Feykir - 16.08.2012, Síða 8
8 Feykir 30/2012
-Ég stundaði nám í lögfræði við
lagadeild Háskólans í Reykja-
vík. Sérhæfing mín að loknu
námi liggur helst innan skaða-
bótaréttar, félagaréttar, stjórn-
sýsluréttar, eignaréttar, saka-
málaréttar og fullnusturéttar.
Ég vil nota tækifærið og
hvetja alla þá sem hyggja á
háskólanám til að kynna sér vel
það sem Háskólann í Reykjavík
hefur upp á að bjóða. Þegar rætt
er um háskólanám, þá setja
námsgæðin, námskröfurnar og
nútíma kennsluaðferðir setja
skólann í ótvíræða forystu á því
sviði hérlendis. Námsfram-
boðið er mjög áhugavert og
kennararnir afbragðs góðir.
Síðast en ekki síst er umhverfið
notalegt og alltaf eitthvað
skemmtilegt að gerast í félags-
lífinu sem er ekki síður mikil-
vægt. Sú þekking sem ég aflaði
mér í HR er þegar farin að
nýtast vel í starfi og má því
fullyrða að námið hafi verið
hagnýtur undirbúningur fyrir
komandi verkefni í atvinnu-
lífinu.
Hvað varstu lengi í náminu?
-Á haustdögum árið 2007 hélt
ég suður á bóginn, bæði ungur
og saklaus, eftir að hafa lokið
stúdentsprófi við Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki um vorið. Lög-
fræðinám í dag skiptist upp í
þriggja ára grunnnám til
skilaði sér svo í góðum náms-
árangri eftir hinum hefð-
bundna mælikvarða. Í mínum
huga skipta einkunnir þó ekki
öllu máli, heldur hversu góðan
skilning og tök þú hefur á
námsefninu.
Ég útskrifaðist með hæstu
meðaleinkunn frá HR og fékk
við útskriftina peningaverðlaun
frá LOGOS lögmannsþjónustu
fyrir bestan samanlagðan
námsárangur í grunn- og
meistaranámi. Þá fékk ég
bókarverðlaun frá Háskólanum
í Reykjavík fyrir framúrskar-
andi námsárangur í meistara-
námi í lögfræði. Auðvitað er
ánægjulegt að fá slíkar viður-
kenningar – ekki síst þegar ljóst
er að baki liggja ófáar vinnu-
stundirnar. Árangurinn sýnir
jafnframt að ekki skiptir öllu
máli hvort þú komir úr litlum
framhaldsskóla eða stórum, því
þegar öllu er á botninn hvolft er
það undir hverjum og einum
einstaklingi komið hvort hann
hefur metnað til að standa sig
vel.
Hvað tekur nú við?
-Nú í haust er á dagskránni að
sækja svokallað héraðsdóms-
lögmannsnámskeið (hdl.-nám-
skeið). Um er að ræða tveggja
mánaða námskeið til undir-
búnings prófi til að öðlast
réttindi til að starfa sem hér-
aðsdómslögmaður. Almenn-
ingur áttar sig kannski ekki
alltaf á muninum á lögfræðingi
og lögmanni, en hann liggur
einmitt í þessu námskeiði, en til
að mega starfa sem lögmaður
þarftu að vera orðinn lög-
fræðingur sem og að ljúka
umræddu námskeiði.
Samhliða lögfræðináminu
hef ég starfað í þrjú ár á lög-
mannsstofu í Reykjavík, sem í
dag heitir CATO lögmenn. Á
sumrin hefur hugurinn þó
ávallt leitað í heimahagana og
hef ég starfað með Stefáni
Ólafssyni hæstaréttarlögmanni
hér á Norðurlandi vestra. Ég
hef fengið starfstilboð frá
CATO og mun að námskeiðinu
loknu starfa hjá þeim sem
lögmaður.
Hefurðu stefnt lengi á
lögmennskuna?
-Já, ótrúlega lengi. Upp í hug-
ann kemur það augnablik
þegar ég var að hefja nám í
FNV á haustdögum árið 2004.
Þá hélt ég til fundar við hana
Ingileif (núverandi skólameist-
ara), sem þá var námsráðgjafi í
skólanum. Ég settist niður og
sagði nokkuð ákveðnum rómi
að ég ætlaði í lögfræði að
stúdentsprófi loknu og því
þyrfti hún að leiðbeina mér
hvaða námsbraut hentaði best
til undirbúnings því námi. Ég
þóttist sjá á svipbrigðum Ingi-
leifar að henni þótti skemmti-
legt hversu ákveðinn ég var á
þessum tímapunkti að fara í
lögfræði og að hún hefði fengið
óákveðnari nemendur en mig
inn til sín. Ég fékk að sjálfsögðu
góð ráð varðandi hvaða
námsbraut hentaði best og
nýttist námið í FNV vel sem
grunnur undir lögfræðinámið.
Það má því segja að lögmað-
urinn hafi lengi blundað í mér.
Hvað gerðir þú í
tómstundum?
-Líf laganemans er ekki alltaf
dans á rósum og oft þarf að
nýta kvöldin og næturnar í að
vinna verkefni og lesa torskilda
lögfræðidoðranta. Aftur á móti
er mikilvægt að eiga sér líf utan
bókanna, enda snýst lögfræðin
líka um að skapa góð tengsl og
vinabönd.
Í frístundum mínum hef ég
lagt kapp á að halda mér í góðu
líkamlegu ásigkomulagi. Ég á
ekki langt að sækja íþróttagenin
og hef lagt stund á bæði
körfubolta og fótbolta þegar
færi hafa gefist. Hreyfing er
mér afskaplega mikilvæg og í
raun nauðsynleg til að halda
góðri einbeitingu og fullum
afköstum yfir daginn. Í seinni
tíð hefur áhugi minn á golf
íþróttinni farið vaxandi sem og
áhugi á veiðiskap. Þá hef ég
töluverðan áhuga á búskap, þá
sérstaklega hestamennsku og
fer reglulega í útreiðartúra með
karli föður mínum, en þeir
túrar eru jafnframt liður í
undirbúningi fyrir göngur á
Miðfirðingaafrétti sem ég hef
farið í nánast á hverju hausti
undanfarin áratug.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri?
-Já, ég vil koma þeim skila-
boðum til Skagfirðinga og
annarra íbúa Norðvesturlands
að þó svo aðalstarfstöð mín
verði í Reykjavík þá er ég ávallt
reiðubúinn að sinna verkefnum
hér fyrir norðan og því vel-
komið að setja sig í samband
við mig sé þörf fyrir lögfræði-
aðstoð. Sér í lagi með þá stað-
reynd í huga að ekki er starfandi
lögmaður með fasta viðveru í
Skagafirði. Að lokum vil ég
koma á framfæri þökkum til
fjölskyldu minnar fyrir stuðn-
inginn í gegnum laganámið, þá
sérstaklega til foreldra minna
og til ömmu og afa á Skag-
firðingabrautinni.
VIÐTAL Páll Friðriksson
Arnar Ingi Ingvarsson
stóð sig framúrskarandi vel í HR
Stefndi strax
á lögfræði
Frá útskrift Arnars Inga.
Brátt fara skólar landsins af stað að nýju eftir sumarfrí og
margir sem setjast á skólabekk. Oft er talað um að
framhaldsskólanemar viti ekki hvert á að stefna er í háskóla er
komið og þreifa fyrir sér í ýmsum greinum. Það á að sjálfsögðu
ekki við um alla. Arnar Ingi Ingvarsson frá Sauðárkróki
stundaði nám í lögfræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík og
útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn úr skólanum ásamt því
að hljóta verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í
meistaranámi í lögfræði sem og fyrir bestan samanlagðan
námsárangur í grunn- og meistaranámi. Feykir hafði samband
við Arnar Inga og forvitnaðist um þennan glæsilega árangur
hans. Lesendum til glöggvunar eru foreldrar Arnars Inga þau
Ingvar Magnússon og Hjördís Ingimarsdóttir á Sauðárkróki.
bakkalár gráðu (BA) og tveggja
ára meistaranám til meistara-
gráðu (ML). Flestir sem ljúka
grunnnámi halda áfram og
klára meistaranámið og því má
segja að um fimm ára nám sé
að ræða. Ég hélt mínu striki allan
tímann og útskrifaðist þann 9.
júní sl. við glæsilega athöfn í
Eldborgarsalnum í tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu Hörpunni.
Hvernig gekk námið?
-Það er óhætt að segja að vel
hafi gengið í náminu. Ég setti
mér þau markmið í upphafi að
reyna skilja til hlítar það
námsefni sem ég var með í
höndunum hverju sinni. Þau
markmið náðust oftast sem