Feykir


Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 1

Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 1
fff BLS. 6-7 BLS. 9 Gísli G. Magnússon heldur með Arsenal Þú laumaðir inn einu BLS. 5 Skemmtileg frásögn í opnu Feykis Ferð að Öskugosinu í október 1961 Helgi og Hrund eru matgæðingar vikunnar Góður eftirréttur mikilvægur endapunktur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra 38 TBL 11. október 2012 32. árgangur : Stofnað 1981 KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200 G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N Hér er ný, sneggri MacBook Air Jíha! GoPro er leiðandi merki í heiminum á sviði myndavéla sem nota má við alls konar íþróttir eða jaðarsport og í raun allt sem mönnum dettur í hug að gera. Eyrarlandi 1 530 Hvammstanga Sími: 451 2230 / 894 0969 Fax: 451 2890 Netfang: bilbu@simnet.is BÍLA- & BÚVÉLASALAN Þau voru fjörug systkinin Jana og Neró þegar eigendur þeirra, Pétur Ingi Björnsson og Jón Daníel Jónsson, fóru með þau á skíðasvæði Tindastóls á dögunum. Hundarnir eru fjögurra mánaða hvolpar af beagle ætt og finnst fátt skemmtilegra en njóta samvista hvor af öðrum. Mynd: Pétur Ingi Björnsson Kaup á nýjum tækjum í ákveðnum farvegi Mikið um að vera í Sauðárkróksbíói Það hefur mikið verið að gera í Króksbíói undanfarið en kvikmyndagerðarhópur FNV, í samvinnu við RIFF og Króksbíó á Sauðárkróki, sýndu fjórar myndir frá RIFF hátíðinni sem haldin var í Reykjavík í síðustu viku. Myndirnar vöktu mikla athygli, ekki síst heimildarmyndin um Louise og Martine Fokkens sem eru eineggja tvíburar og vel þekkt andlit í Rauða hverfinu í Amsterdam. Þær voru vændiskonur í yfir fimmtíu ár og losnuðu undan oki melludólganna sinni, ráku eigið hóruhús, og stofnuðu fyrsta óformlega verkalýðsfélag vændiskvenna. Þá hefur mynd Baltasar Kormáks, Djúpið verið til sýninga og verður meðal annars sýnd í kvöld og hefur verið fín ásókn í hana að sögn Sigurbjörns Björnssonar bíóstjóra. Annað kvöld verður annarri íslenskri mynd varpað á sýningartjaldið en það er spennumyndin Blóðhefnd og fjall- ar um glæpagengi sem tengjast man- sali á Íslandi. Á sunnudaginn verður íslenska barna og fjölskyldumyndin Ávaxtakarfan sýnd og aðra helgi verður heimildarmynd Jóns Karls Helgasonar, Sundið, sýnt en hún verður frumsýnd í Bíó Paradís 18. október. Fjallar myndin um æsilegar raunir tveggja Íslendinga, Benedikts Lafleur sem búsettur er á Sauðárkróki og Benedikts Hjartarsonar, sem keppa að því að verða fyrsti Íslendingurinn til að synda yfir Ermarsundið. Myndskeið eru tekin upp í Skagafirði og kann myndin að vekja athygli á sjósundi á svæðinu. Bara íslenskar myndir Með inngripi tækninýjunga er ljóst að Ísland verður filmulaust bíóland í lok næsta árs og þurfa því kvikmyndahús landsins að fjárfesta í dýrum tækjum til að geta sýnt myndir í framtíðinni. Sigurbjörn segir að Króksbíó geti nú aðeins sýnt íslenskar myndir, fyrir utan þessar frá RIFF, upp á náð Skottufilm sem hefur lánað hágæða myndvarpa til sýninganna en kaup á þar til gerðum bíósýningatækjum eru í ákveðnu ferli. Segir Sigurbjörn að fjármögnun á þeim pakka sé langt kominn enda mikill vilji til að halda úti bíói á Króknum því það gegni ákveðnu menningarlegu hlut- verki. /PF Ekkert smá gaman í snjónum

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.