Feykir - 06.06.2013, Qupperneq 5
22/2013 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Golfarar farnir að sveifla kylfum
Búið að opna
Hlíðarendavöll
Sl. fimmtudag var Hlíðarendavöllur opnaður
inn á sumarflatir. Á heimasíðu Golfklúbbs
Sauðárkróks segir að óhætt sé að spila
völlinn þrátt fyrir ýmsar skemmdir á flötum
og á brautum. Þrátt fyrir allt er völlurinn í
þokkalegu standi.
Á síðunni segir að búið sé að sá í og sanda
flatir og eru kylfingar sérstaklega beðnir um að
ganga vel um, lagfæra kylfu- og boltaför. Bleyta er
á sumum brautum og eru kylfingar jafnframt
beðnir um að velja heppilega gönguleið framhjá
bleytunni. /PF
Grindvíkingar of sterkir fyrir Stólana
Grindavík og Tindastóll mættust í
1. deildinni í knattspyrnu sl.
sunnudag suður með sjó. Leikur
liðanna þótti skemmtilegur á að
horfa þrátt fyrir að Grindavíkur-
golan hafi gert leikmönnum lífið
leitt. Heimamenn reyndust
gæfuríkari upp við markið og
sigruðu 4-1.
Stefán Þór Pálsson kom
Grindavík yfir eftir 14 mínútna leik
með skalla eftir aukaspyrnu og sjö mínútum
síðar skoraði Juraj Grizelj annað markið beint úr
hornspyrnu. Stólarnir, sem spiluðu ágætlega í
leiknum, minnkuðu muninn
skömmu síðar og þar var á ferðinni
markamaskínan Atli Arnarson.
Staðan 2-1 í hálfleik.
Á 62. mínútu skoraði Jóhann
Helgason fyrir heimamenn og aftur
kom markið eftir hornspyrnu en
Tindastólsmönnum gekk brösu-
lega að verjast föstum leikatriðum
Grindvíkinga. Fjórða markið gerðu
Grindvíkingar síðan á 79. mínútu
og þar var á ferðinni Óli Baldur Bjarnason og
lokatölur 4-1. Lið Tindastóls er nú í sjöunda sæti
í 1. deild með 5 stig eftir fjóra leiki. /ÓAB
1. deild karla : Grindavík - Tindastóll 4-1
Svekkjandi jafntefli í Ólafsvík
Þrátt fyrir að stelpurnar í
Tindastól væri mun sterkari
sterkari aðilinn í leik þeirra
gegn Víkingi Ólafsvík sl.
laugardag náðu þær ekki að
setja boltann í netið nema
einu sinni en gegn gangi
leiksins og eftir slæm
varnarmistök fengu þær á sig
eitt mark alveg í blálokin. Á
Tindastóll.is segir að fyrstu
30 mínúturnar hafi leikurinn
að mestu farið fram á
vallarhelmingi Víkings.
Stólarnir voru ógnandi
framá við og náði liðið hvað
eftir annað upp mjög góðu spili
þar sem kantarnir voru vel not-
aðir og áttu Guðný og Carolyn
fín hlaup og ágætar fyrirgjafir
en ekki náðu stelpurnar að nýta
þau færi sem fengust.
„Það segir nokkuð um
hversu vel Tindastóll var að
spila fyrstu mínúturnar að
fyrsta skot Víkings á mark kom
ekki fyrr en á 24. mínútu. Vík-
ingur átt svo hættulegt skot á
28. mín. sem Bryndís varði vel.
1. deild kvenna : Víkingur Ólafsvík - Tindastóll 1-1
Vörnin var sterk í fyrri hálfleik
og þær hættur sem sköpuðust
voru langskot utan af velli sem
Bryndís var ekki í vandræðum
með, en Tindastólsstúlkur áttu
mun hættulegri færi en inn
vildi boltinn ekki,“ segir á
heimasíðu Tindastóls.
Þegar um stundarfjórð-
ungur var til leiksloka þurfti
Guðný Þóra Guðnadóttir að
yfirgefa völlinn eftir að hafa
fengið slæmt höfuðhögg. Þegar
venjulegum leiktíma var lokið
fengu stelpurnar kjaftshöggið
og í fyrsta skipti í leiknum kom
Víkingur boltanum inní teig
hjá Stólunum eftir varnarmis-
tök og eftir „klafs“ inní teig ná
þær að pota boltanum í netið
og jafna. Gífurleg vonbrigði
eftir ágætan leik hjá stelpunum
okkar og sem voru betri aðilinn
stærsta hluta leiksins.
Næsti leikur liðsins er við
Fylki á útivelli í 16-liða úrslitum
Borgunarbikarsins. Fyrsti
heimaleikur liðsins verður svo
15. júní gegn Fram. Sjá nánari
lýsingu á Tindastóll.is. /PF
( TÓN-LYSTIN ) palli@feykir.is
Vignir Kjartansson / bassaleikari með meiru
...ALLS
ENGAN JAZZ!!!!!
Vignir Kjartansson býr nú á
Víðigrundinni á Sauðárkróki
en tilraunir til uppeldis fóru
fram á Skógargötunni og í
Dalatúninu hér áður fyrr. Vignir
er af árgangi 1976 og hefur
verið viðloðandi tónlist næstum
frá þeim tíma og uppáhalds
tónlistartímabil hans spannar
breitt tímabil eða frá 1956-
2013. Hljóðfærið er aðallega
bassagítar en Vignir segist
gutla einnig á gítar og nokkur
önnur hljóðfæri. Þegar
hann er spurður hver helstu
tónlistarafrek séu segir hann:
-Ég vona að þau séu enn ógerð.
Vignir svarar hér spurningunum
í Tón-lystinni.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? -Nýja David
Bowie platan, Skálmöld, Dimma,
Daft Punk.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili? -Það var nú ýmislegt
gott til þar, The Beatles, Stones,
Kinks, Hendrix, Bee Gees, o.fl. frá
1960-1980, svo var líka til ágætt
safn af íslenskri tónlist. Ég hlustaði
á þetta allt en á unglingsárunum
fór ég að hlusta Nirvana, Pearl Jam,
R.A.T.M, Metalica, Guns’n’Roses,
Pixies, Alice in Chains og allt þetta
super rokk sem var nýtt og ferskt í
kringum 1990. Það má líka nefna
hinn stórgóða David Bowie sem ég
hef hlustað á frá því ég man eftir
mér og geri enn og að sjálfsögðu
The Band, sem er algjörlega eitt af
mínum uppáhalds böndum. Það
er margt ótalið enn s.s. Pink Floyd,
Led Zeppelin, Talking heads, ZZ top,
Lynard Synard, The
Clash, Bob Dylan,
R.H.C.P, Neil Young,
Dio, Elvis Costello,
Iron Maiden, Fleet-
wood Mac, AC/
DC, ég held að
listinn sé ótæmandi.
BARA ALLS ENGAN
JAZZ!!!!!
Hver var fyrsta
platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið
sem þú keyptir þér?-
Man nú ekki vinylinn
en fyrsti cd-in var
Back in Black MEÐ
AC/DC.
Hvaða græjur varstu þá með?
-Kassettutæki, heimilisplötuspilar-
ann, en cd-spilarinn kom í hús í
kringum 1990.
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
-Ætli það séu ekki lögin sem við
baksviðskórinn syngjum í, Tifar
tímans hjól. Annars hefur lagið
Watching the detectives með Elvis
Costello verið sungið nokkuð oft í
síðastliðnum sturtuferðum.
Bítlarnir eða Bob Dylan? -Bobby á
morgnana, Beatles á kveldin.
Uppáhalds Júróvisjónlagið (erlent
eða innlent eða bæði)? -Tja, nú
verður fátt um svör, mér finnst júróið
voðalega erfitt áheyrnar oftast nær.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? -Partýbær
með HAM. Það er dauður maður
sem hristist ekki í stuð við það.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? -Gott soul t.d. Otis Redding,
Al green eða bara The Band (er við
hæfi allan sólahriginn)
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér? -Það eru líkur á að Led Zeppelin
komi saman 2014, ég ætla að sjá
það, ef það gerist, nokkuð viss um
að það verði auðvelt að fá Arnar
Kjartansson með í þann túr. Ekki
væri verra ef þetta yrði nú í Madison
squere garden N.Y. Annars bara
Jethro Tull 7. júní, í Hofi á Akureyri
með Jóhanni Axel Guðmundssyni.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? -Enginn sér-
stakur. En þegar ég var 15 ára
dreymdi mig einu
sinni Madonnu, fer
ekki nánar útí það.
Hver er að þínu mati
besta plata sem
gefin hefur verið út?
-Einhver af þessum
plötum er sennilega
besta plata sem gerð
hefur verið að mínu
mati... Dark side
of the moon/Pink
Floyd, Nevermind/
Nirvana, The Band/
The Band, Big pink/
The Band, Revolver/
The Beatles, London
Calling/The Clash.
toppurinn
Vinsælustu lögin
á Playlistanum:
The Weight
THE BAND
Everyday is like
Sunday
MORRISEY
Dig for Fire
PIXIES
Hit the Lights
METALLICA
Sleipnir
SKÁLMÖLD
Þungur kross
DIMMA
Borgunarbikar karla
Tindastóll mætir
Víkingi Reykjavík
Í vikunni var dregið í 16 liða úrslitum
Borgunarbikars karla og fór drátturinn fram
í höfuðstöðvum KSÍ. Bikarmeistarar KR fara
í Breiðholtið og leika gegn Leikni en það
skiptir meira máli er að Tindastóll fékk
útileik gegn Reykjavíkur Víkingum.
Bæði liðin eru í 1. deild og því raunhæfur
möguleiki á að Stólarnir geti potað sér í 8 liða
úrslit í Borgunarbikarnum og það væri alveg saga
til næsta bæjar. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli í
Reykjavík miðvikudaginn 19. júní og hefst kl.
19:15. /ÓAB