Feykir


Feykir - 06.06.2013, Blaðsíða 2

Feykir - 06.06.2013, Blaðsíða 2
2 Feykir 22/2013 Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164 Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Nýtt gervigras takk! Ég ætla að vera svo djarfur að fara fram á nýtt gervigras á Sauðárkróki. Ég veit að það kostar fúlgu fjár og er rándýrt en ég ætla samt að fara fram á þetta. Ég veit að margir hafa hugsað það sama og ég í kjölfar þess að ekki hefur verið hægt að leika knattspyrnu á aðalvöllum Sauðárkróks þetta vorið og það sem liðið er sumarsins. Ég veit ekki hversu margir knattspyrnuiðkendur eru á Sauðárkróki en þeir yrðu ekki taldir í tugum heldur hundruðum. Vetraraðstaðan er fyrir neðan allar hellur og þetta vita allir sem vilja vita. Lítill sparkvöllur sem þjónar bæði skólastarfi og íþróttaæfingum, svo lítill að 10 ára gömul börn kvarta, hvað þá þeir sem standa í stórræðum í meistaraflokkum. Oft hefur maður hugsað til stærri liða og bæjarfélaga eins og Akraness eða Vestmannaeyja sem standa þétt upp við bakið á sínu heimaliði og eru stoltir af gengi þeirra og gera ýmislegt til að þeim gangi sem best. Við könnumst við þetta úr körfunni. Ekki dettur okkur annað í hug en að Tindastóll leiki í deild þeirra bestu eftir næstu leiktíð enda getum við gert kröfu á það. Aðstæðurnar eru fyrir hendi. Ekki þýddi að gera þær kröfur ef æft væri í gamla Barnaskólahúsinu. Allir (afsakið alhæfinguna) sem æfa fótbolta á Sauðárkróki koma skrefinu á eftir öðrum liðum þegar Íslandsmótið hefst en þyrfti ekki að vera svo. Legg ég til að löglegur, upphitaður gervigrasvöllur verði staðsettur syðst á íþróttasvæðinu við Árskóla þar sem hann myndi nýtast nemendum sem í framtíðinni verða öll staðsett í nýju húsnæði sem og þeim sem æfa íþróttir utan skólatíma eða eru hreinlega að leika sér saman í öðrum leikjum. Þar myndum við sjá börn á öllum aldri frá morgni til kvölds allan ársins hring. Páll Friðriksson, ritstjóri Hlaupið til heiðurs Árna Stefánssyni Skráning hafin Árni Stefánsson íþrótta- kennari og hlaupaþjálfari verður 60 ára á þessu ári. Af því tilefni verður hlaupið „Árnahlaup“ honum til heiðurs, laugardaginn 29. júní á Sauðár- króki. Í Árnahlaupi geta allir verið með, ungir sem aldnir. Hægt er að velja um þrjár hlaupaleiðir og verður ræst í þær allar á íþróttavelli við Sundlaug og þar enda einnig allir. Meðal annars verður keppt í fjalla- hlaupi – sama leið og hlaupin var á Landsmóti 2004, svokallaðar Kimbastaðagötur. /KSE Hólar í Hjaltadal Vel heppnuð bjórhátíð Bjórhátíðin á Hólum í Hjaltadal var haldin í þriðja skiptið 1. júní síðastliðinn. Var vel mætt á hátíðina eða um hundrað manns. Allir framleiðendur bjórs á Íslandi mættu en þeir eru: Bruggsmiðjan Kaldi, Steðji, Vífilfell, Gæðingur, Ölgerðin / Borg Brugghús, Ölvisholt Brugghús og svo auðvitað Hólamenn með Bjórsetur Íslands – Brugghús. Að þessu sinni var einnig einn innflytjandi með, Elgur ehf., að kynna þá bjóra sem hann flytur inn en þeir koma helst frá Belgíu og Þýskalandi. Hátíðargestir fengu að smakka á tæplega 50 tegundum af bjór af hinum ýmsu gerðum. Eins og í fyrra var boðið upp á þýskar grillpylsur og hægeldað rifið svínakjöt (e. pulled – pork) og að auki saltkringlur (bretzl) frá Bakaríinu við Brúna á Akureyri. Keppt var í kútaralli þrátt fyrir ausandi rigningu og vann Ragnar Elías Ólafsson rallið og fékk hann kassa af eðalbjór í verðlaun frá Járn og Gler, en þeir flytja mikið inn af bjór frá Danmörku og Banda- ríkjunum. Bjórskóli Ölgerðar- innar gaf vegleg verðlaun í happadrætti hátíðarinnar og var það Ragnar Freyr Olsen sem hreppti vinninginn, tvo miða á skólabekk hjá Bjórskólanum. Að venju voru svo þrír bestu bjórar hátíðarinnar kosnir af hátíðargestum og urðu úrslitin þessi: Vatnajökull frá Ölvisholti, en hann er bruggaður úr ísjökum sem teknir eru úr Jökulsárlóni, kryddaður með blóðbergi og fæst einungis á veitingastöðum í nágrenni Vatnajökuls. Arctic Berry Ale frá Vífilfellli – Viking Brugghús, bruggaður úr kræki- og bláberjum. Tumi Humall IPA frá Gæðingi Brugghús, beiskur og vel huml- aður bjór enda bruggaður af ást og álúð af Jóhanni bruggmeistara Gæðings. Loks var besti básinn valinn af dómnefnd hátíðarinnar og hlaut Ölgerðin / Borg Brugghús þau verðlaun. Heppnaðist hátíðin afar vel og fóru hátíðargestir með ánægjusvip frá Hólum. /GBE Endurbygging Skagavegar Einn aðili bauð í verkið Vegagerð ríkisins opnaði sl. þriðjudag tilboð vegna endurbyggingar Skagavegar frá Skagastrandarvegi að Harrastöðum eða um 3,68 km. Útlögn klæðningar skal að fullu lokið fyrir 1. september 2013 og skal verkinu að fullu lokið fyrir 1. október 2013. Kostnaðaráætlun Vega- gerðarinnar hljóðaði upp á tæplega 47,3 milljónir en eini bjóðandinn var Skagfirskir verktakar ehf. á Sauðárkróki sem bauð rúmlega 44,8 millj- ónir eða 94,8% af kostnaðar- áætlun. /KSE Aflahornið 26. maí - 1. júní Fiskur úr sjó Í vikunni var landað tæpum 60 tonnum á Skagaströnd, um 235 tonnum á Sauðárkróki og tæpum 10 tonnum á Hofósi. Á Sauðárkróki kom Örvar til hafnar í sína vikulegu löndun. Grímsnes og Röst komu með rækju fyrir Dögun, en Klakkur og Þinganes með rækju fyrir FISK-Sefood á Grundarfirði /KSE SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Alda HU-112 Landb lína 12.079 Bergur sterki HU-17 Handfæri 1.580 Bjarmi HU-33 Handfæri 1.262 Bogga í Vík HU-6 Handfæri 2.363 Dagrún ST-12 Dragnót 2.114 Eiður ÓF-13 Handfæri 2.925 Flugaldan ST-54 Handfæri 2.969 Garpur HU-58 Handfæri 864 Greifinn SK-19 Handfæri 1.593 Guðrún Ragna BA-162 Handfæri 2.301 Hafrún HU-12 Dragnót 15.374 Húni HU-62 Handfæri 1.037 Hvítá MB-2 Handfæri 1.506 Nonni HU-9 Handfæri 2.207 Stella GK-23 Landb lína 8.378 Sveinbjörg HU-49 Handfæri 1.402 Alls á Skagaströnd: 59.954 Ásmundur SK-123 Landb lína 2.267 Dúan SI-130 Handfæri 1.786 Flugan SI-16 Handfæri 310 Freydís SK-24 Grásleppunet 1.271 Geisli Handfæri 1.199 Hafbjörg SK-58 Handfæri 1.556 Skáley SK-32 Handfæri 1.225 Víkingur KE-10 Grásleppunet 139 Alls á Hofsósi 9753 kg Fannar SK-11 Handfæri 1.968 Gammur Sk-12 Þorskfisknet 2.271 Grímsnes BA-555 Rækjuvarpa 12.585 Helga Guðm. SK-23 Handfæri 785 Klakkur SK-5 Rækjuvarpa 23.437 Kristín SK-77 Handfæri 1.616 Maró SK-33 Handfæri 1.074 Már SK-90 Handfæri 1.223 Óskar SK-13 Handfæri 875 Ríkey SK-111 Handfæri 475 Röst SK-17 Rækjuvarpa 23.440 Steini G SK-14 Handfæri 1.375 Sæborg SK-8 Handfæri 1.081 Vinur SK-22 Handfæri 1.406 Þinganes SF-25 Rækjuvarpa 23.671 Örvar SK-2 Botnvarpa 136.448 Ösp SK-135 Handfæri 1.587 Alls á Sauðárkróki: 235.317 kg Nýr þjónustufulltrúi landbúnaðarnefndar Arnór Gunnarsson ráðinn Ráðið hefur verið í starf þjónustufulltrúa landbúnaðar- nefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og varð Arnór Gunnarsson fyrir valinu. Arnór er búfræðingur að mennt, hefur starfað sem bóndi í 35 ár og setið í nefndum og stjórnum varðandi landbúnað- arstörf fyrir sveitarfélagið. Arnór hefur verið fjallskilastjóri í 24 ár. Alls sóttu nítján manns um starfið sem felur í sér meðal annars umsjón og eftirlit með fjallskilasjóðum og viðhaldi á afréttargirðingum, umsýslu og áætlanagerð með refa- og minkaveiði, umsjón með landa- reignum sveitarfélagsins og úttekt á girðingum í samráði við Vegagerðina. Þá er viðkomandi tengiliður við dýralækni og sér um eftirlit vegna lausagöngu búfjár, situr fundi landbúnaðar- nefndar Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar og sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum. /PF Blönduskóli Útihátíð og skólaslit Útihátíð Blönduskóla var haldin sl. föstudag og var dagskrá með hefðbundnum hætti. Eins og nafnið gefur til kynna fór hátíðin fram utan dyra með leikjum, grilluðum pylsum og miklu fjöri. Skólaslit skólans fóru svo fram í Félagsheimilinu kl. 17:00. Kvöldið áður sneri 10. bekkur heim úr skólaferð sinni og er hægt að skoða fjölmargar myndir sem komnar eru á myndasíðu skólans. Þá fóru fjórir Comeniusar-farar til Fatíma í Portúgal en það eru þau Anna Margrét kennari, Óskar Þór í 10. bekk og Berglind Birta og Jóhanna Skagfjörð í 8. bekk. Myndir og ferðasögu er að vænta frá þeim í næstu viku á Blönduskóli.is. /PF Veiðin farin af stað Laxinn genginn í Blöndu Laxinn er genginn í Blöndu, þrátt fyrir erfið skilyrði vegna mikils og gruggugs vatns. Á Húnahorninu er haft eftir Höskuldi B. Erlingssyni, leið- sögumanni í Blöndu, að hann hafi séð lax reisa sig sl. sunnudag, í Damminum, sem er veiðistaður rétt fyrir ofan Breiðuna á svæði 1. Segir hann að um sé að ræða nýgenginn lax, 12-14 pund. Veiði hófst á svæði 1 í Blöndu í gær en laxveiði á svæðum tvö til fjögur hefst 20. júní. /KSE

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.