Feykir - 01.11.2012, Page 3
41/2012 Feykir 3
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir kostir
til að ávaxta spariféð sitt
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS-bókin er með 2,25% vexti,bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð
og óbundin 3,50% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
KS INNLÁNSDEILD
Það skiptir máli hverjir stjórna
Í stórviðrum reynir á
burðarþol mannvirkja og getu
manna. Á því kjörtímabili
sem senn er á enda hefur hrikt
í stoðum samfélags okkar.
Þegar ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttir tók við stjórnar-
taumum vorið 2009 beið
hennar gríðarstórt verkefni: Að
bjarga Íslendingum frá örbirgð,
endurreisa hrunið fjármálakerfi
og hefja nýja samfélagslega
uppbyggingu.
Hver hefði trúað því haustið
2008 að nú, fjórum árum síðar,
væri hagvöxtur á Íslandi orð-
inn einn sá mesti sem þekkist í
OECD löndum, verðbólgan
komin niður fyrir 5% og
jöfnuður meiri en á góðæris-
tímanum fyrir hrun?
Já, batinn er hafinn. Ríkis-
stjórn jafnaðarmanna og félags-
hyggjufólks hefur lyft grettis-
taki. En verkefninu er ekki
lokið. Eftir rústabjörgun
undanfarinna fjögurra ára er
brýnt að fylgja eftir áherslum
jafnaðarmanna og félags-
hyggjufólks við endurreisn
samfélagsins. Liður í því er
jöfnun skattbyrði og almennra
lífskjara, varðstaða um vel-
ferðarkerfið og ófrávíkjanleg
krafa um að arður af þjóðar-
auðlindum renni til fólksins í
landinu.
Atvinna, samgöngur,
umhverfi
Undanfarin fjögur ár hef ég
notið þess trausts að fá að þjóna
kjördæmi mínu á Alþingi
Íslendinga. Ég hef beitt mér
ötullega fyrir því að endur-
heimta sameiginlega auðlind
þjóðarinnar, fiskinn í sjónum,
með markvissri innköllun og
endurúthlutun aflaheimilda og
opnari aðgangi að veiðiréttinum
með jafnræði og atvinnufrelsi
að leiðarljósi, svo komandi
kynslóðir njóti arðs og sjávar-
byggðirnar fái endurheimt rétt
sinn til þess að nýta þá auðlind
sem skóp þær. Það mál er enn
ekki að fullu leitt til lykta, en
stórt skref var stigið með
veiðigjaldinu sem mun gera
stjórnvöldum kleift að ráðast í
stórar samgönguframkvæmdir
og styrkingu innviða á næstu
árum.
Ég er stolt af mörgu sem
áorkast hefur. Meðal mála sem
ég hef fengið að eiga ýmist aðild
eða frumkvæði að vil ég nefna:
• Aukinn upplýsingarétt
almennings í umhverfismálum
(1. flutningsmaður)
• Flýtingu Dýrafjarðarganga/
Dynjandisheiðar til ársins 2015 í
stað 2022 (Samgönguáætlun)
• Veiðigjöld í sjávarútvegi
(stjórnarfrumvarp)
• Ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðsla um nýja stjórnarskrá
• Strandveiðar
Þá eru ónefnd allmörg mál sem
enn hafa ekki náð fram að
ganga en ég hef beitt mér fyrir,
stutt eða flutt:
• Vestfirðir sem vettvangur
þróunar, rannsókna og kennslu
á sviði sjávarútvegs (1.
flutningsmaður)
• Sérgreining landshlutanna í
rannsóknum, kennslu og
atvinnuþróun (1.
flutningsmaður)
• Vísindaveiðar (1. flutnings-
maður)
• Þjóðaratkvæðagreiðsla um
fiskveiðistjórnun (1. flutnings-
maður)
• Samstarf og samskipti
AÐSENT ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR SKRIFAR
Vestur-Norðurlanda (1.
flutningsmaður, ýmsar tillögur)
• Samgöngur og flutningar við
austurströnd Grænlands (1.
flutningsmaður)
• Breyting á lögum um
nauðungarsölur, aðför o.fl. –
réttur húseigenda til að leysa til
sín að nýju húseignir vegna
ólögmætra lána (meðflutnings-
maður)
• Persónukjör (meðflutnings-
maður)
• Breytt skipan strandveiða (1.
futningsmaður)
• Jöfnun flutnings- og húshitunar-
kostnaðar
Dagana 12. – 19. nóvember
mun Samfylkingarfólk í Norð-
vesturkjördæmi velja fram-
bjóðendur sína fyrir næstu
Alþingiskosningar í skriflegri
kosningu.
Það skiptir máli hverjir
stjórna. Verkefnið framundan
er að skapa hér nýtt og betra
samfélag þar sem jöfnuður og
réttlæti eru leidd til öndvegis og
íbúar landsins njóta arðs af
auðlindum sínum.
Ég gef áfram kost á mér í
forystusveit Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjördæmi næsta
kjörtímabil. Með hugsjón
jafnaðarmanna að leiðarljósi er
ég fús að leggja mitt af mörkum
til þess að uppskeran verði sú
sem til hefur verið sáð.
Ólína Þorvarðardóttir
Alþingismaður.
Sjaldgæfur fjörugestur
Ókunnugt sjávardýr í Sauðárkróksfjöru
Það er ýmislegt sem rekur
upp á fjörur landsins eins
og allir vita og margt
forvitnilegt. Kona ein á
Sauðárkróki fékk sér
göngutúr í fjörunni og fann
skrýtið kvikindi sem hún
kannaðist ekki við. Var það
tekið með heim og reynt
að finna út hvað þarna var
á ferðinni.
Á Feyki.is hafa ýmsir velt
því fyrir sér hvað þarna er á
ferðinni allt frá hálfri bök-
unarkartöflu til bertálkna sem
að sögn Bjarna Jónssonar
fiskifræðings er tegund lin-
dýra (Opisthobranchia; undir-
ættbálkur: Nudibranchia), þ.e.
snigill sem hefur tapað skel-
inni. Dýrið var sent á
Náttúrustofu Norðurlands
vestra og sent til frekari
rannsókna vestur á firði þar
sem skorið verður úr um það
hvaða dýr þetta er. Bjarni segir
hins vegar að varla þurfi að
senda greyið þangað til að
úrskurða um það en eftir því
sem Feykir kemst næst liggja
krufninganiðurstöður ekki
fyrir ennþá. /PF
Kartafla eða bertálkni?
Hitaveituframkvæmdir á Blönduósi
Heitara vatn
Ný aðveituæð frá Reykjum til
Blönduóss var tengd í vikunni
og sú gamla aflögð.
Með nýju aðveituæðinni
hækkar hitastig vatnsins á
Blönduósi um 10 gráður og
verður allt að 70 gráður inn í
bæinn en í dreifbýli hækkar
hitastigið mismikið eftir
stöðum, segir á Húna.is.
Þrýstingurinn á vatninu í
bæjarkerfinu mun hækka um
1,5 bær með tilkomu
aðveituæðarinnar en hann
hefur þótt heldur lágur.
Samkvæmt Húna mun
hækkunin ekki hafa neinar
breytingar í för með sér hjá
viðskiptavinum. /PF
Austur Húnavatnssýsla
Rútuslys í Langadal
Rúta með átta farþega
innanborðs fór út af veginum
í Langadal upp úr klukkan tvö
í gær og hafnaði að hluta
ofan í Blöndu.
Björgunarfélagið Blanda var
kallað á vettvang, ásamt lögreglu
og þremur sjúkrabílum. Þegar
Feykir fór í prentun voru allir
farþegarnir komnir í land en vatn
flæddi inn í rútuna. Að minnsta
kosti einn var slasaður en meiðsl
hans ekki talin alvarleg. Sam-
kvæmt Landsbjörg voru að-
stæður á slysstað erfiðar, krapi og
mjög hvass vindur. /BÞ