Feykir - 25.07.2013, Qupperneq 7
29/2013 Feykir 7
Ljósmyndaverkefni Pálínu Óskar og Önnu Lilju
Álfar og
huldufólk
Anna Lilja Guðmundsdóttir, förðunarfræðingur og hár-
greiðslumeistari og Pálína Ósk Hraundal, ferðamála-
fræðingur og ljósmyndanemi, hafa verið á flandri um
Skagafjörð síðustu daga til þess að taka ljósmyndir og búa
til ævintýri með innblæstri frá álfum og huldufólki
í Skagafirði.
Innblástur verkefnisins fékk Pálína
þegar hún var að vinna með loka-
verkefni sitt
á fyrsta ári í
ljósmyndanámi
sínu í Osló. Þá
vann hún með
einstaka sögu
vegagerðarinnar
þegar leggja
átti nýjan veg í
Hegranesi. „En
eins og flestum
Skagfirðingum
er kunnugt var hætt við að sprengja
klettana og vegurinn gerður í stað þess
í sveig framhjá. Það var hætt við að
sprengja veginn vegna skilaboða frá
huldufólki og er sagan því einstök á
heimsvísu.“
Pálína fékk áhuga að vinna meira
með þetta þema og kynnti sér fleiri
sögur sem tengjast álfum og huldufólki
í Skagafirði. Anna Lilja og Pálína
sköpuðu svo í sameiningu allskonar
verur og huldar
vættir.
Verkefnið hefur
gengið vel og
stefna þær
stöllur á sýningu
næsta sumar á
þessum verkum
í Skagafirði.
Þær vinna
ennþá hörðum
höndum að því
að vinna þær myndir sem komnar eru
og skipuleggja næstu myndatökur sem
fara fram í mars.
Þær hafa nú þegar tekið myndir
í Hegranesinu, Reykjaströnd og við
Ósbrúna.
Þær leggja áherslu á að flest sem
þær vinna með tengist Skagafirði.
Allar fyrirsæturnar eru skagfirskar,
flestir búningar eru skagfirskir og hafa
þær nú þegar fengið lánaðar og notað
gærur frá Loðskinn og búið til kjóla úr
skagfirskum þara.
Stefnan er að halda áfram með
verkefnið af fullum krafti og bjóða
Skagfirðingum upp á skemmtilega
sýningu næsta sumar. Þær bjóða að
sjálfsögðu alla álfa og huldufólk
velkomið líka. /GSG
Anna Lilja og Pálína Ósk.