Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 11
38/2012 Feykir 11
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
á rétt á því að gorta smávegis.
Spakmæli vikunnar
Stundin er alltaf rétt til
að gera hið rétta.
- Martin Luther King Jr.
Ótrúlegt en
kannski satt
Sudoku
Kristgerður Kolvör kynntist Sveinbarða Diðriki manni
sínum í Laufskálarétt árið 1982. Svo merkilegt sem það
var nú þá fann hún hann nánast örendan í eigin spýju
undir réttarvegg og af einhverjum óútskýranlegum
ástæðum fannst henni hann voða krúttlegur. En þó fyrstu
kynni lofuðu ekki góðu átti það síðar fyrir Sveinbarða að
liggja að selja íslenska ríkinu hugvit sitt fyrir marga milljarða.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Hvort peningar skapi hamingju eða ekki er erfitt að
mæla en Vísindavefurinn svarar þó spurningunni
á þessa leið: „Já, en að takmörkuðu leyti í þróuðum
löndum eins og Íslandi.“ Það er kannski ekki ótrúlegt
en á 75% bandarískra heimila, stjórna konur
peningamálunum og sjá um að borga reikningana.
Krossgáta
Feykir spyr...
Ætlar þú
að fara á
Bændadaga
í Skagfirð-
ingabúð?
[spurt á Sauðárkróki]
BETTÝ ÖGMUNDSDÓTTIR
-Já, ég ætla að versla læri,
hrygg og kartöflur.
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR
-Já, ég ætla að fylla bílinn
af kjöti og koma því til
Reykjavíkur, til sona minna og
barnabarna.
JÓN ÍSLEIFSSON
-Nei, ég bý ekki á svæðinu,
ég bý á Akureyri.
SIGURJÓN GESTSSON
-Já, ég ætla að kíkja á
matvöruna sem verður í boði,
þá helst kjötið og ostana.
AGNES BÁRA & ELÍSA BJÖRK
-Já, við ætlum að smakka
matinn og hitta fólk.
Fröken Fabjúlöss
[ frokenfab@feykir.is ]
Þrír bestu
maskararnir
Kæra frk. Fab. Nú er sú staða komin upp
hjá mér að maskarinn minn er orðinn
gamall og þurr og því þarf ég að fjárfesta
í nýjum. En úrvalið er svo rosalega mikið
og ég því með svakalegan valkvíða.
Hverju mælir þú með?
Fröken Fabjúlöss: Maskari er ein mikil-
vægasta varan þegar kemur að förðun.
Bara það að sletta á sig maskara þegar
dagurinn er grár, skapið í lamasessi og
útlitið eftir því getur hresst hina almennu
pjattpíu upp um alveg þónokkur desibil.
Einnig er alveg merkilegt hversu miklu
máli þetta litla tól skiptir heildarlúkkið í
förðun. Förðunin er varla marktæk, og þá
sérstaklega smokey, fyrr en maskarinn er
kominn á.
Fröken Fabjúlöss er maskaraelskandi
mikill og á yfirleitt 2-3 gerðir í einu, eftir
því hvernig hún vill að augnhárin bærist
í golunni. Í engri sérstakri röð kemur
hérna upptalning hennar á uppáhalds
möskurunum.
Lancome Hypnose Doll Eyes/Star/
drama og svo framvegis og svo
framvegis
Hypnose maskar-
arnir frá Lancome
er að mati Fröken
Fabjúlöss ef til
vill ein sú falleg-
asta gjöf sem
nokkurntímann
hefur verið færð
förðunariðnaðin-
um! Hypnose-
inn lengir augnhárin og þykkir, þekur
augnhárin dásamlega og síðast en ekki
síst: hann kekkist ekki!! Í bókum Fröken
Fabjúlöss er það ansi stór plús!
Maybelline Colossal Volume Express
Þennan má líka alltaf finna í meiköpp-
buddunni hjá Fröken Fabjúlöss! Hann
er svo dásamlega svartur eitthvað, og er
eiginlega alveg ómissandi þegar Frökenin
er í fílíng fyrir að vera smokey og seiðandi
Ef spurning brennur á þínu tískusláandi hjarta kæri
lesandi, vertu þá ekki feiminn við að senda Fröken
Fabjúlöss spurningu, hún mun svara eftir bestu getu!
þar sem hann þykkir
augnhárin ofsalega
vel, og lengir líka.
En tendensinn til að
þykkja er það sem
Fröken Fabjúlöss
sækist eftir hjá
Colossal! Það þarf
reyndar svolítið að
læra á burstann á
honum þar sem
hann er í stærri kantinum, en þegar búið er
að komast upp á lag með brúkun er þetta
kostagripur mikill og skyldueign allra
kvenmanna! Og svo er hann alveg í billegri
kantinum!
YSL Mascara Singulier Waterproof
BESTI-MASKARI-
EVER!!! Fröken
Fabjúlöss notaði í
mörg ár Singulier
maskarann frá
YSL, og alltaf No4
Vibrant Violet,
eða alveg argandi
fjólubláan! Það eru
örugglega svona
7 ár síðan Fröken
Fabjúlöss átti þennan kostagrip seinast,
þannig að kannski hefur einhverskonar
glamúrþoka umlukið minningu maskar-
ans, en ef minnið leikur Frökenina ekki
grátt hefur þessi maskari allt sem góður
maskari þarf að hafa upp á að bjóða til
að ýkja upp augnhárin: Þykkir, krullar,
lengir og bætir við auka fabjúlösma! Og
Fröken Fabjúlöss átti hann í fjólubláu...
FJÓLUBLÁU!!! [segir hún með söknuð í
hjarta]. /HV