PF
Sauðárkrókur
Góður rekstur
Steinullar
Norðurland vestra
Ungu fólki
fækkar hratt
Nú í byrjun febrúar fundaði
stjórn Byggðastofnunar
ásamt starfsmönnum með
fulltrúum Sambands
sveitarfélaga á Norðurlandi
Vestra, SSNV, en Byggða-
stofnun og SSNV hafa með
sér samning um starf á
sviði atvinnu- og byggða-
þróunar á starfssvæði
SSNV. Á fundinum fengu
stjórnarmenn í Byggða-
stofnun upplýsingar um
stöðu atvinnulífs á svæðinu
auk þess sem rætt var
almennt um stoðkerfi
atvinnulífsins og hlutverk
stofnunarinnar og
sveitarfélaga í því.
Atvinnulíf á Norðurlandi
Vestra byggist að miklu leiti á
frumframleiðslugreinunum
landbúnaði og sjávarútvegi en í
þeim greinum hefur störfum
fækkað mikið. Fæðingar-
orlofssjóður, Greiðslustofa at-
vinnuleysistrygginga og Inn-
heimtumiðstöð sekta hafa verið
flutt inn á svæðið á síðustu
árum en á sama tíma hefur
öðrum störfum á vegum hins
opinbera fækkað.
Fulltrúar SSNV létu í ljósi
áhyggjur af þróun mála en
mikil fólksfækkun hefur orðið
á Norðurlandi vestra á undan-
förnum árum og er árið 2011
þar engin undantekning. Sér-
stakar áhyggjur vekur sú þróun
að ungu fólki fækkar hratt sem
og börnum á skólaaldri.
Samkvæmt lögum um
Byggðastofnun er hlutverk
hennar að fylgjast með þróun
byggðar í landinu og vinna að
eflingu byggðar og atvinnulífs á
landsbyggðinni. Stofnunin
skipuleggur og vinnur að ráð-
gjöf við atvinnulífið á lands-
byggðinni í samstarfi við at-
vinnuþróunarfélög, sveitarfélög
og aðra. /Byggkornið
Eyhyltingurinn Gísli Árna-
son hefur tekið við
formannssæti stjórnar
Karlakórsins Heimis, af
Jóni Sigurðssyni, en skv.
heimasíðu kórsins er Gísli
enginn nýgræðingur í
stjórnarstörfum fyrir kórinn
og „[...]var vart af barns-
aldri þegar hann hóf að
syngja með kórnum.“
Á aðalfundi félagsins sem
haldinn var þann 16. febrúar
sl. gengu þeir Guðmundur
Þór Guðmundsson á Stóru-
Seylu og Jón Sveinsson frá
Sauðárkróki í stjórn kórsins.
/BÞ
Karlakórinn Heimir
Gísli nýr
formaður
Björgunarsveitin Húnar
Héldu upp á
5 ára afmælið
Björgunarsveitin Húnar
héldu upp á fimm ára
afmæli sitt sl. föstudag en
Björgunarsveitin Káraborg
og Flugbjörgunarsveit
V-Húnavatnssýslu voru
sameinaðar í
Björgunarsveitina Húna
þann 24. febrúar 2007. Í tilefni af afmælinu buðu
Húnar félögum sínum í
björgunarsveitunum á svæði 9
að halda „Afmælisæfingu“ sl.
þriðjudag á Hvammstanga og
snæða með sér afmælistertu á
eftir.
Feykir óskar Húnum til
hamingju með daginn! /BÞ