Feykir


Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 7

Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 7
38/2012 Feykir 7 tíðkast og voru menn ekki lengi að búa sig til ferðar. Haldið var af stað frá Sauðárkróki eins og leið lá, um Varmahlíð og Öxnadalsheiði, í gegn um Akureyrarbæ, yfir Vaðlaheiði, um Ljósavatnsskarð og áfram í Mývatnssveit. Eitthvað hafði ferðin gengið hægar en gert var ráð fyrir og þegar komið var að Reykjahlíð var orðið kvöldsett og urðu menn ásáttir um að leita eftir gistingu um nóttina og leggja síðan af stað aftur árla morguns. Í ljós kom að nýverið hafði hiti verið tekinn af þáverandi hóteli, það búið undir vetur og húsið orðið í raun óhæft til gistingar. Voru nú góð ráð dýr, en Pétur bóndi og hóteleigandi sá aumur á ferðalöngunum og bauð þeim upp á að sofa í stofunni á heimili sínu. Þáðu ferðalangarnir það með þökkum og bjuggust til náða. Árla morguns á sunnudeginum héldu þeir svo áfram ferðinni austur yfir Námaskarð og um Mývatnsöræfi allt austur að Hrossaborg þar sem vegamót eru og leiðin inn í Herðubreiðarlindir liggur til suðurs meðfram Jökulsá á Fjöllum lengst af. Einhver snjór hafði komið og gekk ferðin því hægar en menn hefðu vonast til. Ferðalangarnir höfðu nokkurn beyg af ánum á leiðinni sem fara þarf yfir, Grafarlandaá og Lindaá og reyndist sú síðarnefnda nokkur farartálmi, en hana hafði ekki lagt, enda lindarvatn í henni eins og nafnið bendir til og áhrifa uppsprettanna gætir í þeim mæli á vaðinu, að ána leggur ekki nema í aftökum. Voru því skarir að henni og gekk seigt og fast að komast fram af skörinni að norðan og ekki síður upp að sunnanverðu. Allt gekk þetta þó um síðir og óku menn suður eyrarnar upp að hrauninu, sunnan lindanna. Gerðist nú vegurinn seinfarinn, sem hann er reyndar enn þótt mikið hafi hann verið lagaður síðan. Ekki er ferðalöngunum neitt sérstaklega minnisstætt frá þessum hluta leiðarinnar nema að þegar suður á vikrana kom, var færið talsvert farið að þyngjast. Einnig var veðurútlit orðið frekar ískyggilegt og byrjað að slíta snjó úr lofti. Eftir allt sitt baks má nærri geta að þeir urðu undrandi þegar á vegi þeirra varð Moskovitsj fólksbifreið frá Akranesi á sumardekkjum, enda þekktust vetrardekk lítt eða ekki á þessum tíma og ekki hafði bifreiðarstjórinn keðjur með hvað þá önnur hjálpartæki. Klæðnaður hans var þesslegri að hann væri á leiðinni á dansleik í þéttbýli, dansskór, svört föt, hvít skyrta og bindi. Okkar menn losuðu fólksbílinn úr þeirri festu, sem hann var í og héldu síðan áfram með góð orð um að verða þeim að liði síðar ef með þyrfti. Það þyngdi stöðugt í lofti, snjókoman varð að hríðarveðri og það fór að blása af norðri og skafa. Skagfirðingunum tókst þó að komast að hrauntungunni, sem næst var leiðinni og staðnæmdust þar. Einhver deili þóttust þeir sjá að fleiri ferðalangar væru staddir innar og nær eldstöðvunum, m.a. voru þarna mannlausir bílar. Hraunið valt þarna fram með hægum en jöfnum hraða og mældist þeim framskrið þess um einn metri á mínútu hverri. Sérkennilegur dynur eða drunur fylgdu framskriði hraunsins og í stálinu glitti í rautt. Óþægilega heitt var þegar nær var komið og lagði hitann alllangt frá hraunstraumnum. Hraunstraumurinn var samt nægilega hraður til þess að snjórinn náði ekki að bráðna áður en hraunið lagðist yfir hann. Hraunið var þegar búið að loka vegarslóðanum, og þar sem sögumenn okkar voru ekki kunnugir á þessum slóðum, það dimmdi hratt og skyggnið var orðið lélegt, afréðu þeir að lengra yrði ekki haldið að sinni, þótt freistandi hafi verið að reyna að komast lengra og að eldstöðinni. Vegna ókunnugleika síns gátu þeir ekki tekið áhættuna af því að aka utan slóða áfram innar eftir, því miklar líkur voru á að þeir myndu lokast inni og ekki komast lönd né strönd. Eftir að hafa tekið myndir og reynt að átta sig á aðstæðum, tóku þeir ákvörðun um að snúa við og halda aftur heim, því þeir höfðu þó séð hraunið renna og það var í sjálfu sér næg upplifun og í raun ógleymanleg. Í bakaleiðinni hittu þeir aftur á Moskovitsjinn og áhöfn hans og hjálpuðu þeim áleiðis til byggða. Veðrið skánaði þegar nær dró þjóðveginum og heimferðin varð tíðindalítil. Heim á Sauðárkrók komu þeir svo aðfararnótt mánudagsins, að sönnu nokkuð þreyttir og slæptir en ánægðir með upplifunina. Því er svo við að bæta, að nokkrum dögum síðar átti einn úr þessum hópi, Sigurður R. Antonsson, þess kost að komast með í flugvél Tryggva Helgasonar frá Akureyri ásamt Inga Sveinssyni, vélsmið og Hákoni Pálssyni, þá rafstöðvarstjóra í Gönguskarðsárvirkjun, í björtu og fögru veðri að gosstöðv- unum. Var sú ferð ógleymanleg með öllu og ekki síst sá hluti ferðarinnar þegar Tryggvi flaug lágflug yfir Tröllaskagann í björtu og fögru vetrarveðri og farþegarnir gátu virt fyrir sér úr návígi hið fjölbreytta landslag hans. Þeir ferðalanganna, sem eftir lifa, komu saman á heimili eins þeirra fyrir nokkru og rifjuðu upp ferðalagið. Framanritað var skráð eftir frásögnum þeirra af þeim Ágústi Guðmundssyni og Þorkeli Guðbrandssyni. Glóandi hraunið var ógleymanleg sjón. Framskrið hraunsins mátu ferðalangar um einn meter á mínútu. Hér hefur Stefán Pedersen komið sér fyrir í stað Vals Ingólfs. Jeppinn sem ferðalangar fóru í á gosstöðvarnar er ólíkur þeim torfærutröllum sem nú þeysa um hálendið. Hér er hann á öðrum slóðum en sagt er frá hér. Þrautagóður jeppi og talstöðin á sínum stað.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.