Feykir - 05.12.2013, Blaðsíða 11
46/2013 Feykir 11
Finnbogi og Sigrún á Skagaströnd kokka
Sjúklega góðir þorskhnakkar
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
ætti að setja skóinn út í glugga strax í kvöld.
Tilvitnun vikunnar
Líkt og kletturinn lætur vindinn ekki á sig fá,
lætur greint fólk hrós og skammir ekki á sig fá.
- Buddha
Sudoku
ÓTRÚLEGT EN KANNSKI SATT
Skák og mát
Norski stórmeistarinn Magnus Carlsen varð í síðustu
viku heimsmeistari í skák eftir öruggan sigur á
Indverjanum Viswanathan Anand með sex og hálfum
vinningi gegn þremur og hálfum. Þegar annar hvor
kóngurinn er felldur er leiknum lokið með máti. Ótrúlegt
en kannski satt kemur orðasambandið „skák og mát“ úr
persnesku, "Shah Mat", og þýðir "konungur er dauður."
Á afmæli J. Hall.
Það var þungt í Jónasi mínum þegar við sátum
kvöld eitt yfir öli og hann rifjaði upp nóttina
forðum við Galtará. Sú nótt var honum algjör ferðalok.
Brostinni röddu mælti hann fram þessar línur: Fjær er nú
fagurri fylgd þinni sveinn í djúpum dali, ástarstjarna yfir
Hraundranga skín á bak við ský.
HINRIK MÁR JÓNSSON
Örlaga örsögur
Það eru þau Finnbogi
Guðmundsson og Sigrún
Líndal Þrastardóttir á
Skagaströnd sem eru
matgæðingar Feykis þessa
vikuna og ætla þau að bjóða
uppá svo góða þorskhnakka
að það er varla heilbrigt og
heitan eplarétt með ís.
Þau Finnbogi og Sigrún
skora á Jónas Fanndal Þor-
valdsson og Maríu Ösp Ómars-
dóttur að koma með eitthvað
ljúffengt.
AÐALRÉTTUR
Sjúklega góðir
þorskhnakkar
að hætti pabba
4 þorskhnakkar
8 hvítlauksrif (fínsaxað)
½ rauð paprika (strimlar)
½ gul paprika (strimlar)
1 rauðlaukur saxaður
½ púrrulaukur (graslaukur)
1 fiskiteningur
1 kjúklingateningur
½ lítri vatn
2 tsk karrý
1 tsk cummen
matreiðslurjómi
með matreiðslurjóma. Borið
fram með sætum kartöflum
með rósmarín og fersku salati.
EFTIRRÉTTUR
Heitur eplaréttur
með ís
3 græn epli
125 gr sykur
125 gr smjör
125 gr hveiti
Salthnetur
Súkkulaði rúsínur
Aðferð: Eplin eru afhýdd og
skorin í litla bita. Hveiti, sykur
og smjör er sett í skál og
blandað saman með hönd-
unum. Eplin eru sett í botninn
á eldföstu móti og hveiti-
blandan sett yfir, salthnetum
stráð yfir. Sett inn í ofn á 180°C
í 40 mín. eða þar til rétturinn
hefur fengið gullinbrúnan lit.
Rétturinn tekin út og súkku-
laðirúsínum stráð yfir. Borið
fram heitt með vanilluís.
Verði ykkur að góðu!
ÞORSTEINN INGI KÁRASON
-Hurðaskellir af því að hann
skellir hurðum.
Feykir spyr...
[SPURT Á KIRKJUTORGI
Á SAUÐÁRKRÓKI]
Hver er
uppáhalds
jólasveinn-
inn þinn?
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
Aðferð: Léttsteikja lauk í
smjöri, bæta hvítlauk út í og
svo papriku. Þegar búið er að
svissa þetta er volgu vatni hellt
yfir og teningarnir og kryddin
sett út í og soðið. Steikja
þorskhnakkana sem hafa verið
velt upp úr hveiti og kryddaðir
aðeins með salti og pipar, setja
þá í eldfast mót og hella síðan
helmingnum af grænmetis-
blöndunni yfir. Sett inn í ofn og
eldað í u.þ.b 20 mín. á 200°C.
Hinn helmingurinn af græn-
metisblöndunni er settur í pott
og notaður í sósu og þykkt
REBEKKA ELÍNA
RÓBERTSDÓTTIR
-Stúfur af því að hann er lítill.
ANTON ÞORRI AXELSSON
-Stekkjastaur af því að hann
stelur kindum.
UNA KAREN
GUÐMUNDSDÓTTIR
-Stúfur af því að hann er lítill
eins og ég.