Landshagir - 01.11.2013, Page 85
83
Vinnumarkaður
Hagstofa Íslands hefur rannsakað vinnu-
markaðinn hér á landi frá árinu 1991.
Rannsóknin gefur áreiðanlegar upplýsingar
um stöðu fólks á vinnumarkaði, svo
sem atvinnuþátttöku, fjölda starfandi,
atvinnuleysi og vinnutíma.
Laun og launaþróun
Útreikningar á launaþróun og launum
á almennum vinnumarkaði byggjast á
upplýsingum úr launarannsókn Hagstofu
Íslands. Launarannsóknin er byggð á
úrtaki fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana
með tíu eða fleiri starfsmenn og er gagna
aflað mánaðarlega rafrænt fyrir öll störf.
Safnað er ýtarlegum upplýsingum um
laun, launakostnað, greiddar stundir og
ýmsa bakgrunnsþætti starfsmanna og
launagreiðenda.
Mánaðarleg launavísitala mælir mánaðar-
legar breytingar á reglulegum launum á
íslenskum vinnumarkaði og sýnir almenna
launaþróun. Ársfjórðungsleg launavísitala
gefur sundurliðaðar upplýsingar um
launaþróun einstakra hópa á íslenskum
vinnumarkaði. Birtar eru niðurstöður eftir
launþegahópum og atvinnugrein.
Dregur úr atvinnuleysi á milli ára
Árið 2012 voru 180.100 á vinnumarkaði
sem jafngildir 80,5% atvinnuþátttöku.
Fjöldi starfandi var 169.300, hlutfall
þeirra af vinnuafli var 75,6%. Árið 2012
voru að meðaltali 10.900 manns án vinnu
og í atvinnuleit eða 6,0% vinnuaflsins.
Atvinnuleysi var því nokkru lægra en árið
2011 þegar það mældist 7,1% og fækkaði
atvinnulausum um 1.800 manns. Árið
2012 var atvinnuleysi að meðaltali 6,7% á
höfuðborgarsvæðinu og 4,8% utan höfuð-
borgarsvæðisins. Atvinnuleysi mældist
6,4% hjá körlum og 5,7% hjá konum.
Heildarvinnustundir tæpar 40 klukkustundir
á viku
Árið 2012 var meðalfjöldi vinnustunda
39,8 klukkustundir á viku en 40,0 árið
2011. Þegar litið er á þróun vinnustunda
hjá körlum frá árinu 1991 til 2012 má sjá
að vinnustundum þeirra hefur fækkað
nokkuð eða úr 51,3 klukkustundum í 43,9.
Á sama tímabili hafa vinnustundir kvenna
verið tiltölulega stöðugar eða í kringum 35
klukkustundir. Árið 2012 voru þær 35,2.
3Laun, tekjur og vinnumarkaðurWages, income and labour market
Framkvæmdir á Klapparstíg
© Ómar Óskarsson