Feykir


Feykir - 24.01.2013, Blaðsíða 8

Feykir - 24.01.2013, Blaðsíða 8
8 Feykir 03/2013 Margrét Helga Hallsdóttir skrifar frá Sauðárkróki Dásamlegt að vera með lítil börn á Króknum Ég gat nú ekki annað en tekið áskorun séra Guðbjargar um að taka við áskorendapenna feykis. Þar sem ég er nýbúin í fæðingarorlofi fannst mér því nærtækast að skrifa nokkur orð um það að vera ung móðir með tvö lítil börn á Sauðárkróki. Við hjónaleysin ólumst bæði upp á Króknum en fluttum svo að heiman og stunduðum nám erlendis. Það líkaði okkur mjög vel, en einhvernveginn horfðum við alltaf heim á Krók aftur og þá sérstaklega ef við myndum eignast börn. Við fluttum því heim sama ár og strákurinn okkar fæddist. Mér fannst alltaf gott að vera á Króknum, en með lítil börn er það alveg dásamlegt. Hér eru nokkuð margir á okkar reki og hefur maður því góðan félagsskap hér (með eða án barna). Einnig erum við svo heppin að bæði settin af öfum og ömmum og einnig langafi og langömmur eru búsett hér. Það er alveg ómetanlegt fyrir okkur og börnin að geta umgengist þau svona mikið. Við erum með annað barnið á leikskóla og hitt hjá dagmömmu. Mér finnst það mikið öryggi að þekkja til eða vita deili á nánast öllum þeim sem annast börnin fimm daga vikunnar. Hjá okkur gæti þetta ekki verið mikið þægilegra, en það er eitt hús á milli okkar og dagmömmunnar og í því húsi býr langamma barnanna. Það er ýmis afþreying hér á Króknum fyrir foreldra með börn á leikskólaaldri. Við erum til dæmis með bæði börnin í sundkennslu, förum oft í barnamessu á sunnudagsmorgnum, mömmumorgnar eru einu sinni í viku fyrir þá sem eru heima með krílin sín og einnig var í boði tónlistarnámskeið fyrir börn 1 árs til 6 ára síðastliðið haust svo eitthvað sé nefnt. En það sem okkur finnst hinsvegar vanta er íþróttaskóli fyrir unga krakka, það er eitthvað sem krakkar hafa gaman að, en þarf alls ekki að vera flókið. - - - - - Ég þakka fyrir mig og langar að lokum að skora á nöfnu mína, Margréti Silju Þorkelsdóttur að taka við áskorendapennanum. ÁSKORENDAPENNINN UmSj berglindth@feykir.is Heilir og sælir lesendur góðir. Það er Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum sem á fyrstu vísurnar að þessu sinni. Virðist hún hafa verið talsvert ástfangin er þessar laglegu hringhendur eru ortar. Dái ég þennan, þennan mann þrátt með penna og óði. Læt ég ennþá enn um hann eld minn brenna í ljóði. Er sem finni ilm af rós andi minn frá honum, og sem brynnu eilíf ljós yfir minningunum. Ei má veldi hans verða kalt þótt verði kveld að árum. Það er, held ég, held ég, allt hreinsað eldi og tárum. Í síðasta þætti birtust tvær vísur eftir Valdimar K. Benónýsson. Hann mun vera höfundur að þessari mögnuðu hringhendu. Ég hef fátt af listum lært - leiðir þrátt ei kunnar-, stefja sláttu brandinn bært að boði náttúrunnar. Einn af samtíðarmönnum Valda var Jón S. Bergmann. Dáði hann hagmælsku Jóns mjög mikið og orti að ég held sjö vísur í minningu hans er hann lést. Langar að birta hér þessar vel gerðu vísur og bið lesendur um að leiðrétta mig ef þeir telja þær ekki rétt með farnar. Feigðin heggur björk og blóm blandar dreggi í skálar. Yfir seggjum dauðadóm dult á vegginn málar. Út hún hringir ævi bið allt í kringum hljómar. Dapurt klingja dyrnar við dauðans fingurgómar. Dögum hljóðum dregur að dofnar gróður Braga. Jóns við ljóð er brotið blað Bergmanns þjóðarhaga. Hinstu njólu fékk hann frið feginn bóli náða. Bernskuhólinn heima við hlaut hann skjólið þráða. Margan bjó hann góðan grip gjarnan sló í brýnu, á það hjó hann sverðsins svip sem hann dró í línu. Beina kenndi lista leið lag til enda kunni. Orðin brenndu og það sveið undan hendingunni. Hans var tunga hröð og snjöll hneigð að Braga sumbli. Standa farmanns stuðlaföll stolt á dáins kumbli. Vísnaþáttur 586 Það mun hafa verið í veisluhöldum sem tilheyrðu Þorláksmessu síðasta árs sem Ingólfur Ómar orti svo ágætlega hamingjusamur. Hjá mér ærinn fögnuð finn finnst mér þarft að ljóða. Skötu treð í túla minn og teyga mjöðinn góða. Víxlhenda kemur hér næst eftir Ingólf. Brunar skeið um sollinn sjá sær um þiljur æðir. Rís og freyðir hrönnin há hríðarbylur næðir. Sá kunni vísnavinur og áður heimilismaður í Skagafirði, Kristján Runólfsson, mun hafa sent Ingólfi Ómari þessa mögnuðu hringhendu. Mín er vakin vísnaþrá vellur staka úr munni. Ennþá kvaka óðinn má orðin kraka úr brunni. Ekki stóð í þeim ágæta hagyrðingi Ingólfi Ómari að svara svo hressilegu kalli og þá sjálfsegt að nota hringhenduformið. Orðin flæða út úr þér andans gæða fóður. Upp í hæðir hæstu fer hann er æði góður. Gaman að birta fleiri vísur eftir Ingólf Ómar, held að þessi hafi ekki heyrst hér áður. Ég hef gengið grýtta slóð gegnum svalkið flotið. Drukkið stíft og faðmað fljóð freistinganna notið Það var sá ágæti Bjarni frá Gröf sem orti af mikilli hreinskilni til okkar hinna um lífshlaup sitt. Þó að ellin andann slævi ennþá hef ég dágóð spil. Lífið vakir alla ævi yfir því að vera til Eins og áður bið ég lesendur um að hafa samband við þáttinn og leggja honum til efni á nýju ári. Kveð með þessari ágætu vísu Ingólfs Ómars sem segir flest sem segja þarf við okkur vísnavini. Hljómalétt í eyrum er óðar hrindir trega. Stemman glettin gefur mér gleði yndislega. Verið þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) Landsliðsmaðurinn Axel Kárason hefur spilað frábærlega með Værloese BBK í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta á nýju ári, samkvæmt frétt á Vísi.is. Axel er með 17,5 stig að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum ársins en skoraði 9,5 stig að meðaltali fyrir áramót, hann hefur því nánast tvöfaldað meðalskor sitt frá því fyrir jól. Axel er með 20,5 framlagsstig að meðaltali í leik í janúarmánuði en auk stiganna 17,5 hefur hann tekið 6,8 fráköst og gefið 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.„Værloese BBK er búið að vinna þrjá þessum fjórum leikjum ekki síst fyrir framlag íslenska framherjan,“ segir á Vísi.is. Það sem þykir vekja þó mesta athygli er frábær nýting Axels í janúar en hann hefur nýtt 13 af 22 þriggja stiga skotum sínum í þessum fjórum janúarleikjum sem gerir 59 prósent nýtingu. Hann er líka að setja niður 3,3 þrista í þessum leikjum og hefur því ekki mátt fá opið skot fyrstu vikur nýja ársins. /BÞ Körfubolti Axel spilaði frábærlega

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.