Feykir


Feykir - 24.01.2013, Blaðsíða 5

Feykir - 24.01.2013, Blaðsíða 5
03/2013 Feykir 5 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS Fjöldi á folaldsýningu Neista Ljósvíkingur og Þrúður þóttu best Góð þátttaka var á folaldasýningu sl. sunnudag í Arnargerði á Blönduósi, bæði hvað varðar folöld og áhorfendur eftir því sem kemur fram á heimasíðu hestamannafélagsins Neista. Helstu ræktendur á svæðinu voru mættir með yfir þrjátíu folöld og gekk sýningin vel. Dómarinn Eyþór Einarsson valdi bestu folöldin og áhorfendur einnig í hvorum flokki og voru áhorfendur sammála dómara um efsta sætið í báðum flokkum. Ljósvíkingur frá Steinnesi þótti bestur hestanna en hann er leirljós undan Óskasteini frá Íbishóli og Djörfung frá Steinnesi. Ræktandi og eigandi er Magnús Jósefsson. Þrúður frá Skagaströnd fékk hæstu einkunn hryssna en hún er brún að lit undan Þresti frá Hvammi og Þjóð frá Skagaströnd. Ræktendur og eigendur eru Þorlákur Sveinsson og Lalli ehf. Nánari úrslit er hægt að nálgast á Neisti.net. /PF Meistaradeild Norðurlands KS-deildin af stað í næstu viku Meistaradeild Norðurlands eða KS-deildin í hestaíþróttum er að hefja starfsemi sína þennan veturinn en úrtaka mun fara fram 30. janúar nk. í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Keppt verður um sex laus sæti í deildinni. Að venju verður keppt í fjór- og fimmgangi og samanlagður árangur telur. Keppnisdagar í vetur eru eftirfarandi: 20. feb. Fjórgangur 6. mars Fimmgangur 20. mars Tölt 10. apríl Skeið og slaktaumatölt Edvard Börkur Óttharsson Roburt Sallie á æfingu með Stólunum ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is Steini Brodda NAfN: Þorsteinn Tómas Broddason. ÁRGANGUR: 1968. fjölSKYlDUHAGIR: Kvæntur og á tvo drengi, 13 og 15 ára. BúSETA: Sauðárkrókur. HVERRA MANNA ERTU: Sonur Sauðkrækingsins Imbu Tomma og Hofsósingsins Brodda Þorsteins. STARf / NÁM: Verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. BIfREIð: Renault Megane. HESTöfl: Skráður 117 en þar sem hann er bilaður skilar hann engu þeirra niður í götu. HVAð ER Í DEIGlUNNI: Skil á lokaverkefni í Fab Academy MIT, botnlaus vinna og hugsanlega nokkrar skíðaferðir. Hvernig hefurðu það? Ég verð ekkert skárri. Hvernig nemandi varstu? Einn kennarinn minn sagði að ég hefði aldrei verið með hugann við efnið en samt vitað hvað gekk á. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Það hlýtur að vera annað hvort stóru skórnir mínir (ég var 150 cm hár í skóm nr. 45) eða brakið í hnjánum á Halla Freyju. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Flugið heillaði alltaf, annars sagði Gústi Eiðs mér um daginn að ég hefði sagst ætla að verða geimfari. Ég læt hugarflug duga í dag. Hvað hræðistu mest? Drukkna ökumenn. ABBA eða Rolling Stones? Rolling Stones, Ella Gunna frænka sá til þess Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Fyrsta platan sem ég keypti var platan 7 með Madness. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Karókí? Ég hef einu sinni stigið á svið í Kareókí og song þá Crazy Little Thing Called Love með Queen. Sem betur fer var þetta lokað partí. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? 187 Detroit. Besta bíómyndin? Leon eftir Luc Besson, frábær spennumynd með flotta persónuuppbyggingu. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Tuða. Enginn kemst í hálfkvisti við mig þar. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ekkert eitt kemur upp í hugann, en það er mest fagnað heima hjá mér þegar ég geng frá eftir mig. Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossa- miðann? Harðfiskur og súkkulaði. Hvað er í morgunmatinn? Ristað brauð með osti, hafragrautur ef mikið liggur við. Hvernig er eggið best? Poacherað með steiktri skinku og hollandaise sósu (egg Benedictine) Uppáhalds málsháttur? Engin er verri þó hann vakni. Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Dilbert. Hver er uppáhalds bókin þín? Maðurinn sem féll til jarðar, Walter Tevis Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Flórens á Ítalíu með viðkomu í Stavanger í Noregi. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Skipulagsleysi. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Fordómar. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Aldrei haft áhuga á fótbolta en ef snúið yrði uppá hendina á mér þá myndi ég sennilega segja Wolves af því að amma hélt uppá þá. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Þangað til nýlega var það Lance Armstrong en sennilega verð ég að endurskoða það. Annars kom Ásdís Hjálmsdóttir í hugann þegar ég las spurninguna. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera og af hverju? Ellen Generes. Ég held að hún hafi bara svo rosalega gaman af lífinu Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati? Albert Einstein. Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Reiðhjól, hníf og tjald. Knattspyrna Körfubolti Dominos-deildin Edvard Börkur í Tindastól á ný Roburt Sallie til Tindastóls KR-ingar lagðir í Síkinu Nú er það ljóst Edvard Börkur Óttharsson leikur með Tindastóli þetta leiktímabil en hann skipti úr Tindastól yfir í uppeldislið sitt Val sl. haust. Gengið var frá lánssamningi við Edda út tímabilið og óhætt að segja þetta séu góðar fréttir fyrir alla Tindstælinga, enda Eddi kjörinn besti leikmaður síðasta tímabils í fyrstu deildinni. Á vef Tindastóls segir að Eddi hafi ákveðið að flytja búferlum alfarið norður á Sauðárkrók þar sem foreldrar hans búa. Hann spilaði sinn fyrsta leik með Tindastóli um síðustu helgi í Fotbolti.net mótinu, en þar beið Tindastóll lægri hlut gegn Haukamönnum á Schenker- vellinum. Úrslit leiksins 1-0. /PF Tindastóll hefur styrkt lið sitt í Dominosdeildinni þar sem bandaríski bakvörðurinn Roburt Sallie er kominn á Krókinn. Að sögn Þrastar jónssonar formanns körfuboltadeildarinnar hefur engum verið sagt upp en staðan tekin síðar þegar útséð verður hvernig málin munu þróast. Roburt hefur verið öflugur á æfingum Stólanna síðan hann kom til landsins og er það mál manna sem hafa séð til kappans að þar fari mjög góður leikmaður. Leikstjórnandinn Drew Gibson er tæpur vegna meiðsla en hann átti stórgóðan leik þegar Tindastóll lagði KR sl. fimmtu- dagskvöld þrátt fyrir að vera nán- ast á annarri löppinni. /PF Tindastóll og KR mættust á Króknum sl. fimmtudagskvöld í Dominos-deildinni í körfubolta. KR-ingar eru við toppinn í deildinni en Stólarnir hafa átt litlu láni að fagna og vermdu botnsætið fyrir leikinn. Stólarnir byrjuðu leikinn betur og komust í 4-0 en rimman var hnífjöfn og í raun ótrúlega spennandi og skemmtileg. Í síðari hálfleik höfðu heimamenn frumkvæðið og voru yfir meira og minna allan hálfleikinn. Lið Tindastóls var einbeitt og varnarleikurinn var númer 1, 2 og 3. Gibson átti sennilega sinn besta leik með Stólunum og þá var guttinn Pétur Rúnar flottur, spilaði líkt og hann væri þjakaður af reynslu. -Mér fannst þetta vera fyrst og fremst liðssigur. Menn voru staðráðnir í því að gera betur heldur en í tveim fyrstu leikjunum eftir áramót og það sem hefur skeð er fyrst og fremst hugarfarsleg breyting, sagði Bárður Eyþórsson þjálfari um frammistöðu sinna manna. Lokatölur urðu 72-67. /ÓAB, PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.