Feykir


Feykir - 16.08.2012, Qupperneq 6

Feykir - 16.08.2012, Qupperneq 6
6 Feykir 30/2012 Þeir sem standa að tónlistar- hátíðinni eru þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (Silla), Sigfús Arnar Benediktsson (Fúsi Ben), Stefán Friðrik Friðriksson og Stefanía Fanney Björgvinsdóttir (Stefý), sem bættist í hópinn í ár. „Við fengum Stefý til liðs við okkur í ár en hún er allajafna í almannatengsla- og markaðs- fræðanámi í Barcelona og var heima á Íslandi í sumar,“ segir Stefán. Hinir Gæruliðar eru stofnendur hátíðarinnar og verið með frá upphafi, utan Ragnars Péturs Péturssonar sem gat ekki verið með í ár vegna anna í starfi. En hvernig varð tónlistar- hátíðin að veruleika? „Hug- myndin kom á leið á Edduhátíðina í Reykjavík. Sú umræða kom upp í bílnum að það væri engin tónlistarhátíð haldin á Norðurlandi,“ útskýrir Silla og segir þau hafa verið forviða yfir þeirri staðreynd. „Þær tónlistarhátíðir sem eru næst okkur eru Aldrei fór ég suður á Ísafirði og Bræðslan á Borgarfirði eystra og það tekur okkur sex klukkustundir að keyra sitthvora leiðina héðan,“ bætir Stefán við og þá segir Silla: „Við ákváðum bara að stökkva út í djúpu laugina og láta verða af þessu.“ Strax daginn eftir hófust þau handa við að leggja línurnar um fyrirkomulag hátíðarinnar; hvernig hátíðin ætti að vera, hvar, hvenær, umræða um tónlistarstefnu og þess háttar. VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir Gera þetta af hugsjón og skemmtilegheitum : Rætt við skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Gærunnar Tónlistarhátíðin Gæran fer fram í þriðja sinn á Sauðárkróki dagana 23. – 25. ágúst. Á hljómsveitalistanum má sjá fjölmarga flotta tónlistarmenn og hljómsveitir og útlit fyrir sannkallaða tónlistarveislu. Mikil spenna ríkti í herbúðum Gæruliða þegar Blaðamaður Feykis hitti þá fyrir en þar eru undirbúningur á fullu fyrir hápunkt ársins – tónlistarhátíðinni sjálfri. Spenna í herbúðum Gæruliða „Við tókum þá ákvörðun að hafa allar tónlistarstefnur – að tónlistarhátíðin yrði fyrir alla,“ segir Stefán. „Við lögðum líka strax uppi með það að hátíðin myndi verða ákveðin stökk- pallur fyrir ungar hljómsveitir að koma fram í almennilegu kerfi og með stærri nöfnum,“ segir Silla. Öll voru þau sam- mála því að í kjölfar þess að Gærunni var komið á laggirnar hefur gróska í tónlistarlífinu aukist á svæðinu – margar nýjar hljómsveitir sprottið upp og meira tónlistarlíf. Gæruliðar skoðuðu mögu- leikann á því að því að halda tónlistarhátíðina á Vélaverk- stæði KS en þegar það var rifið þurftu þau að kanna önnur mið. „Ég hafði unnið hjá Loðskinn í mörg ár og vissi að húsnæðið hjá þeim væri laust í tvær til þrjár vikur á ári áður en sláturtíð hefst og datt í hug að spyrja Gunnstein og Siggu hvort við mættum ekki halda tónlistarhátíð hjá þeim. Það var engin spurning, hann svaraði strax já á staðnum,“ útskýrir Stefán og bætir við að hjónin Gunnsteinn Björnsson og Sigríður Káradóttir, eigendur Loðskinns, hafa reynst þeim mjög vel. Þau hafa séð um ýmis verk sjálf sem hefur þurft að framkvæma við undirbúning hátíðarinnar, s.s. að rífa niður veggi, útbúa hurðir og bruna- útganga. „Í tískugeiranum þykir þetta líka mjög skemmti- legt framtak hjá Loðskinn, að hýsa tónlistarhátíð, þar sem tónlist og tíska er svo nátengt,“ segir Stefán og brosir. Í kjölfarið kom nafnið nokkurn veginn af sjálfu sér. Frá vinstri: Silla, Stefý, Stefán og Fúsi.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.