Muninn - 01.02.1910, Blaðsíða 32
Mmmííf
28
Skrítlur.
--0—
SNJALLRÆÐI.
Kennarinn: Til þess að eg geti undir eins
séð, hverja vantar í bekkinn, ætla eg að biðja
þá, s e ra e k k i e r u k o m n i r, að risa úr sætum
sínum og standa meðan eg skrifa nöfnin á þeim.
HEIÐRA ELLINA.
Veitingamaðurinn: Þessi súpa á það
fyllilega skilið, að menn taki ofan fyrir henni.
Gesturinn (Þegar hann er búinn að smakka
súpuna): Það er alveg satt. Öllum er skylt
að bera lotningu fyrir ellinni.
VITUR HUJSBUR.
A. : Eg átti einu sinni hund, sem var svo
vitur, að hann þekti bófa frá heiðarlegum mönn-
um.
B. : Eigið þér hundinn enn?
A.: Nei, eg varð að farga honum af því hann
beit mig.
SLÆMUR SJÚKDÓMUR.
Herforinginn: — Taugaveíki, — tauga-
veiki — slæmur sjúkdómur, — já, annaðhvort
deyja menn úr henni eða verða fábjánar á eftir.
Eg hefi sjálfur legið í henni.