Feykir


Feykir - 23.08.2012, Blaðsíða 16

Feykir - 23.08.2012, Blaðsíða 16
-veisla í sumarbústaðnum! Taktu Vilko með í ferðalagið! Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 31 TBL 23. ágúst 2012 32. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Skemmtilegir Kántrýdagar að baki Skagaströnd Kántrýdagar voru haldin hátíðlegir um síðustu helgi en samkvæmt Árna Geir Ingvarssyni er skemmtileg helgi að baki - þar var margt að sjá og veðrið mjög gott. „Bíópólsúpan var sterk og bragðgóð, Jónsstígur vígður af Maríu Magnúsdóttur ekkju Jóns og mömmu Magnúsar sveitastjóra, vatnsfótboltinn og karamellu- flugið tókust vel, dorgveiðin líka, Gildran og hinar hljómsveitirnar stóðu fyrir sínu, Óskar Einarsson var heiðraður á Gospelltónleikunum o.fl. o.fl.“ segir Árni Geir en hann opnaði ljósmyndasýninguna sína „Mannlíf á Skagaströnd“ í íþróttahúsinu þar sem 400 manns lögðu leið sína. Meðfylgjandi myndir tók Árni Geir á Kántrýdögum en fleiri myndir má finna á heimasíðu hans: arnigeir.123.is. /BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.