Feykir - 05.12.2013, Qupperneq 5
46/2013 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Powerade-bikar karla : Tindastóll - Reynir Sandgerði 130-62
Helgadagur í Síkinu
Það var spilað í Powerade-bikarkeppni KKÍ á
Króknum sl. sunnudag en í karlaflokki komu
Sandgerðingar í heimsókn. Því miður var fátt
um fína drætti í liði gestanna og leikurinn
algjörlega óspennandi frá nánast fyrstu
mínútu til hinnar síðustu. Í liði heimamanna
voru Helgarnir Viggós og Margeirs
ómótstæðilegir og virtust skemmta sér hið
besta þær mínútur sem þeir fengu að leika
sér í 130-62 stórsigri.
Leikmenn Reynis héldu í við Stólana fyrstu
þrjár mínúturnar en í stöðunni 12-9 skildu leiðir
og heimamenn pressuðu ráðþrota gestina í kaf.
Helgi Margeirs fann sparifjölina sína og skaut
Sandgerðina í kaf en það var oftar en ekki sem
Reynismönnum mistókst að koma boltanum yfir
miðjuna og ódýrar körfur Stólanna fylgdu í
kjölfarið. Gestirnir voru ekki í nokkru formi til
að eiga við spræka Stóla en það er ekki oft sem
maður hefur séð Bárð rúlla öllum mannskapnum
í fyrsta leikhluta líkt og í þessum leik – fyrir utan
Flake sem var hafður á bekknum nánast upp á
punt og kom ekki við sögu í leiknum.
Staðan var 32-14 að loknum fyrsta leikhluta
og ekki tók betra við hjá gestunum í öðrum
leikhluta en hann endaði 45-12 og staðan því 77-
26 í hálfleik.
Heldur hægðu heimamenn ferðina í síðari
hálfleik, nema kannski Helgi Viggós sem
hreinlega valtaði yfir allt og alla en kappinn gerði
37 stig í leiknum, hirti 16 fráköst, þ.m.t. 7 í
sókninni og þá stal hann 7 boltum líkt og Pétur
Birgis. Stólarnir tóku 63 fráköst gegn 46 gestanna
og áttu 51 3ja stiga skot en settu 15 niður en þar
var Helgi Margeirs vaskastur með 6 í 10 til-
raunum. Finnbogi Bjarna setti niður 3 þrista í 7
tilraunum en boltinn gekk vel í sókninni og
leikmenn Tindastóls í endalausum opnum
færum allan leikinn. Þriðji leikhluti vannst 26-13
en í fjórða leikhluta opnaðist aðeins fyrir Reggie
Dupree en hann hefur örugglega átt skemmtilegri
stundir en í Síkinu í dag. Lokatölur 130-62.
Tindastólsmenn eru því komnir í 8 liða úrslit í
Powerade-bikarnum og vonandi verða lukku-
dísirnar á okkar bandi þegar dregið verður í
næstu umferð. Næstkomandi föstudag spila
strákarnir við Vængi Júpiters í Rimaskóla í 1.
deildinni og annan föstudag verður toppslagur
í Síkinu þegar Þór Akureyri kemur í
heimsókn en bæði liðin hafa hingað til sigrað
alla leiki sína. /ÓAB
Stig Tindastóls: Helgi Viggós 37, Helgi Margeirs 22, Viðar
Ágústs 12, Finnbogi 11, Pétur Birgis 11, Proctor 10, Friðrik
Stefáns 8, Sigurður Stefáns 7, Páll Bárðar 5, Ingvi Ingvars 5
og Ingimar Jóns 2.
Eitthvað ævintýralegt
á bakvið fjöllin
Út er kominn nýr diskur með
þeim Fúsa Ben og Vordísinni
sem inniheldur níu frum-
samin lög og texta eftir þau
sjálf og eru lögin að þeirra
sögn mjög fjölbreytt.
Diskurinn sem ber heitið
Tímamót - Behind the
mountains, er tekinn upp og
unninn af Fúsa í Stúdíó
B e n m e n .
H l j ó ð f æ r a -
skipan er allt
frá því að vera
kassagítar og
svo trommur,
bassi gítar,
píanó og fleiri
hljóðfæri auk
söngs. -Blanda
af ýmsum
tónlistarstefnum. Acoustic stíll
yfir flestum lögunum og ein-
lægni, segir Silla sem semur
alla textana á disknum.
Hún segir að sennilega séu
þrjú ár síðan þau byrjuðu að
semja fyrsta lagið á plötuna og
hafa svo komið eitt og eitt en
síðasta lagið sömdu þau í
sömu vikunni og platan fór í
framleiðslu.
Samvinna þeirra Sillu og
Fúsa gengur greinilega vel en
hún segir að stundum komi
hún með laglínu sem Fúsi
vinnur úr en stundum semur
Fúsi lög sem hún semur svo
laglínu við.
Nafnið á plötunni, Tíma-
mót - Behind the mountains, á
sér smá sögu en Silla varð 30
ára fyrir tveimur árum og
ákvað hún að koma út plötu í
stað þess að halda upp á
afmælið. Var hún strax
ákveðin í því að platan myndi
hafa bæði íslenskt og enskt
nafn. Þarna urðu viss tímamót
í hennar lífi og fannst hún
þurfa að gera
e i t t h v a ð ,
Behind the
m o u n t a i n s
kemur svo út
frá því að það
er eitthvað
ævintýralegt á
bakvið fjöllin.
Þau skötu-
hjú stefna á að
halda útgáfutónleika í janúar
eða febrúar á nýju ári en til
þess að það gangi eftir þarf að
æfa upp hljómsveit sem spilar
með þeim þar sem Fúsi lék á
öll hljóðfærin inn á diskinn en
eins og nærri má geta á erfitt
með að spila á þau öll í einu.
Diskinn er hægt að nálgast
í Skagfirðingabúð, KS Varma-
hlíð, KS Hofsós, Hlíðarkaup
og fer að þeirra sögn væntan-
lega fljótlega í sölu á Akureyri
og í Reykjavík. Einnig er hægt
að hafa sam-band við þau á
Facebook undir Fúsi Ben &
Vordísin eða senda tölvupóst á
sigfusben@gmail.com. /PF
Tímamót hjá Fúsa Ben og Vordísinni
Fúsi Ben og Vordísin. Mynd: Hjalti Árnason
Frjálsíþróttafólk Skagafjarðar 2013
Jóhann Björn og Þóranna Ósk best
Jóhann Björn, Þóranna Ósk, Haukur Ingvi og Fríða Ísabel. Mynd: Tindastóll.is
Óskað eftir ábendingum
Ungmennasamband Vestur-
Húnvetninga óskar eftir
ábendingum frá íbúum
Húnaþings vestra vegna
tilnefningar til íþróttamanns
USVH árið 2013.
Óskað er eftir ábendingum
um íþróttafólk sem sýnt hefur
góðan árangur í sinni keppnis-
grein árið 2013. Ábendingarn-
ar skulu berast stjórn USVH
fyrir 11. desember nk. Hægt er
að skila inn ábendingum ásamt
greinagerð yfir árangur ársins á
skrifstofu USVH að Höfðabraut
6, 530 Hvammstanga, eða með
tölvupósti á netfangið usvh@
usvh.is. /PF
Íþróttamaður ársins hjá USVH
Uppskeruhátíð frjálsíþrótta-
fólks í Skagafirði fór fram
sunnudaginn 24. nóvember
sl. í hátíðarsal Fjölbrauta-
skólans Norðurlands vestra á
Sauðárkróki.
Jóhann Björn Sigurbjörns-
son og Þóranna Ósk Sigurjóns-
dóttir voru útnefnd „Frjáls-
íþróttafólk Skagafjarðar 2013“ í
karla- og kvennaflokkum.
Fríða Ísabel Friðriksdóttir og
Haukur Ingvi Marinósson voru
valin efnilegust í flokki 11-15
ára.
Samkvæmt heimasíðu
Tindastóls voru fjölmargar
aðrar viðurkenningar veittar
fyrir góð afrek og ástundun. /PF
Powerade bikar konur : Tindastóll - Snæfell 46-94
Tap gegn sterku liði Snæfells
Tindastólsstúlkur mættu ofjörlum sínum er
léku gegn liði Snæfells í Powerade bikarnum
sl. sunnudag. Þrátt fyrir mikinn getumun var
þar um fínustu skemmtun að ræða samkv.
heimasíðu Tindastóls og sást það strax í
upphafi leiks að Hólmarar voru ekki komnir
norður í land til að slaka eitthvað á.
-Gaman var að sjá ungt lið Tindastóls eiga við
stelpurnar úr Hólminum og geta þær borið
höfuðið hátt eftir að berjast hetjulega allan
leikinn og fengið dýrmæta reynslu að spila við
eitt af bestu liðum landsins. Þrátt fyrir yfirburði
Snæfells héldu stelpurnar ótrauðar áfram og
börðust allt til enda og eiga þær hrós skilið fyrir
það, allar stúlkurnar komu við sögu í leiknum og
er það bara flott fyrir þær að fá svona stóran leik í
reynslubankann, segir á Tindastóll.is. Lokatölur
urðu 46-94 fyrir Snæfell. Næsti leikur hjá
stelpunum er við topplið Breiðabliks 8. des. í
Síkinu og má búast við hörkuleik þar. /PF