Feykir - 14.06.2012, Blaðsíða 10
10 Feykir 23/2012
Flugakademía Keilis á ferð um landið
Feykir á ferð og flugi með Keili
Flugakademía Keilis býður upp á
fjölbreytt nám í flugtengdum greinum
svo sem einkaflugnám, atvinnuflugnám
til blindflugsréttinda, flugþjónustunám
og nám í flugumferðarstjórn.
Fulltrúar Flugakademíu Keilis voru staddir á
Sauðárkróki á dögunum að kynna flugnám sem
kennt er við Háskólann. Þá stóð Skagfirðingum til
boða að koma á Alexandersflugvöll og skoða eina
af kennsluflugvélum þeirra og fara í kynnisflug.
Feykir notaði tækifærið og fór í flugferð.
„Allir kennarar við skólann eru menntaðir
í sínu fagi og miklir reynsluboltar,“ segir Íris
Erla Thorarensen flugmaður og kennari við
akademíunaog bætir við að það sem Flugakademía
Keilis hefur framyfir aðra skóla séu nútíma
kennsluaðferðir. Til dæmis eru notast við ipad við
kennslu og flugvélarnar eru búnar nýjustu tækni.
„Við erum líka með mjög öflugt fjarnámskerfi og
nemendur skólans eru því vítt og breitt um landið,“
segir Íris.
Vélin sem notuð er til kennslu heitir Diamond
DA-40 Star og er frá árinu 2008. Um er að ræða
fjögurra sæta kennslu- og ferðaflugvél með
135 hestafla hreyfli. Vélin er búin fullkomnun
blindflugsbúnaði og nútíma flugmælitækjum.
„Þetta eru mjög góðar vélar og það er gott að
fljúga þeim – það má segja að þessi gerð sé
„porche“ flugvélanna,“ segir Íris og útskýrir að
tölvubúnaðurinn sem flugvélin býr yfir sé ekki
lengur talin tilheyra framtíðinni - heldur nútíðinni.
„Zero til hero“
Hægt er að klára allt námið á tveimur árum, eða
eins og Íris orðar það - frá „zero til hero“. Aðspurð
um atvinnutækifæri innan geirans segir hún að
lægð hafi verið sl. ár en nú sé verið að ráða sífellt
fleiri til vinnu, t.d. var Icelandair að ráða ellefu
manns en höfðu ekki ráðið neinn í sex ár. „Nú er
besti tíminn til að læra að fljúga og þá að útskrifast
þegar sem mest er að gera innan greinarinnar,“
segir Íris og bendir á að stór hluti af náminu er
lánshæfur hjá LÍN. /BÞ