Feykir - 25.07.2013, Qupperneq 2
2 Feykir 29/2013
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Ætti maður að fara
á ættarmót?
Nú er sá árstími þar sem ættarmót eru í algleymingi. Mér skilst
að þau séu séríslenskur siður og líklega fundin upp á seinnihluta
síðustu aldar. Ættarmót fara gjarnan fram á landsbyggðinni,
þar sem komið er saman og tjaldað, grillað, farið í leiki og menn
skemmta sér og sínum. Misjafnt er hversu langt er farið aftur í
ættir varðandi skyldleika, enda líka misjafnt hversu stórar og
frjósamar fjölskyldur og ættir eru. Oft er þó seilst það langt
aftur að það er komið út fyrir allir-þekkja-alla þæginda-
rammann og því jafnvel farið út í að merkja fólk og auðkenna
ættliði með litum.
Sjálf hef ég hugleitt að skjótast á ættarmót um næstu helgi,
þar sem minn ættleggur ku vera gulur, meðan afkomendur sjö
ömmusystkina mína skarta öðrum litum til auðkenningar.
Bara guli liturinn einn og sér er ákveðið skref út fyrir þæginda-
rammann, enda fátt sem fer mér eins illa og gulur litur.
Sumir segja að ættarmót falli um sjálft sig sem vettvangur til
að kynnast áður óþekktum eða lítt þekktum ættingjum, maður
spjalli hvort sem er bara við þá sem maður þekkti fyrir. Vel má
vera að sú sé oft raunin, en það mætti setja sér það markmið að
tala við a.m.k. fimm sem maður hefur ekki spjallað við áður.
Kemur þá enn og aftur til kasta hins ómissandi samskiptamiðils
fésbókarinnar (eða snjáldurskinnu). Nú er aldeilis hægt að slá
um sig og kynna sér hagi ættingjanna áður en haldið er á
ættarmótið og bryddað upp á samræðum við fjarskylda
frændann eða félagsfælnu frænkuna. Auðvelt er að vera með
upplýsingar á borð við veðurfar í heimabyggð viðkomandi,
nýjustu uppátæki barnabarnanna, nýloknar prófgráður, hvað
var í kvöldmatinn og jafnvel hvenær viðkomandi hafði síðast
hægðir. Þannig ætti ekki að verða nokkur skortur á umræðu-
efnum á ættarmótum.
Ein ágæt frænka mín, ung og einhleyp, en þó komin á þann
aldur að mamman heimtar tengdason, benti móður sinni á það
að hennar tíma væri betur varið á dansleik og bæjarhátíð heldur
en ættarmót, þar væri líklegra að útvega móðurinni tengdason.
Ég kaupi að vísu þau rök sem gilda fjarvistarástæðu af ættar-
móti. Það er heldur leiðinlegra ef fólk er mikið að draga sig
saman á ættarmótum, þar sem annað hvort væri um að ræða of
mikinn skyldleika eða viðkomandi væri að stinga undan
nánum ættingja. Í því samhengi hafa sveitaböll og bæjarhátíðir
vinninginn.
En við sem komin erum að léttasta skeiði mætum keik og
glöð til leiks, þarna er líka kjörið tækifæri til að vera með
afkvæmasýningar og gorta sig af börnunum og barnabörn-
unum. Ættarsvipir og hver-er-líkur-hverjum er líka tilefni
endalausra umræðna. Það má að vísu alltaf búast við einum
svörtum sauð í ætt hverri, en maður velur sér jú vini en ekki
ættingja.
Ég reikna því með að mínir menn mæti til leiks, gulir og
glaðir líkt og Skagamenn sem hér áður fyrr skoruðu mörkin, og
tékki á því hvort okkur sé illa í ætt skotið.
Kristín S. Einarsdóttir
– ættrækin og á leið á ættarmót
Fyrstu þrjár vikurnar í júlí
Mesta úr-
koma í 35 ár
Einhverjum hefur eflaust
þótt nóg um rigninguna
það sem af er júlímánuði,
þó menn fari varlega í að
hallmæla henni eftir
undangengin þurrkasumur
og ótíð vetrarins, enda
hefur rigningin orðið til
þess að sprettan er góð.
Blaðamanni lék forvitni á
að vita hversu mikil þessi
úrkoma reyndist í saman-
burði við síðustu ár og hafði
því samband við Veður-
stofuna. Að sögn Trausta
Jónssonar veðurfræðings
hefur úrkoman það sem af er
júlí (1.-22. júlí) mælst 56,4
mm á Bergsstöðum í Skaga-
firði. Trausti segir jafnframt
að á tímabilinu 1978-2013
hafi úrkoman hafi aldrei verið
meiri á þessum árstíma
(fyrstu þrjár vikurnar í júlí),
þó litlu hafi munað, t.d. árið
2001. Úrkoman er líka mun
meiri heldur en verið hefur
undanfarin fjögur ár. Árið
2011 mældist úrkoma á þessu
tímabili aðeins 0.3 mm og
árin 2007, 2009 og 2012 var
hún einnig innan við 10 mm.
/KSE
Skagfirðingasveit nýtur
góðs af mikilli aðsókn
Tónleikarnir á Sauðárkróki
voru þeir þriðju síðustu í röð
sextán tónleika sem áhöfnin
á Húna hélt í sjávarbyggðum
vítt og breytt um landið í júlí.
Þeir voru haldnir á
Sauðárkróksbryggju á
fimmtudaginn var en Húni
kom til heimahafnar á
Akureyri tveimur dögum síðar,
með viðkomu á Siglufirði.
Eikarbáturinn Húni II hefur
því lokið hringferð í kringum
landið með tónlistarfólk en um
er að ræða samstarfsverkefni
Húna II, Slysavarnarfélagsins
Landsbjargar og RÚV.
Þær björgunarsveitir sem
taka þátt í verkefninu á hverju
svæði fá ágóða tónleikanna, að
frádregnum kostnaði, í sinn
sjóð. Feykir hafði samband við
formann Björgunarsveitar-
innar Skagfirðingasveitar, Har-
ald Ingólfsson. Að sögn hans
söfnuðust rúmlega 1,2 milljón
þetta kvöld. Enn á þó eftir að
taka saman heildartöluna sem
rennur beint til Skagfirðinga-
sveitar, en kostnaður við uppi-
hald áhafnarinnar og annan
kostnað á eftir að draga frá.
Björgunarsveitin Skagfirð-
ingasveit vill koma á framfæri
sértöku þakklæti til Skagfirð-
inga og gesta sem mættu á
tónleikana, áhafnarinnar á
Húna II og sveitarstjórnarinnar
fyrir stuðninginn. /KSE & GSG
Áhöfnin á Húna II
Tíu metra löng hrefna
Á laugardaginn rak hval á land við Tannstaðabakka í Hrútafirði.
Um er að ræða kvendýr, um 10 metra langa hrefnu. Guðmundur
Ísfeld, bóndi og handverksmaður að Jaðri, smellti mynd af hrefn-
unni og deildi henni með Feyki.
Hvalreki við Tannstaðabakka
Aukið netöryggi fyrirséð í
Húnavatnshreppi
Þráðlaust net
á 90 bæi
Vonir standa til að nýtt
þráðlaust netkerfi, sem
sett verður upp í Húna-
vatnshreppi á komandi
mánuðum, muni auka
netöryggi íbúanna.
Í sumar samdi sveitar-
félagið um uppsetningu á
svokölluðu TDMA-kerfi, en
það er þráðlaust net sem á að
ná til um níutíu bæja og
áætlað er að uppsetningu
ljúki í haust, að því er fram
kemur í viðtali við Jens P.
Jensen, sveitarstjóra Húna-
vatnshrepps, á vef RÚV.
„Netsambandið hefur verið
mjög slæmt. Bilanatíðni
hefur verið mikil í kerfinu.
Þessi búnaður sem við erum
með hefur alls ekki verið
nógu góður. Þetta er eiginlega
eina ráðið sem við sjáum til
að reyna að bæta úr þessu,“
segir Jens. Húnavatnshreppur
leggur eitthvað á milli fjórar
og fimm milljónir í verkefnið
sem er um helmingur af
kostnaði við uppsetningu.
/KSE
Feykir í sumarfrí
Þetta tölublað Feykis er það
síðasta fyrir sumarfrí og
kemur næsta blað út
fimmtudaginn 15. ágúst.
Starfsmenn Feykis verða
engu að síður á vaktinni og
munu skrifa fréttir á vefinn
Feykir.is. Hægt er að hafa
samband við blaðamenn í
síma 455 7176 og 867 3164 og
gegnum netfangið feykir@
feykir.is. Sem fyrr er allar
ábendingar varðandi fréttir
vel þegnar. /KSE
Næsti Feykir kemur út 15. ágúst