Fréttablaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 35
Q7 e-tron Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. 5 á ra á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H EK LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fi nn a á w w w .h ek la .is /a by rg d HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is 10.420.000 kr.Verð frá S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 2 8 . M A Í 2 0 1 8 FRJÁLSAR Íslendingar munu eiga þrjá fulltrúa á lokamóti NCAA, bandaríska háskólaíþróttakerfisins, í frjálsum íþróttum. Þetta varð ljóst eftir að Sindri Hrafn Guðmundsson tryggði sér þátttökuseðil í spjót- kasti. Tryggði hann sér um leið þátt- tökurétt á Evrópumeistaramótinu í Berlín í ágúst en fyrst keppir hann í Bandaríkjunum. Fyrir höfðu Hilmar Örn Jónsson, í sleggjukasti, og Hlynur Andrésson, í hlaupum, tryggt sér þátttökurétt. Hlynur tryggði sér þátttöku- rétt og bætti um leið 15 ára gamalt Íslandsmet í 3000 metra hlaupi á laugardaginn en hann er nú methafi í 3.000 metra hlaupi, 10.000 metra hlaupi og 3.000 metra hindrunar- hlaupi. – kpt Þrír Íslendingar í lokamót NCAA FÓTBOLTI Fulham kom í veg fyrir að Birkir Bjarnason og félagar í Aston Villa kæmust upp í ensku úrvals- deildina á nýjan leik en Fulham vann 1-0 sigur í umspilsleik liðanna á Wembley um helgina. Eru Ful- ham-menn því komnir aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir fjögur ár í Championship-deildinni. Birkir sat á bekknum allan leik- inn og kom ekkert við sögu. Einn Íslendingur er í herbúðum Fulham en það er Jón Dagur Þorsteinsson sem hefur verið að gera góða hluti með varaliði félagsins. – kpt Fulham upp í efstu deild á ný FÓTBOLTI Guðlaugur Victor Pálsson leiddi lið sitt til sigurs í bikarkeppn- inni í Sviss í gær á fyrsta ári sínu í herbúðum FC Zürich. Þeir lögðu ný- krýnda meistara Young Boys að velli 2-1 þrátt fyrir að leika manni færri stærstan hluta seinni hálfleiks. Leikurinn fór fram á heimavelli Young Boys en Zürich náði að halda út og fara með sigur af hólmi eftir að Young Boys minnkaði muninn á lokamínútunum. Strax gerður að fyrirliða Guðlaugur Victor var skiljanlega himinlifandi þegar Fréttablaðið náði í hann eftir leik en þetta er fyrsti titill hans á ferlinum. Umboðsmaður hans, Magnús Agnar Magnússon, benti á að hann væri fyrsti íslenski fyrirliðinn sem tæki við bikar í tíu ár. „Tilfinningin var meiriháttar, það var frábært að fá að upplifa að taka við fyrsta titlinum sem atvinnu- maður. Þetta var afar erfiður leikur, við lékum lengi einum manni færri og þeir lágu á okkur eftir að þeir minnkuðu muninn en við stóðumst það. Tilfinningin þegar dómarinn flautaði af var eiginlega bara mögn- uð,“ segir Guðlaugur og bætir við: „Þetta voru algjör óþarfa spjöld sem Sarr fékk en við héldum góðu skipulagi, gáfum þeim fá tækifæri og í raun er bara sætara að hafa náð að halda þetta út eftir að hafa verið einum færri svona lengi. Svo hjálp- aði það ekki að leikurinn fór fram á þeirra heimavelli á gervigrasi en við sýndum að það skipti okkur engu máli.“ Guðlaugur kom til Sviss frá Esbjerg fyrir tímabilið en hann var gerður að fyrirliða eftir aðeins sex mánuði. Hefur hann því borið fyrirliðabandið í Danmörku, Svíþjóð og Sviss. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í liði sem er að berjast um titla og mér líður afar vel hér. Ég fékk fyrirliða- bandið eftir aðeins sex mánuði sem var mikill heiður. Mig hefur dreymt um að vinna titla síðan ég var lítill strákur og það var frábært að ná að vinna sinn fyrsta titil og bæta honum við á ferilskrána. Með því kemur sæti í Evrópudeildinni sem er spennandi verkefni.“ Líður vel í Sviss Guðlaugur Victor hefur komið sér vel fyrir í Sviss en orðrómur hefur heyrst um áhuga frá Þýskalandi. Hann segir að tilboðin þurfi að vera afar freistandi til að hann skoði þau.. „Ég hef heyrt einhverjar sögu- sagnir. Það er alltaf gaman að heyra af þeim en ég er mjög ánægður hér. Við erum að fara í Evrópukeppni sem verður afar spennandi, svo líður mér afar vel hérna. Zürich er frábær borg og Sviss fallegt land. Það þarf eitthvað mjög mikið til að ég íhugi að fara héðan.“ Hann var ekki valinn í 23 manna hóp Heimis Hallgrímssonar fyrir HM í Rússlandi en hann var síðast kall- aður í landsliðið í ársbyrjun 2017. „Að sjálfsögðu vonaðist maður eftir kallinu, það er markmið allra knattspyrnumanna að spila fyrir þjóðina sína. Maður hugsaði auð- vitað út í það hvort ég ætti tækifæri, sérstaklega þar sem ég átti mjög gott tímabil, en því miður kom kallið ekki,“ segir Guðlaugur að lokum. kristinnpall@frettabladid.is Mikill heiður að vera gerður að fyrirliða strax á fyrsta árinu Guðlaugur Victor Pálsson tók við bikarmeistaratitlinum í Sviss sem fyrirliði FC Zürich um helgina. Er þetta fyrsti titill hans á ferlinum en liðið lagði meistarana að velli á heimavelli þeirra í úrslitunum. Hann hefur heyrt af áhuga liða frá Þýskalandi en segir að það þurfi að vera afar spennandi til að hann skoði það. Guðlaugur Victor fagnar titlinum í leikslok í gær. NORDICPHOTOS/AFP. 2 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E C -0 A 3 4 1 F E C -0 8 F 8 1 F E C -0 7 B C 1 F E C -0 6 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.