Landshagir - 01.11.2013, Page 177
175
Hagstofa Íslands hefur safnað
upplýsingum um framleiðslu iðnfyrir-
tækja allt frá árinu 1953. Grundvöllur
söfnunar og úrvinnslu upplýsinga er vöru-
skrá Evrópusambandsins, PRODCOM, sem
gefur kost á samanburði á framleiðslu hér á
landi við önnur lönd á Evrópska efnahags-
svæðinu. Upplýsingum er safnað um magn
og verðmæti seldrar framleiðsluvöru. Að
auki er upplýsingum safnað um veitta
þjónustu sem í vöruskránni er flokkuð
sem framleiðsla, þar með talin sérhæfð
viðgerðarþjónusta.
Tölur um byggingu íbúðarhúsnæðis koma
frá Þjóðskrá Íslands sem geymir allar
grunnupplýsingar um lönd, lóðir og spildur
auk mannvirkja sem á þeim standa.
Framleiðsluvörur seldar fyrir
750 milljarða króna
Framleiðsluvörur voru seldar fyrir
750 milljarða króna árið 2012 og jókst
verðmæti þeirra um 4,2% frá fyrra ári.
Á sama tíma hækkaði vísitala fram-
leiðsluverðs um 1,1% og hefur því verðmæti
seldra framleiðsluafurða aukist um 3,1%
að raungildi. Af atvinnugreinum skilaði
matvæla- og drykkjarvöruframleiðsla
mestu eða 364 milljörðum króna, þar af
skiluðu fiskafurðir 35,7% og framleiðsla
málma 32,7%. Verðmæti seldra fiskafurða
og málma nam rúmum 513 milljörðum
króna, 68,4% af heildarverðmæti seldra
framleiðsluvara. Að frátöldum fiskafurðum
og málmum jókst verðmæti seldra fram-
leiðsluvara um 10% á milli ára.
Verðmæti útfluttra fiskafurða jókst um 7%
Útflutningsverðmæti framleiddra
fiskafurða voru tæpir 268 milljarðar króna
árið 2012, sem er rúm 7% aukning frá árinu
2011, en þá voru seldar út sjávarafurðir
fyrir tæplega 249 milljarða króna. Á sama
tíma jókst magn útfluttra fiskafurða
um 17,8%, úr 642 þúsund tonnum
árið 2011 í 756 þúsund tonn árið 2012.
Útflutningsverðmæti framleiddra málma
var um 245 milljarðar króna árið 2012
sem er lækkun um 4,1 % samanborið við
tæplega 256 milljarða árið 2011.
Milli áranna 2011 og 2012 varð samdráttur
hlutfallslega mestur í framleiðslu á tölvu-,
rafeinda- og optískum vörum; rafbúnaði,
þar sem verðmæti seldra framleiðsluvara
dróst saman um tæplega 1,6 milljarð króna
eða um 9,8% samanborið við árið 2011.
8Iðnaður og byggingarstarfsemiManufacturing and construction
Byggingarvinna
© Ragnar Axelsson