Feykir


Feykir - 14.06.2012, Qupperneq 10

Feykir - 14.06.2012, Qupperneq 10
10 Feykir 23/2012 Flugakademía Keilis á ferð um landið Feykir á ferð og flugi með Keili Flugakademía Keilis býður upp á fjölbreytt nám í flugtengdum greinum svo sem einkaflugnám, atvinnuflugnám til blindflugsréttinda, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn. Fulltrúar Flugakademíu Keilis voru staddir á Sauðárkróki á dögunum að kynna flugnám sem kennt er við Háskólann. Þá stóð Skagfirðingum til boða að koma á Alexandersflugvöll og skoða eina af kennsluflugvélum þeirra og fara í kynnisflug. Feykir notaði tækifærið og fór í flugferð. „Allir kennarar við skólann eru menntaðir í sínu fagi og miklir reynsluboltar,“ segir Íris Erla Thorarensen flugmaður og kennari við akademíunaog bætir við að það sem Flugakademía Keilis hefur framyfir aðra skóla séu nútíma kennsluaðferðir. Til dæmis eru notast við ipad við kennslu og flugvélarnar eru búnar nýjustu tækni. „Við erum líka með mjög öflugt fjarnámskerfi og nemendur skólans eru því vítt og breitt um landið,“ segir Íris. Vélin sem notuð er til kennslu heitir Diamond DA-40 Star og er frá árinu 2008. Um er að ræða fjögurra sæta kennslu- og ferðaflugvél með 135 hestafla hreyfli. Vélin er búin fullkomnun blindflugsbúnaði og nútíma flugmælitækjum. „Þetta eru mjög góðar vélar og það er gott að fljúga þeim – það má segja að þessi gerð sé „porche“ flugvélanna,“ segir Íris og útskýrir að tölvubúnaðurinn sem flugvélin býr yfir sé ekki lengur talin tilheyra framtíðinni - heldur nútíðinni. „Zero til hero“ Hægt er að klára allt námið á tveimur árum, eða eins og Íris orðar það - frá „zero til hero“. Aðspurð um atvinnutækifæri innan geirans segir hún að lægð hafi verið sl. ár en nú sé verið að ráða sífellt fleiri til vinnu, t.d. var Icelandair að ráða ellefu manns en höfðu ekki ráðið neinn í sex ár. „Nú er besti tíminn til að læra að fljúga og þá að útskrifast þegar sem mest er að gera innan greinarinnar,“ segir Íris og bendir á að stór hluti af náminu er lánshæfur hjá LÍN. /BÞ

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.