Feykir - 06.06.2013, Side 11
22/2013 Feykir 11
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
skal búast við mikilli hamingju næstu daga.
Tilvitnun vikunnar
Það er árangur en ekki afsakanir
sem gefa lífinu gildi. – W. Page Pitt
Sudoku
Er árin færðust yfir Jóara Sigrúnar vakti
það athygli vina hans að kenndir hans er
teljast skildu til eðlilegrar náttúru fóru að
taka óvænta stefnu. Tók hann upp þann sið að dvelja
langdvölum á aflandi sínu Tortólu og þá gjarnan á eintali við
bekra sína er hann hafði fengið með mislöglegum hætti.
Sér í lagt dálæti hafði Jóari Sigrúnar á hrútskepnu þeirri er
hann hafði við goldið gjafarbréfssnepli nokkurra velunnara
er þeir færðu honum af tilefni hálftíræðisafmælis.
Rauðgerði Benríði ektaspúsu Jóara Sigrúnars líkuðu ekki
svo alilla sinnaskipti bónda síns og var henni af því nokkur
hægð að hafa honum að mestu aflétt úr skauti sínu.
HINRIK MÁR JÓNSSON
Örlaga örsögur
ÞRÖSTUR KÁRASON
-Ég kíki kannski við þegar ég er
búinn að vinna.
UNNUR FJÓLA HEIÐARSDÓTTIR
-Já, við ætlum á bryggjuna.
JÓHANNA SIGURLAUG
EIRÍKSDÓTTIR
-Ég ætla að fara út á bryggju og
gera eitthvað smá, er að vinna.
TÓMAS GUÐMUNDSSON
-Ég verð bara að vinna.
ANNA RÚN AUSTMAR
-Já ég ætla að fara á bryggjuna
og í afmæli.
Svavar Atli og Kolbrún María kokka
Uppáhalds kjúklinga-
réttur Svavars
AÐALRÉTTUR
Kjúklingur
með sætum kartöflum,
spínati, fetaosti og
furuhnetum
4 – 5 kjúklingabringur
2 meðalstórar sætar kartöflur
1 lítill poki spínat
1 krukka fetaostur
1 poki furuhnetur
Aðferð: Kjúklingur er skorinn
niður í bita, kryddaður með
salti og pipar og léttsteiktur. Olíu
af fetaosti er hellt í botninn á
eldföstu móti, sætu kartöflurnar
er rifnar niður í þunnar sneiðar
og raðað í botninn, dreifið síðan
spínati, furuhnetum og restinni
af olíunni yfir. Kjúklingnum er
svo raðað efst og fetaosturinn
settur þar ofan á, sett inn í ofn í
ca. 30 – 40 mín á 180°c.
EFTIRRÉTTUR
Frosin ávaxtakaka
100 - 200 gr makkarónukökur
2 - 3 kiwi
2 - 3 bananar
2 epli eða mangó
100 gr döðlur
100 gr súkkulaði, saxað
50 gr valhnetur
1 - 2 dl sérrí eða líkjör (má
sleppa)
Aðferð: Mylja makkarónu-
kökur í skál, skera ávextina í
bita, blanda öllu saman og setja
í frysti.
Borið fram með þeyttum
rjóma.
Verði ykkur að góðu!
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
ingar vikunnar. Um réttina sem þau bjóða upp á segir
Kolbrún:
-Hér kemur mjög fljótlegur og hollur kjúklingaréttur sem
Svavar stingur iðulega upp á þegar ég spyr hann hvað við eigum
að borða. Frosna ávaxtakakan er aftur á móti meira í uppáhaldi hjá
mér. Við skorum á Eggert Þór Birgisson og Birgittu Pálsdóttur að
vera næstu matgæðingar.
Svavar Atli Birgisson og
Kolbrún María Passaro á
Sauðárkróki eru matgæð-
Feykir spyr...
Ætlar þú að
taka þátt í há-
tíðarhöldunum
í tilefni sjó-
mannadagsins?
[Spurt í síðustu viku
á Sauðárkróki fyrir
sjómannadaginn]
Útskrift Ársala 2013
Úr leikskóla í grunnskóla
Nú er tími útskrifta enda alltaf
stór áfangi að klára skólann
sinn.
Föstudaginn 31. maí sl. út-
skrifuðust 34 glöð og fjörug börn
sem voru í skólahóp í leik-
skólanum Ársölum á Sauðár-króki
í vetur og við tekur grunnskóli á
hausti komanda. Flest barnanna
voru viðstödd útskriftina auk
foreldra, starfsmanna skólahóps og
annarra gesta. Að lokum var öllum
viðstöddum boðið í kaffi, djús og
tertur inni í Skógum og Þúfu og
virtust allir njóta veitinganna og
hafa gaman af. /PF