Feykir - 24.01.2013, Side 3
03/2013 Feykir 3
Dimma og Sólstafir
á Mælifelli
Ég fór á tónleika sl. föstu-
dagskvöld og naut þar
tónlistar tveggja frábærra
rokkhljómsveita, Sólstafa og
Dimmu. Tónleikarnir voru að
mínu mati dúndurgóðir og
hittu mig nákvæmlega eins og
ég hafði væntingar til, ég
sóttist eftir kraftinum
„powerinu“, rokki í sálina og
hressandi upplifunin var
sannkölluð vítamínsprauta í
vetrardrunganum.
Ég hafði ekki hlustað á Sólstafi
áður en hafði séð og heyrt
Dimmu á tónlistarhátíðinni
Gærunni í ágúst sl., þar náði
þungarokkið mér. Ég sem hafði
aldrei lagt mig eftir að hlusta á
rokk í þyngri kantinum „fílaði“
þetta alveg í tætlur og
splúnkuný upplifunin bætti
einhverju við mig, það var því
ekki spurning fyrir mig að
mæta á þessa tónleika.
Ég ætla ekki að fara út í
lýsingar á flutningi hljóm-
sveitanna, er svo nýlega orðin
þungarokkaðdáandi að ég get
ekki tjáð mig gáfulega þar um,
en þeir skemmtu mér, strák-
arnir, bæði sjónrænt og hljóð-
rænt.
Sjálfri finnst mér nánast
súrrealískt, að fá nú, orðin
hálffimmtug, áhuga á þessari
tónlist en GÆRUNNI get ég
þakkað fyrir það. Í dag hlusta
ég mest á nýja diskinn með
Dimmu sem ég auðvitað
keypti, næst á dagskrá er að ná
í disk með Sólstöfum. Ég tek
undir orð Andreu Jónsdóttur á
Rás2 sem sagði: -lög Dimmu á
Myrkraverkplötunni bæði vel
samin og útsett og allur hljóð-
færaleikur góður en gítar-
leikurinn einstaklega glæsi-
legur. Þar fyrir utan er sveitin
frábær á sviði.
Það var hressandi að fá
þessar tvær hljómsveitir hingað
á Krókinn og eiga rekstraraðilar
Mælifells hrós skilið fyrir.
Strákunum í hljómsveitunum
þakka ég upplifunina.
/Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Sjálfstæðismenn í NV-kjördæmiFrá lesanda
Einar leiðir listann í NV-kjördæmi
Á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins
sem haldinn var í Borgarnesi um helgina var
framboðslisti fyrir alþingiskosningarnar sem
fram fara 27. apríl samþykktur. Raðað var í
fjögur efstu sætin með kosningu sem fram fór í
nóvember. Í efstu sætunum eru:
Einar Kristinn Guðfinnsson, 57 ára
alþingismaður, Bolungarvík.
Haraldur Benediktsson, 46 ára bóndi, Akranesi.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, 46 ára
viðskiptafræðingur, Tálknarfirði.
Sigurður Örn Ágústsson, 42 ára forstjóri,
Blönduósi.
Sara Katrín Stefánsdóttir, 27 ára
geislafræðingur, Skagafirði.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 25 ára
lögfræðingur, Akranesi.
Rósa Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur,
30 ára Grundarfirði.
Heiða Dís Fjeldsted, tamningarmaður og
reiðkennari, 33 ára Borgarnesi.
Berglind Guðmundsdóttir, tanntæknir, 39 ára
Hvammstanga.
Díana Ósk Heiðarsdóttir, verslunarstjóri, 42 ára
Búðardal.
Gunnar Atli Gunnarsson, lögfræðinemi, 24 ára
Ísafirði.
Guðmundur Kjartansson, 57 ára viðskipta-og
hagfræðingur, Reykholti. /BÞ
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra
óskar eftir umsóknum um styrki
Umsóknarfrestur er til kl. 17:00, föstud. 1. mars 2013
Sækja skal um með rafrænum hætti á eyðublöðum sem fást á
vefsíðunni: http://www.ssnv.is
Á vefsíðunni liggja frammi úthlutunarreglur og nánari upplýsingar.
Einnig er velkomið að hafa samband með vefpósti á netfangið:
kata@ssnv.is eða hringja í Katrínu Maríu í síma 455 6119.
Áherslur Vaxtarsamnings Norðurlands vestra 2011 – 2013 lúta einkum að
uppbyggingu samstarfs og framgangi rannsókna og vöruþróunar á eftirfarandi
sviðum:
• Ferðaþjónustu og menningartengdum verkefnum.
• Auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra.
• Matvælum
• Sameiginlegum verkefnum sem unnin eru með öðrum vaxtarsamningum í
landinu og/eða verkefnum innan þeirra.
Að auki er horft sérstaklega til verkefna sem:
• Vel eru til þess fallin að stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir konur og
ungt fólk á svæðinu.
• Stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar á Norðurlandi vestra.
• Stuðla að virðisaukningu á sviði matvælaframleiðslu.
Verkefnin sem styrkt verða þurfa að fela í sér eflingu starfsemi viðkomandi aðila og
vera til þess fallin að fjölga störfum á Norðurlandi vestra og/eða auka þekkingu innan
svæðisins.
Verkefnin skulu unnin í samstarfi þriggja eða fleiri aðila. Skilgreina skal hlutverk og
framlag hvers samstarfsaðila.
Markmið, framtíðarsýn, framvinda og árangursmat verkefnanna skal vera vel
skilgreint.
Reikningshald vegna verkefnisins þarf að vera aðskilið öðrum rekstri umsækjenda.
Stuðningur við verkefnið getur verið allt að 50% af áætluðum heildarkostnaði þess.
Gerður er sérstakur verksamningur um framkvæmd verkefna sem hljóta stuðning, þar
er nánar kveðið á um framvindu, greiðslur og tímasetningar.
Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða til reksturs fyrirtækja eða
opinberra stofnana, auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel úthlutunarreglur og önnur gögn varðandi
samninginn. Umsóknin og fylgiskjöl hennar skulu vera á íslensku.
Sérfræðikomur
í febrúar
Frá HeilbrigðisstoFnuninni sauðárkróki
orri ingþórsson,
kvensjúkdómalæknir 7. og 8. febrúar
Haraldur Hauksson,
alm./æðaskurðlæknir 11. og 12. febrúar
sigurður albertsson,
alm. skurðlæknir 18. og 19. febrúar
bjarki karlsson,
bæklunarlæknir 25. til 28. febrúar
orri ingþórsson,
kvensjúkdómalæknir 28. febr. og 1. mars
tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Silli Geirdal, bassaleikari Dimmu og
Aðalbjörn Tryggvason gítarleikari og
söngvari Sólstafa, Aðalbjörn stökk á
sviðið og spilaði með Dimmu.
Mynd: Davíð Már Sigurðsson