Feykir - 05.12.2013, Page 2
2 Feykir 46/2013
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Ferlar, varpanir og mengi
Samkvæmt nýbirtum niðurstöðum PISA könnunarinnar sem
15 ára unglingar í 65 löndum um allan heim þreyttu kemur
fram að þeim íslensku hafi hrakað í stærðfræðilæsi á þessum
áratug og samkvæmt vef menntamálaráðuneytisins gildir það
einnig um frammistöðu í lesskilningi og náttúrufræði. Nú
keppist fólk við að finna haldbærar skýringar á þessum
ósköpum og hefur Herra Hundfúll (á Feyki.is), sem fylgdist
með umræðunni í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, komist að
því við erum með góða skóla, frábæra kennara, slappa
nemendur og ömurlega foreldra. Kannski er þetta rétt því það
læra börnin sem fyrir þeim er haft. Lesskilningur er slæmur
samkvæmt könnuninni og vera má að ástæðan sé sú að minna
er lesið af bókmenntum en áður. Og hvers vegna skildi það
vera? Jú, kannski eru þær ekki nógu áhugaverðar og krakkarnir
eyða meiri tíma í tölvunni. Var nokkuð spurt um tölvulæsi í
könnuninni? Ég veit það ekki. Náttúrufræðin kom heldur ekki
vel út og þá spyr ég foreldra: Hversu oft ræðið þið við börnin
ykkar um náttúrufræði? Þið kannski eruð ekkert vel að ykkur í
þeirri grein? Það gerir heldur ekkert til því þið getið alltaf
gúgglað það sem þið þurfið að vita.
En stærðfræði? Hvernig gengur ykkur að hjálpa börnunum við
heimanámið í stærðfræðinni? Er gaman að reikna út hallatölu
striks eða eyða sviga? Stærðfræðin hefur reynst mörgum erfið í
gegnum heimssöguna og verður það áfram allt fram að
heimsendi hvernig svo sem kennarar, skóli eða foreldrar munu
standa sig. Líklega þarf að koma þessum fræðum meira inn í
tölvuleikina, þar eru krakkarnir á heimavelli og vinna stóra
sigra en þá þarf þetta allt saman að vera spennandi og áhugavert
svo árangur náist.
Páll Friðriksson
Fjölbreytnin kom á óvart
Þann 29. nóvember fór hópur
nemenda FNV í vísindaferð
þar sem verkfræðistofan Stoð
var heimsótt. Ferðin hófst á
því að Eyjólfur Þórarinsson,
framkvæmdastjóri og einn af
eigendum verkfræðistofunnar
sá um leiðsögn í ferð um
Sauðárkrók og gerði grein
fyrir verkefnum sem verk-
fræðistofan hefur unnið að
undanfarin ár.
Að því loknu var haldið á
verkfræðistofuna sjálfa þar sem
starfsmenn kynntu sig og störf
sín og buðu upp á léttar
veitingar. Að sögn Kristjáns B.
Halldórssonar fengu nemendur
að kíkja á verkin á teikni-
borðunum og í tölvunum og
óhætt að segja að fjölbreytnin
Vísindaferð á verkfræðistofu
Tveir bæir fengu
viðurkenningu
Á nýliðinni Uppskeruhátíð
Ferðaþjónustu bænda veitti
skrifstofa Ferðaþjónustu
bænda sex bæjum innan
samtakanna viðurkenningar.
Er það í þriðja sinn sem
skrifstofan veitir verðlaun sem
þessi en viðurkenningar voru
veittar í tveimur flokkum.
Í flokknum Framúrskar-
andi ferðaþjónustubær 2013
fengu Þórólfur og Guðný á
Sveitasetrinu Hofsstöðum í
Skagafirði viðurkenningu
fyrir einstaka frammistöðu á
árinu og byggist matið á
umsögnum gesta auk þess
sem leitað var umsagna
erlendra ferðaskrifstofa. Auk
þeirra Þórólfs og Guðnýjar
fengu Ólafur og Kristín á
Grímsborgum, og Vilborg á
Ytra Laugalandi í Eyjafjarðar-
sveit viðurkenningu fyrir
sömu frammistöðu.
Í flokknum Hvatningar-
verðlaun Ferðaþjónustu bænda
2013 fékk Arinbjörn á Brekku-
læk í Miðfirði viðurkenningu
fyrir einstaka og vel útfærða hug-
mynd og frumkvæði að upp-
byggingu í ferðaþjónustu sem
miðar að skemmtilegri og inni-
haldsríkri upplifun fyrir gesti.
Aðrir viðurkenningahafar
í þessum flokki voru þau
Harald og Bergþóra á Hótel
Rauðuskriðu í Aðaldal og
Björn Ingi í Gistihúsinu
Kríunesi við Elliðavatn. /PF
Ferðaþjónustubændur á Norðurlandi vestra
Hlaut jafnlaunavottun VR
Í síðustu viku var Byggða-
stofnun afhent staðfesting á
því að hún hafi hlotið jafn-
launavottun VR og því önnur í
röð íslenskra ríkisstofnana til
að ná þeim áfanga.
Þar með er staðfest að búið
sé að kerfisbinda launa-
ákvarðanir, koma upp jafn-
launakerfi samkvæmt kröfum
jafnlaunastaðals og að nú
verði kerfisbundið fylgst með
því hjá stofnuninni að starfs-
fólk sem vinnur sömu eða
jafnverðmæt störf hafi sam-
bærileg laun óháð kynferði.
Jafnlaunavottun VR er fyrir
öll fyrirtæki og stofnanir,
burtséð frá stéttarfélagsaðild
starfsmanna.
Það var Ólafía B. Rafns-
dóttir, formaður VR, sem
afhenti Aðalsteini Þorsteins-
syni, forstjóra Byggðastofn-
unar, vottunina og sagðist við
það tækifæri fagna því að
Byggðastofnun
Skagaströnd
Vinnuslys
á höfninni
Vinnuslys varð við löndun í
Skagastrandarhöfn sl.
þriðjudag er ungur maður
varð fyrir fiskikari sem var
verið að hífa úr lest báts.
Svo illa vildi til að krókur,
sem karið hékk í, gaf sig með
þeim afleiðingum að karið
féll á manninn sem brotnaði
við það á báðum höndum.
Var hann fluttur með sjúkra-
bíl á sjúkrahúsið á Akureyri.
/PF
Kennari og fyrrum nemendur FNV Eyjólfur Þórarinsson framkvæmdastjóri, Þórður Karl Gun-
narsson, tæknifræðingur og Atli Gunnar Arnórsson, verkfræðingur. Mynd: Guðný Sif
hafi komið þeim á óvart og lýstu
þau yfir ánægju með vísinda-
ferðina.
-Á verkfræðistofunni starfa
m.a. fyrrum nemendur og
kennarar FNV og hver veit
nema einhver nemandinn hafi
fengið í vísindaferðinni hug-
mynd um háskólanám í tækni-
grein eða arkitektúr að loknu
námi í FNV, segir Kristján. /PF
Byggðastofnun hafi ákveðið
að taka þetta mikilvæga skref
og sækjast eftir Jafnlauna-
vottun VR.
-Þessi faglega úttekt er í
góðu samræmi við þá vinnu
sem unnin hefur verið í launa-
og mannauðsmálum innan
stofnunarinnar á undanförn-
um árum og staðfestir það
sem við höfum talið okkur
vita, að sömu laun eru greidd
hér fyrir jafnverðmæt störf,
sagði Aðalsteinn við þetta
tækifæri og telur áfangann
mjög merkilegan í starfi
stofnunarinnar. /PF
Vilja opna gistihús og krá
Gæðingur brugghús hefur fest
kaup á húseigninni á
Aðalgötu 19 á Sauðárkróki
sem þekktast er fyrir að hafa
hýst apótek bæjarins til
margra ára.
Áætlað er að starfrækja krá í
syðri helmingi hússins en hostel
eða farfuglaheimili í þeim
norðari.
Árni Hafstað eigandi Gæð-
ings segir að allt sé á byrjunar-
stigi ennþá og raunar allt of
snemmt að tjá sig nokkuð um
áformin þar sem ekki sé búið að
sækja um leyfi ennþá. Skrifað
var undir húskaupin á dög-
unum og var Árni ekki kominn
með lykil að húsinu þegar
Feykir náði tali af honum. /PF
Gæðingur á Aðalgötuna
Tæplega 50%
fjölgun nemenda
Skráningu í dreifnám fyrir
vorönn lauk um síðustu helgi
og mun nemendum dreifnáms
í Austur-Húnavatnssýslu
fjölga um sex um áramót og
hefja því 19 nemendur nám
að loknu jólaleyfi.
Nýnemarnir eru ólíkir inn-
byrðis, þeir hafa ýmist verið í
öðrum skólum nú á haustönn og
eru að flytja heim eða eru að
byrja nám eftir langt hlé. Einnig
eru dæmi um að nemendur hafi
búið á heimavist FNV og nýti nú
tækifærið og haldi áfram námi í
heimabyggð, segir Ásdís Ýr
Arnardóttir, umsjónamaður
dreifnámsins. Hún segir þessi
tíðindi vera sérlega gleðileg og
sýna svo ekki verður um villst að
dreifnám í A-Hún sé að festa sig í
sessi og sanna gildi sitt fyrir
heimamönnum./PF
Dreifnám í A-Hún
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Þú finnur
þínar
fréttir
á...