Feykir - 01.03.2012, Qupperneq 9
09/2012 Feykir 9
Hjónin Andrea og Jacob
Kasper eru verkefnisstjórar
Nes listamiðstöðvar um
þessar mundir en þau tóku
við listamiðstöðinni um
miðjan október sl. Starfið
tóku þau að sér tímabundið
þar til ný manneskja yrði
ráðin, sem nú hefur verið
gert og kemur hún til starfa í
næsta mánuði.
Þegar blaðamaður Feykis
settist niður með þeim hjón-
unum, í húsnæði Neslistar,
voru listamennirnir sem þar
starfa í óða önn að undirbúa
opið hús sem er mánaðarlegur
viðburður hjá listamiðstöðinni.
Þá gefst áhugasömum kostur
á að skoða þau verk sem
listamennirnir hafa unnið
að á meðan á dvöl þeirra á
Skagaströnd hefur staðið.
Börn þeirra Andreu og Jacobs,
Zelia 4 ára og Lazer 1 árs, léku
á alls oddi umhverfis okkur
og leiðist greinilega ekki allt
tilstandið og það mikla rými
sem húsnæðið hefur upp á að
bjóða.
Hvernig kom það til að þið
hlupuð í skarðið? –„Við
höfum búið hér á Skagaströnd
í tvö ár og sótt flesta þá
viðburði sem hér hafa verið
í boði,“ segir Jacob en hann
er starfandi líffræðingur hjá
sjávarlíftæknisetrinu BioPol.
Jacob og Andrea fluttu til
Íslands frá Bandaríkjunum
árið 2008 en bjuggu á Ísafirði
í fyrstu. „Við höfum alltaf haft
mikinn áhuga þeirri starfsemi
sem hér fer fram og á listum
almennt. Þegar við fréttum
að það vantaði einhvern
tímabundið til að hafa umsjón
með listamiðstöðinni buðum
við fram þjónustu okkar,“
segir Andrea. Andrea er
nútímadansari og segir hún
listina hafa fylgt sér alla ævi, í
hvaða formi sem er. Hún hefur
m.a. kennt dans og sett upp
sýningar, bæði á Ísafirði og nú
síðast á Skagaströnd sl. haust.
Þar sýndi hún frumsamið
nútímadansverk sem hún
kallar Skagi, ásamt þremur
nemendum sínum. Jacob hefur
einnig verið ötull listunnandi í
gegnum tíðina og tók á sínum
tíma nokkra áfanga í listfræði
þegar hann var í háskólanámi í
Bandaríkjunum.
Nýr verkefnisstjóri
á leiðinni
Í september sl. var auglýst eftir
nýjum verkefnisstjóra við Nes
listamiðstöð og sóttu 25 manns
um stöðuna. „Sú sem hefur
verið ráðin kemur um miðjan
mars,“ upplýsir Jacob og segir
að verðandi verkefnastjóri
komi alla leið frá Ástralíu.
„Hún heitir Melody Woodnutt
og er listamaður sem hefur
dvalið tvisvar hér við Neslist,
á árunum 2010 og 2011, og
er hún því listamiðstöðinni
og svæðinu mjög kunnug,“
segir Andrea og brosir. Hún
lýsir metnaðarfullum og til-
komumiklum listaverkum sem
hún gerði þarna í húsnæðinu,
annarsvegar strönd sem hún
útbjó þar og hins vegar bát
úr snæri. „Melody féll fyrir
Íslandi og Skagaströnd, eins og
Nes listamiðstöð
Bera hróður Íslands
um allan heim
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Séra Sigríður
NAFN: Sigríður Gunnarsdóttir.
ÁRGANGUR: 1975.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Þórarni Eymundssyni og við eigum
Eymund Ás, Þórgunni og Hjördísi Höllu.
BÚSETA: Búsett á Sauðárkróki.
HVERRA MANNA ERTU: Er dóttir Helgu Árnadóttur og Gunnars
Oddsonar í Flatatungu.
STARF / NÁM: Sóknarprestur í Sauðárkróksprestakalli.
BIFREIÐ: Volkswagen Carawelle, get ómögulega munað hvaða
árgerð.
HESTÖFL: Mörg hestöfl og nokkir hestar.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Það er alltaf eitthvað að líta í.
Hvernig hefurðu það? Ljómandi
gott.
Hvernig nemandi varstu? Svona í
meðallagi held ég?
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Sólin skein
og það var létt yfir fólki.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Ég ætlaði að verða
bóndi. Kannski á ég það eftir?
Hvað hræðistu mest? Mér er ekki
vel við köngulær.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir (eða besta)? Fyrsta
plötuna sem ég eignaðist fékk ég
gefins, það var Introducing the
Hardline According to Terence
Trent D´Arby. Hún var mikið spiluð
enda góður gripur.
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Karókí? Ég er ekki líkleg til
að taka þátt í Karókí. Syng mest í
messum.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
Horfi helst á Kiljuna og Höllina
dönsku.
Besta bíómyndin? Þær eru svo
margar. Ein þeirra er The Straight
Story eftir David Lynch, um gamla
manninnn sem ferðast yfir þver
Bandaríkin til að sættast við bróðir
sinn.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Ég er best í að
segja hinum hvað þau eigi að gera.
Þar stendur mér enginn á sporði.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Það var þegar að
ég eldaði hreindýrshrygg en stóð
í þeim misskilningi að ég væri að
elda léttreyktan lambahrygg. Sem-
sagt púðursykursgljáður hreindýrs-
hryggur.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna
sem ekki er skrifað á tossa-
miðann? Þetta er óþægileg
spurning. Ostar, rjómi og súkkulaði.
Hvað er í morgunmatinn? Hafra-
grautur og lýsi.
Uppáhalds málsháttur? Sígandi
lukka er best.
Hvaða teiknimyndapersóna
höfðar mest til þín? Hrúturinn
hreinn er ágætur.
Hver er uppáhalds bókin
þín? Biblían.
Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu... til Þýskalands að
heimsækja Sjöfn vinkonu mína
sem ég hef ekki séð í mörg ár.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Þegar að ég læt
hluti sem ég fæ ekki breytt fara í
taugarnar á mér.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óheilindi.
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju? Fylgist ekki með enska
boltanum en Liverpool á sér dygga
stuðningmenn á heimilinu.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Hef miklar
mætur á hestaíþróttamanninum
honum Tóta mínum.
Heim í Búðardal eða Diskó
Friskó? Heim í Búðardal af
tveimur lökum kostum.
Hver var mikilvægasta persóna
20. aldarinnar að þínu
mati? Þær eru tvær, mamma og
pabbi.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Vona að það komi ekki
til!
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Enginn hefur sýnt áhuga
á að rita ævisögu mína enn sem
komið er, svo ég tel spurninguna
ótímabæra.
fleiri listamenn sem hér hafa
dvalið,“ bætir Andrea við.
Sem fyrr segir spilar
listamiðstöðin stóran þátt í
félagslífi þeirra hjóna og hafði
sú hefð skapast áður en þau
tóku við stjórnartaumunum
að þau byðu listamönnunum
heim til sín í pönnukökur einu
sinni í mánuði. Þau hafa einnig
verið fastir gestir í svokölluðum
Pálínuboðum, eða „Potluck“,
sem eru sömuleiðis haldin
mánaðarlega. Þá er haldin
veisla þar sem listamenn og
stjórn listamiðstöðvarinnar
koma saman og slá upp
hlaðborði og eru allir boðnir
velkomnir. „Í síðasta Pálínuboð
komu 35 manns, sem ég tel
að sé metþátttaka frá upphafi
listamiðstöðvarinnar, það var
mjög ánægjulegt,“ segir Jakob
glaður í bragði.
Jakob og Andrea vilja
gjarnan taka áfram óform-
lega þátt í starfsemi listamið-
stöðvarinnar en þau bera
miklar væntingar til hennar.
„Við lítum svo á að Nes
sé listamiðstöð fyrir allt
Norðurland vestra en ekki
bara Skagaströnd og vonum
að svo verði,“ segir Andrea.
„Hér hafa dvalið um 300
listamenn í gegnum árin
sem allir hafa sótt innblástur
frá Skagaströnd, og Íslandi
öllu, og skapað hér fjölmörg
listaverk, sem þau sýna svo út
um allan heim og bera þannig
með sér hróður Íslands,“
segir Andrea áhugasöm og
þá bætir vísindamaðurinn
Jakob við: „Það væri í raun
mjög áhugavert ef hægt væri
að rannsaka langtímaáhrif af
dvöl allra þessara listamanna
sem hingað hafa komið, með
tilliti til landkynningar og
mögulegri fjölgun ferðamanna
í kjölfarið.“
Nes listamiðstöð hefur
nú auglýst eftir íslenskum
listamönnum til að koma og
dvelja við listamiðstöðina en
í boði eru styrkir sem standa
undir hluta af dvalarkostnað
listamannanna. „Hingað hafa
nokkrir íslenskir listamenn
komið en ekki nærri því
jafnmargir og þeir erlendu. Við
myndum gjarnan vilja fá fleiri,
listamiðstöðin er hér til að
styðja við íslenska listamenn
ekki síður en þá erlendu,“ segir
Andrea í lokin og tekur son
sinn í fangið.
Blaðamaður Feykis not-
aði tækifærið og skoðaði
listaverkin og spjallaði við
viðstadda sem var tíðrætt um
hve harðdugleg og jákvæð þau
Andrea og Jacob eru og hve
mikil lyftistöng þau hafa verið
fyrir listamiðstöðina. /BÞ
Jacob Kasper, ásamt syni sínum og listamanninum Luis Miguel Dominguez.