Póstblaðið - 01.07.1920, Page 14
XII. Vorutollur.
Samkvæmt lögum um vörutoll ber að greiða i ríkissjóð 60 aura af
hverjum póstböggli, sem kemur til landsins, og mega póstmenn eigi afhenda
viðtakanda nokkurn böggul útlendan fyr en þessir 60 aurar eru greiddir,
nema viðtakandi sanni að böggullinn hafi að innihaldi að eins prentaðar
bækur og blöð, því að þeir bögglar eru undanþegnir þessu gjaldi. Þessa
60 aura skal greiða með því að líma frímerki á sendinguna fyrir upphæðinni,
og skal póstmaður ónýta frímerkin með stimpli.
Póstbögglar, sem eru endursendir til útlanda, eru og undanþegnir þessu
gjaldi.
XIII. Svarmerki.
Pósthúsin eru skyld að innleysa gildandi alþjóða svarmerki er útgefin
eru af erlendum póststjórnum, og jafngildir hvert svarmerki 20 aurum í
frímerkjum.
Peninga er ekki hægt að heimta af pósthúsum gegn svarmerkjum.
XIV. Aukaburðargjöld!:
Þegar verðbrjef eða böggulsendingar, sem eigi hafa farið úr vörsl-
um póststjórnarinnar, verða sendar aftur frá þeim stað, sem þær áttu að
fara til, eða þeim verður komið lengri veg hjer á fandi, skal borga auka-
burðargjald fyrir þann flutning 5 aura fyrir hvert 100 kr., ef peningar eru
sendir eða verðmætir munir, og fyrir böggulsendingar hálfan burðareyrir
eins og hann er ákveðinn í V. 1. a.—c.
Viðvíkjandi bögglum endursendum til útlanda, sjá töfluna C.
XV. Borgun á burðargjaldinu.
Burðargjald (og ábyrgðargjald) skal borga fyrirfram undir:
1. Ábyrgðarbrjef.
2. Peningabrjef og verðbrjef.
3. Böggla.
4. Póstávisanir.
5. Póstkröfur.
6. Móttökukvittanir og fyrirspurnir.
7. Krossbandssendingar og blöð og tímarit, sem fiutt eru samkv. IX. lið hjer
að framan.
8. Sendingar til konungs og konungsættingja.
9. Sendingar til stjórnarvaida og sveitar- eða bæjarstjórna, að undanskild-
um almennum brjefasendingum, som eru frá öðrum, en þesskonar mönn-
um, þegar þær að eins eru umbeðnar eða krafðar skýrslur eða umsagnir,
og sendandi hefir með eigin handai undirskrift vottað það á sendingunni.
10. Spjaldbrjef og brjef, sem eru opin, eða utan á þau er ritað svo, að mót-
takandi getur ályktað af því, hvað þau hafa inni að halda.
Einstakir menn, sem senda eitthvað með pósti, eru skyldir til að
borga eftir á ógoldna póstpeninga fyrir sendingar, sem eigi eru leystar inn
af þeim, sem við á að taka, ef þess verður krafist af póststjórninni.