Feykir - 06.06.2013, Qupperneq 7
22/2013 Feykir 7
„Hef alltaf haft áhuga á
þjóðmálum og stjórnmálum“
Guðbjartur Hannesson settist
fyrst á þing árið 2007, gegndi
embætti forseta Alþingis 2009,
varð félags- og tryggingamála-
ráðherra og heilbrigðisráðherra
árið 2010 en tók svo við sem
velferðarráðherra árið 2011.
Guðbjartur býr á Akranesi, giftur
Sigrúnu Ásmundsdóttur
iðjuþjálfa og á tvær dætur og tvo
dóttursyni. Hann er með
kennarapróf og tómstunda- og
félagsmálafræðinám frá DK
(fritidspædagog), meistarapróf í
menntun og fjármálum.
Guðbjartur er Þingmaðurinn
þessa vikuna í Feyki.
Starf áður en þingmennskan
kallaði: -Kennari á Akranesi og í
Danmörku og skólastjóri í Grunda-
skóla á Akranesi í aldarfjórðung.
Var í bæjarstjórn á Akranesi um 12
ára skeið, 1986–1998, samhliða
skólastjórn, vann ýmiss konar störf
auk nefndar- og stjórnarstarfa.
Hvenær og hvernig vaknaði
áhugi þinn á pólitík? -Ég hef alltaf
haft áhuga á þjóðmálum og
stjórnmálum. Ég er alinn upp við
pólitíska umræðu og umræðu um
verkalýðsmál og alls kyns réttinda-
mál. Ég varð við áskorun um að fara
í bæjarpólitík 1986 og eftir hlé þá lét
ég tilleiðast að fara í þingframboð
2007.
Hvaða máli værir þú líklegur til
að beita þér fyrir á Alþingi
framar öðrum? -Ég mun áfram
beita mér fyrir ýmsum velferðar-
málum, kjörum fólks og þá ekki
hvað síst fyrir bættum hag barna-
fjölskyldna. Þar má nefna frekari
hækkun barnabóta og enn betra og
lengra fæðingarorlof, að fylgja eftir
gjaldfrjálsum tannlækningum og
bættum húsnæðisstuðningi óháð
því hvort fólk kýs að kaupa eða leigja.
Ég mun enn fremur fylgja eftir
eflingu grunnþjónustu heilbrigðis-
kerfisins um allt land sem fyrst og
afgreiða frumvarp um Almanna-
tryggingar til að bæta kjör aldraðra
og öryrkja. Þá munu menntamálin
verða í brennidepli hjá mér. Loks er
brýnt að vinna í byggða- og atvinnu-
málum, sem og grunnþjónustu, en
þá á ég við samgöngur, nettengingar,
raforkuöryggi, húshitun o.fl.
Telur þú að stjórnmálaumhverf-
ið hafi breyst eða sé að breytast
frá því sem áður var?
-Það hafa oft verið átök í stjórn-
málum en eftir hrun fannst mér að
vinnubrögð hefðu átt að breytast
Þingmaðurinn : Guðbjartur Hannesson
UMSJÓN palli@feykir.is
á danska tónlist s.s. Kim Larsen,
Shu-Bi-Dua en einnig á Pink Floyd
og Jethro Tull. Í dag hef ég mest
gaman af íslenskri tónlist. Ég dáist að
og nýt þess að hlusta á okkar unga
tónlistarfólk, frábærar hljómsveitir
sem eru að vekja athygli um allan
heim, sem og einstaklinga eins og
Svavar Knút og Ásgeir Trausta. Það
er af nógu að taka.
Hver er uppáhalds kvikmyndin?
-Engin sérstök kvikmynd í uppá-
haldi. Nýt þess að fara í kvikmynda-
hús eða horfa á góða sjónvarpsmynd,
ekki hvað síst góðar danskar og
enskar sakamálamyndir.
Hvert er uppáhalds íþróttafél-
agið? -Akranes, ÍA, er mitt uppá-
haldslið en Newcastle í enska
boltanum. Fylgist vel með liðunum
í kjördæminu, t.d. í körfuboltanum.
Þá hefur Íþróttafélag fatlaðra
algjörlega heillað mig upp úr
skónum.
Ein góð saga í lokin: -Þegar menn
fara í stjórnmál þá fara hinir og
þessir að skipta sér af því hvernig
maður lítur út eða klæðist, reynt er
að taka góðar myndir af frambjóð-
endum fyrir kosningabæklinga og
blöð hvort sem þetta hjápar nú eður
ei. Þá þurfa frambjóðendur að
komast á sem flest mannamót og
sumir elta jafnvel uppi jarðarfarir þó
ég hafi ekki notað þá aðferð.
Þegar ég fór í framboð 2007 þá
þáði ég boð um að vera við „vígslu“
róbóta fjóss í Skagafirði, en þar
gerðu menn sér glaðan dag við slík
tækifæri. Ekki þekkti ég marga í
vígslunni og þá ekki allir mig. Einn
þeirra sem hafði aðeins fengið sér í
tána kom til mín og ávarpaði mig:
„Ert þú ekki nýr frambjóðandi hér í
kjördæminu?“ Ég játti því. Við-
komandi mældi mig hátt og lágt og
leit síðan á mig og sagði: „Þú ert
miklu ljótari en á myndunum af
þér!“ Þeir eru hreinskilnir Skagfirð-
ingarnir og kannski eru myndirnar
sumar of góðar.
meira. Ég hef ávallt talað fyrir sam-
starfi stjórnmálaflokka og lausna-
miðuðum vinnubrögðum. Næg eru
viðfangsefnin og mörg mjög vanda-
söm og því ekki ástæða til að dreifa
kröftunum. Stjórnarandstaða liðins
kjörtímabils valdi hins vegar ófrið-
inn og ákvað að verja sérhagsmuni
gegn almannahagsmunum, tefja
mál og hindra framgang þeirra. Ég
ætla að vona að þetta breytist þegar
þessir flokkar eiga að axla ábyrgð og
ég treysti á að tekist verði á með
málefnalegum hætti í þinginu.
Hvaða verkefni bíða helst íbúa
Norðvesturkjördæmis að þínu
mati?
-Sömu verkefni og ég taldi hér upp á
undan sem mál sem ég vil beita mér
fyrir. Það er afkoma fólks, einkum
barnafólks, aldraðra- og öryrkja,
búsetuskilyrði s.s. grunnþjónusta og
atvinna. Ákveðnir hlutar kjördæm-
isins hafa þar setið mjög eftir.
Hvaða málefni telur þú að
brenni helst á íbúum Norður-
lands vestra? -Sama og áður hefur
verið nefnt, byggða- og atvinnu-
málin, búsetuskilyrðin og grunn-
þjónustan s.s. heilbrigðismálin,
skóla- og menntamálin, bæði hvað
varðar Hólaskóla og framhalds-
skólann. Tryggja þarf framhalds-
deild á Blönduósi, til viðbótar við
Hvammstanga og fleira mætti nefna.
Þá þarf að styrkja þetta svæði í heild
með auknu samstarfi og aukinni
samkeppni í héraði.
Hvaða áhugamál áttu fyrir utan
pólitíkina? -Það hefur verið lítill
tími til að sinna öðrum áhugamálum
en pólitík. Ég nýt þess að ferðast,
koma á nýja staði innanlands og
erlendis og hef mjög gaman af
íþróttum. Þó er ávallt skemmtilegast
að hafa tíma með vinum og
fjölskyldunni, og ekki hvað síst
dóttursonunum.
Hver er uppáhalds tónlistarmað-
urinn? -Ég er alæta á tónlist, hef
gaman að alls konar tónlist. Ég er
gamall bítlaaðdáandi, hlustaði mikið
þekkist að lyktarhreinsunarbúnaður sé svo
árangursríkur að þrif mæti afgangi. Þrátt
fyrir hátæknivæddan lofthreinsibúnað
stendur til að gæta fyllsta hreinlætis í nýrri
verksmiðju.
FISK Seafood er öflugt fyrirtæki
sem hefur beitt sér fyrir nýsköpun og
framþróun og ýmislegt er í farvatninu en
að sögn Margrétar Silju vill FISK Seafood
skjóta styrkum stoðum undir atvinnulíf í
sveitarfélaginu.
-Það hefur verið markmið að sækja
þjónustu við hönnun nýrrar verksmiðju
í heimabyggð og má ætla að rúmlega 50
heimamenn komi að hönnun eða byggingu
nýrrar fiskþurrkunarverksmiðju. Uppi eru
áform um að kaupa hundruð metra af
færibandi fyrir nýja verksmiðju ósamsett
með atvinnusköpun að markmiði.
Þá segir Margrét Silja óhætt að segja að
fyrirtækið stefni í ótroðnar slóðir í hrá-
efnisflutningum, en til stendur að dæla
hráefni frá landvinnslu að nýrri verksmiðju
í gegnum 400 metra langt rör neðanjarðar.
Fyrirhuguð flutningslögn er liður í að auka
skilvirkni í framleiðslunni og tryggja enn
ferskara hráefni til þurrkunar.
-Ætla má að nýjasta hráefnið verði
komið í þurrkun einungis örfáum klukku-
stundum eftir komu í landvinnslustöð
FISK Seafood. Þar að auki er hluti þurrk-
búnaðar verksmiðjunnar nýjung í vinnslu
sem þessari. Búnaðurinn verður því
að hluta frumraun sérfræðinga á sviði
inniþurrkunar á fiskafurðum hér á landi,
segir Margrét Silja.
Tilkoma verksmiðjunnar er liður í þeirri
stefnu að fullnýta allt hráefni sem að landi
berst og auka þar með verðmætasköpun
og segir Margrét Silja að aukin afurða-
nýtingin kalli á breytingar í vinnslunni
allri. Því eru uppi áform um breytingar og
eflingu í landvinnslustöð FISK Seafood.
-Hausar, afskurður og beingarðar
verða þurrkaðir í nýrri verksmiðju, hluti
af því roði sem fellur til verður sútað í
Sjávarleðri og annað roð, slóg og annað
er til fellur er nýtt í minkafóður. Í Verinu
Vísindagörðum, sem FISK Seafood hýsir,
fer m.a. fram rannsókna- og þróunarstarf
sem snýr að nýtingu fiskafurða. Iceprotein,
dótturfyrirtæki FISK Seafood, starfar á
sviði líftækni og fæst m.a. við framleiðslu
á próteini úr vannýttum sjávarafurðum
sem má t.d. skila til baka í formi gæðameiri
fiskflaka.
Að lokum er Margrét Silja spurð að því
hvernig það sé að vinna í fiski?
-Ég kann mjög vel við mig hjá fyrirtækinu.
Verkefnin eru fjölbreytt og starfsfólkið
framsækið. Hugmyndaflugið ræður hér
ferðinni og óhætt er að segja að ekkert er
óframkvæmanlegt. Ég er hrifin af þeirri
stefnu fyrirtækisins að efla atvinnulíf í
nágrenninu og þrotlausri vinnu þeirra við
að laða hingað þróunarfyrirtæki og skapa
störf fyrir ungt fólk.
Það er óhætt að segja að landvinnslu-
stöðin hafi komið mér á óvart en
ég upplifði hana sem tæknivædda
verksmiðju þar sem ég var heilluð af
verkferlum og fiskvinnsluvélum í stað
þeirrar ranghugmyndar sem ég hafði um
gamaldags fiskvinnslur.