Feykir


Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 9

Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 9
38/2012 Feykir 9 Auglýsing um skipan í kjördeildir í Sveitarfélaginu Skagafirði Við ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd, sem fram fer laugardaginn 20. október nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir: Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli, þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00 Kjördeild í Bóknámshúsi FNV, þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps – kjörfundur hefst kl. 09:00 - Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði, þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00 Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum, þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00 Kjördeild í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi, þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00 Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum, þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00 Kjördeild í Varmahlíðarskóla, þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps -kjörfundur hefst kl. 10:00 Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, kjörfundur hefst kl. 13:00 Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði. Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni til kl. 13:00 á kjördag, 20. október 2012. Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV. Yfirkjörstjórn (má líka nota önnur ber) 4 dl rjómi Aðferð: Léttþeytið rjóma. Setjið 125 g sykur í og vatn í pott og sjóðið upp að 21°C. Þeytið eggjahvítur og hellið sykursírópi, í smá skömmtum, út í eggjahvíturnar á meðan verið er að þeyta þær eins og marens. Þeytið saman eggjarauður og 20 gr af sykri. Blandið hindberjamauki var- lega saman við eggjarauðurnar, því síðan saman við marensinn og létt þeyttum rjóma varlega saman við. Nauðsynlegt að gera gætilega til að missa ekki of mikið loft úr ísnum. Setjið parfait í form (gott að nota stórt sílikonform) og frystið. Takið út tímanlega áður en þið borðið. Einnig er gott að búa til berjasósu til að bera fram með. ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berglindth@feykir.is Hrund og Helgi kokka Góður eftirréttur mikil- vægur endapunktur á frábærri máltíð Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru Hrund Pétursdóttir og Helgi Sigurðsson á Sauðárkróki. Þau skora á Kolbrúnu Grétarsdóttur og Halldór Einarsson á Úlfsstöðum að koma með næstu uppskriftir. „Á okkar heimili er oft lagt mikið upp úr því að búa til góðan eftirrétt ef eitthvað stendur til. Góður eftirréttur er mikilvægur endapunktur á frábærri máltíð. Hér eru nokkrir uppáhalds og einfaldir réttir sem þið getið snarað fram um helgina – verði ykkur að góðu.“ EFTIRÉTTUR 1 Vanillu- pannacotta með berjasósu 4 dl rjómi 2 ½ dl kaffirjómi 150 gr sykur 1 stöng vanilla 5 blöð matarlím Aðferð: Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn, í 5-10 mín. Setjið rjóma, kaffirjóma og sykur í pott. Kljúfið van- illustöng, skafið fræin innan úr og setjið í pottinn. Hitið við vægan hita að suðu. Takið pottinn af hellunni áður en suðan kemur upp. Kreistið vatnið úr matarlíminu, setjið það út í pottinn og hrærið þar til það leysist upp. Setjið í form (við notum alltaf sílikon muffins form) og frystið. Berjasósa: 150 gr ber (við notum yfirleitt frosin jarðaber eða hindber) 50 gr sykur Aðferð: Setjið berin í mat- vinnsluvél og maukið. Setjið í pottinn, ásamt sykrinum, og hitið við vægan hita þar til sykurinn er uppleystur. Kælið. Svo er bara að smella búðingnum úr formunum á disk og setja sósu og fersk ber ofan á. EFTIRRÉTTUR 2 Rababarasprengja Rabarbarasósa: 300 gr rabarbari 7 msk vatn ½ vanillustöng 5 msk hrásykur Aðferð: Skerið rabarbarann í frekar stóra bita og setjið í pott ásamt vatni, sykri og vanillustönginni. Skerið van- illustöngina eftir endilöngu og skafið úr henni fræin ofan í pottinn svo ekkert af bragðinu fari til spillis. Má sjóða í svona 30 mín. eða þar til hann er orðinn vel maukaður. Sigtið saftina frá í sér skál. Kælið bæði saft og mauk. Þeytið 250 ml rjóma og myljið út í hann makkarónukökur (má líka nota marens eða eitthvað annað kex í staðinn). Setjið svo lagskipt í eina stóra skál eða margar litlar, rjóma og rababaramaukið. Látið standa í 60 mín í kæli. Svo er þetta borið fram með rababarasósunni. EFTIRRÉTTUR 3 Hindberjapairfait 125 gr sykur 40 ml vatn 2 stk eggjahvítur 2 stk eggjarauður 20 gr sykur 300 gr hindberjamauk EFTIRRÉTTUR 4 Skyrdesert 500 ml vanilluskyr 1 egg 500 ml rjómi Aðferð: Hrærið vanilluskyrið með einu eggi. Þeytið rjómann og blandið saman. Myljið marensbotn í form og hellið blöndunni yfir. Látið standa í kæli í góða stund. Áður en rétturinn er borinn fram þá skerið niður mars, snikkers eða annað uppáhalds súkkulaði. Skerið einnig niður ávexti að eigin vali. Blandið saman og setjið yfir rjóma- skyrblönduna. Setjið nógu mikið til að hylja fatið. Einfalt og rosalega gott. Verði ykkur að góðu! Verðlaunakrossgáta Búið að draga Dregið hefur verið úr réttum lausnum í verðlaunakrossgátu Feykis í 35. tbl. og fá hinir heppnu send gjafabréf í pósti Leikhúsferð fyrir fjóra á leikritið Fíusól sem Leikfélag Sauðárkróks setur upp hlýtur Halldór Gunnar Ólafsson á Skagaströnd og strigaprent allt að hálfum fermetra kemur í hlut Jóns Inga Sigurðssonar á Sauð-árkróki. Feykir óskar vinningshöfum til hamingju og þeim fjölmörgu sem sendu inn lausnir þökkuð þátttakan. Lausnarorðið er: Ertu áskrifandi. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.