Feykir


Feykir - 24.01.2013, Blaðsíða 4

Feykir - 24.01.2013, Blaðsíða 4
4 Feykir 03/2013 Byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra auglýsti sl. haust eftir þátttakendum í reynsluverkefni um svokallaða notendastýrða persónulega aðstoð NPA. NPA felst í því að fatlað fólk ráði sjálft það aðstoðarfólk sem það kýs að hafa í vinnu. Gunnar Sandholt félags- málastjóri í Skagafirði segir að verkefnið gangi út á það að aðstoðarfólk vinnur samkvæmt starfslýsingu sem fatlað fólk semur og samræmist lífstíl og kröfum viðkomandi. -Markmiðið er að fatlað fólk geti lifað lífi sínu, haft sömu möguleika og ófatlað fólk og hámarks stjórn á hvernig aðstoðin er skipulögð og hönnuð eftir einstaklings- bundnum þörfum og lífsstíl hvers og eins. Með því að gera samning um NPA fær notandi greiðslur í stað þjónustu, velur aðstoðarfólk, er verkstjórnandi, ákveður sjálfur hvað hann vill gera og hvernig aðstoðarfólk nýtist, segir Gunnar. Nú hafa verið undirritaðir samningar hjá fjórum aðildar- sveitarfélögum byggðasam- lagsins, fimm samningar í Skagafirði, tveir í Austur Húnavatnssýslu og einn í Dalvíkurbyggð um þetta fyrirkomulag á aðstoð. Verkefnið stendur út árið 2013 og var í sumum tilvikum komið í gang síðari hluta árs 2012. Gert er ráð fyrir að NPA verði lögbundin þjónusta árið 2014. Á meðfylgjandi mynd má líta þá nafnana Gunnar Þórðarson safnstjóra í Stóragerði og Gunnar Sandholt undirrita samning um NPA. Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráð- gjafarþroskaþjálfi í Skagafirði fylgist glaðhlakkaleg með. Gunnar Sandholt segir að Sólveig í Stóragerði hafi verið upptekin við að bera smákökudunka á borð eins og sjá má og festist því ekki á filmunni. Frekari upplýsingar um NPA má finna á vef sveitarfélags- ins Skagafjarðar www.skaga- fjordur.is /PF Söngvakeppni Sjónvarpsins um helgina Fatlað fólk ræður sjálft það aðstoðarfólk sem það kýs að hafa í vinnu Skagfirðingar meðal keppenda Samningar um NPA undirritaðir á Norðurlandi vestra Hin árlega og geysivinsæla Söngvakeppni Sjónvarpsins verður haldin um helgina og sýnd í beinni útsendingu bæði á föstudags- og laugardagskvöld næskomandi. Sigurvegari keppninnar verður svo væntanlegur fulltrúi Íslands í Eurovision keppninni sem fram fer í Svíþjóð þann 16. maí. Meðal keppenda að þessu sinni eru Skagfirðingarnir Svavar Knútur og Hreindís Ylva og munu þau vera þriðju á svið á föstudagskvöldið er þau flytja lagið Lífið snýst eftir Hallgrím Óskarsson. Þrjú lög frá hvoru undanúrslitakvöldi komast áfram í úrslit Söngvakeppninnar sem fer fram í Eldborg í Hörpu laugardagskvöldið 2. febrúar. Hverju lagi hefur verið úthlutað símanúmeri og gefst fólki kostur á að greiða þeim atkvæði í símakosningu sem að þessu sinni hefur jafnt vægi og mat dómnefndar, sem skipuð er sérstaklega fyrir Söngvakeppn- ina. Skipuleggjendur keppninnar hafa gefið það út að þeir áskilji sér rétt til að bæta sjöunda laginu við, ef ástæða þykir til. Feykir sendi Hreindísi Ylvu nokkrar spurningar og byrjaði á því að spyrja hvernig hún tengi sig við Skagafjörð. -Mamma mín er fædd og uppalin á Sauðárkróki, dóttir Erlu Gígju og Ninna. Ég var mikið á Króknum sem krakki og heimsæki ömmu og afa enn eins oft og ég get, en skiptunum hefur því miður fækkað eftir að ég flutti erlendis í nám. Ég hef sungið helling á Króknum, í dægurlagakeppnum í Sæluviku og þá alltaf lög eftir ömmu og hef tekið þátt í að setja upp m.a. 17. júní skemmtun í íþróttahúsinu og tekið þátt í ýmsum viðburðum á Króknum og þekki mikið af duglegu hæfileikafólki sem er gaman að koma og vinna með. Nú er þetta í annað sinn sem þú tekur þátt í Eurovision keppninni, er skemmtilegt að taka þátt í þessu? -Já, þetta er rosalega skemmtileg keppni. Maður hittir margt skemmtilegt fólk og fær að taka þátt í að koma nýrri íslenskri tónlist út til þjóðarinnar svo það er ekki hægt að biðja um mikið meira. Svo er ég líka mikil Eurovision manneskja og finnst æðislegt að vera í miðri hringiðunni sjálf. Keppnin er með breyttu fyrirkomulagi í ár, hvernig líst þér á það? -Mér líst bara ljómandi vel á það. Ekkert að því að breyta til annað slagið og prófa eitthvað nýtt. Þetta er mjög þétt og spennandi ferli núna, rétt rúmlega vika, á móti fimm til sex vikum sem ferlið tók frá fyrsta þætti þangað til framlagið var valið síðast þegar ég tók þátt Hvað getur þú sagt okkur um lagið? -Lagið er eftir Hallgrím Óskarsson, sem er alveg frábær lagahöfundur, samdi m.a. framlag Íslands til Eurovision 2003, þegar Birgitta Haukdal endaði í 8. sæti. Það heitir Lífið snýst og er skemmtilegt lag um að njóta alls þess sem er í kringum okkur í stað þess að einblína á allt það erfiða og það sem miður fer. Hvað er verið að gera þessa dagana fyrir utan Júróið? -Þessa dagana er ég að pródúsera stuttmynd í tengslum við leiklistarnámið mitt við Guildford School of Acting í Englandi en við höfum aldeilis verið sett utan við þægindasvið okkar því auk þess að leika í myndunum gerum við allt sjálf í fimm manna hópum, skrifum handrit, leikstýrum, framleiðum, hönnum lýsingu, stjórnum myndatöku, klippum, veljum tónlist o.s.frv. Sem framleiðandi er ég búin að standa á haus í undirbúningi og skipulagi en við fengum viku til að skrifa handrit og undirbúa tökudagana. Ég verð svo í tökum bókstaflega þangað til ég flýg heim til Íslands til að taka þátt í Söngvakeppninni og fer beint út aftur til að klippa myndina, svo það er nóg að gera. Hvert er uppáhalds Eurovision lagið þitt? -Ég er mikil Eurovision kona svo ég á alveg nokkur uppáhalds og skipti mjög reglulega um uppáhalds Eurovision lag. En framlag Króatíu árið 1998, Neka Mi Ne Svane, hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi og er yfirleitt efst á listanum. Svo eru All Out of Luck með Selmu 1999, ítalska lagið Non ho l'etá frá 1964, Nei eða já með Siggu og Sissu frá 1992 og Fångad av en stormvind sem vann fyrir Svía 1991, góð dæmi um lög sem ég held upp á. Feykir óskar þeim Hreindísi Ylvu og Svavari Knúti góðs gengis í keppninni og hvetur alla landsmenn til að vera þeim hliðholl í atkvæðagreiðslunni, enda þeirra framlag vel til fallið að fara áfram í úrslitakeppnina. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.