Feykir - 06.09.2012, Qupperneq 6
6 Feykir 33/2012
UMFJÖLLUN Páll Friðriksson
Hitaveita á Skagaströnd
Dagana 31. ágúst og 1. september sl. var efnt til Hitaveitudaga á Skagaströnd,
þar sem íbúum gafst kostur á að kynna sér ýmis mál er tengjast hitaveituvæðingu
staðarins og hvernig framkvæmdir við lagningu hitaveitunnar stendur en þær eru
þegar hafnar. Ákvörðun um hitaveitu til Skagastrandar var tekin í lok síðasta árs og
var aðdragandinn nokkuð langur eins og kom fram í ávarpi Tryggva Þórs Haraldssonar
forstjóra RARIK við setningu Hitaveitudagana. Feykir fékk Tryggva Þór og Adolf
H. Berndsen til að fara yfir stöðuna og hvernig framtíðarhorfur hitaveitumála á
Skagaströnd líta út í dag.
Jákvæð áhrif fyrir búsetu
og framtíðarhorfur
ekki hefur enn verið kallað
eftir tengibeiðnum, það verði
gert þegar farið verður af
stað í innanbæjarkerfið. -En
við munum í öllu falli koma
heimtaugum inn í hvert hús
hvort síðan menn vilja taka
veituna eða ekki. Við erum að
horfa til þess að stofnstyrkir
sem veittir eru í þetta muni
kannski aðstoða við það.
Hagkvæmt fyrir
flesta að tengjast
Tryggvi segir það hagkvæmt
fyrir nánast alla að tengjast
hitaveitukerfinu miðað við
rafmagnskyndingu. Þó er hægt
að finna aðila þar sem það
reynist óhagkvæmt vegna lítillar
notkunar. Það sé líka misdýrt
að breyta húsunum en það eru
stofnstyrkir sem koma á móti
kostnaði. Nýlega var lögum um
stofnstyrki breytt þannig að það
er ekki lengur miðað við átta
ára rafhitunarniðurgreiðslur
heldur tólf ára sem þýðir að
meðal notandi á Skagaströnd
fær núna u.þ.b. 550 þúsund
krónur í stofnstyrki í stað 250
sem var áður. -Upphæðin byggir
m.a. á því að stofnstyrkurinn
hækkar úr átta árum í tólf ár
og hins vegar var í upphafi gert
ráð fyrir því að íbúarnir fengju
35% af styrknum en veitan
65% eins og algengast er en við
höfum ákveðið í ljósi þessarar
hækkunar að styrkurinn
-Staðan á verkinu nú er
þannig að við erum að leggja
stofnlögnina frá Reykjum að
Blönduósi og er sá áfangi á
áætlun. Við gerum ráð fyrir að
því verki ljúki núna í haust. Búið
er að byggja dælustöðina upp á
Blönduósi og er verið að semja
við aðila um frágang á búnaði
hennar, segir Tryggvi Þór er
blaðamaður Feykis ræddi við
hann á Hitaveitudögum síðasta
dag ágústmánaðar. Rarik
stendur nú í viðræðum við
Vegagerðina og Blönduósbæ
um hvernig farið verður með
lögnina yfir Blöndu en það
liggur ekki endanlega fyrir
enn þar sem ekki hefur komið
svar um hvort leggja megi
hana yfir brúna á Blönduósi.
Hugsanlega þarf því að
finna aðra leið. Verið er að
semja við landeigendur milli
Blönduóss og Skagastrandar
um lagnaleiðina þangað og
fínhönnun dreifikerfisins á
Skagaströnd er í vinnslu. -Við
gerum ráð fyrir að ljúka verkinu
að Blönduósi núna í haust en
næsta vor byrjum við á lögninni
frá Blönduósi til Skagastrandar.
Samhliða því munum við fara
í dreifikerfið þannig að næsta
sumar verður það lagt hér á
Skagaströnd og haustið 2013
verða möguleikar fyrir íbúa
að tengjast kerfinu. Þetta er
svona stóra myndin í þessu,
segir Tryggvi sem gerir ráð
fyrir því að húseigendur byrji
að tengjast kerfinu næsta haust
ef allar áætlanir ganga eftir.
Að hans sögn hefur verkefnið
gengið alveg samkvæmt áætlun
fram að þessu þó auðvitað séu
plúsar og mínusar í einhverjum
þáttum en það hefur allt jafnast
upp.
Tryggvi segir að vegalengdin
sé talverð sem vatnið þarf að
ferðast því að tæpir 14 km eru
frá Reykjum að Blönduósi og
svo 19 km frá Blönduósi að
Skagaströnd og má búast við
hitatapi á langri leið. –Já, það
er hitatap á leiðinni. Það er
gert ráð fyrir því að hitastigið,
þegar það kemur hér inn á
Skagaströnd verði um 60°C en
byggir auðvitað á því magni
sem hér verður. Til að halda
uppi hita er mikilvægt að sem
flestir tengist sem fyrst þ.e. að
flestir tengist á svipuðum tíma.
Tryggvi segir að búið sé að
ræða við íbúa um hvernig
tengingar fara inn í húsin en
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, flutti ávarp við upphaf Hitaveitudaga á Skagaströnd.