Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.11.2017, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.11. 2017
harpa.is/stmartin #harpa
Academy
of St
Martin
in the
Fields
Sígild snilld,
barokk og eldheiturargentínskur tangó
Miðasala í síma 528 5050 og á harpa.is
Eldborg 21. nóv. kl. 19:30
Tónlistarstjóri Joshua Bell
NETSALA Single’s day, eða dagur
einhleypra, er haldinn árlega hinn
11. nóvember í Kína. Þann dag
halda stoltir einhleypir Kínverjar
upp á daginn en hann var valinn af
því að talan einn kemur fyrir í dag-
setningunni (11/11), reyndar fjór-
um sinnum.
Hátíðin hefur með tímanum
orðið stærsti netverslunardagur
heims. Alibaba hefur tekið þátt í
gleðinni og aldrei selst meira á
netinu en þann dag. Alibaba seldi
meira síðasta laugardag en á
Black Friday og Cyber Monday
samanlagt, eða fyrir 25,4 milljarða
dollara.
Dagur tileinkaður einhleypum er
orðinn einn stærsti netversl-
unardagur heims.
Dagur ein-
hleypra
SKÓLINN Ma gekk alltaf illa í skóla en
byrjaði að læra ensku á unga aldri. Hann
æfði sig daglega með því að tala við
enskumælandi gesti á Hangzhou-hóteli,
sem var í 70 mínútna hjólreiðaferð frá
heimili hans. Hann fór með gestina í
ókeypis útsýnisferð um borgina í níu ár til
þess að bæta enskukunnáttu sína. Hann
varð pennavinur eins þessara útlendinga,
sem kallaði hann Jack því honum fannst
erfitt að bera fram kínverskt nafn hans.
Ma átti erfitt með að komast inn í há-
skóla og tók það hann fjögur ár. Loks
komst hann inn í háskóla og útskrifaðist
með BA-gráðu í ensku árið 1988. Seinna
tók hann MBA-próf frá Cheung Kong-
háskóla.
Lærði ensku af
ferðamönnum
MA YUN, betur þekktur sem Jack Ma, fæddist 10. september 1964 í
Hangzhou í Zhejiang-héraði í Kína. Hann er stofnandi og stjórnarformaður
Alibaba Group, sem er samsteypa netfyrirtækja. Ma er í dag einn ríkasti
maður Asíu, metinn á tæpa 48 milljarða dollara. Hann er einn valdamesti
maður heims og hefur verið fyrirmynd margra.
Ma heyrði fyrst af netinu árið 1994 og kynntist því í fyrstu ferð sinn til
Bandaríkjanna árið 1995, sem hann fór í sem túlkur. Sér til furðu, eftir að
hafa leitað að bjórtegundum á netinu frá ýmsum löndum, komst hann að því
að engan kínverskan bjór var að finna á netinu.
Ma sá þá strax hvernig netið gæti opnað dyr að viðskiptatækifærum og
kínversk fyrirtæki tengst heiminum í gegnum það.
Í apríl 1995 fóru þau hjónin á stúfana ásamt vini og leituðu að einhverjum
sem gæti lánað þeim 20 þúsund dollara til að setja á stofn netfyrirtæki. Fyr-
irtækið sérhæfði sig í að búa til vefsíður fyrir kínversk fyr-
irtæki og kölluðu þau það China Yello Pages. Innan þriggja
ára höfðu þau þénað 800 þúsund dollara.
Sagan segir að Ma hafi eignast sína fyrstu tölvu þegar
hann var 33 ára, árið 1997. Tveimur árum síðar stofnaði
hann Alibaba. Það gekk ekki snurðulaust fyrir sig því hann
reyndi að fá fjárfesta í Silicon Valley en kom þar að lokuðum
dyrum. Loks tókst honum að fá Goldman Sachs og Softbank
til að leggja til samtals 25 milljónir dollara.
Fyrirtækið lenti í krísu þegar „dot com“-bólan sprakk ár-
ið 2000. Þá fékk hann Yahoo til þess að fjárfesta í 40% af Ali-
baba fyrir einn milljarð bandaríkjadala árið 2005.
Árið 2003 var enn enginn ágóði af Alibaba og tóku þá Ma
og hans fólk upp á því að setja í gang uppboðsnetsíðuna Taobao.com, og fór
þar í samkeppni við eBay, sem þá átti meirihlutann af kínverska netsíðuupp-
boðsmarkaðnum. Þeir tóku engar prósentur af sölunni og setti það fjármál
Alibaba í bobba.
En ekki liðu nema nokkur ár þar til hafði Alibaba tekið yfir kínverska net-
markaðinn. Síðan þá hefur Ma stofnað margar undirsíður, eins og Tmall og
AliExpress. Árið 2014 var Alibaba skráð á markað og var þá metið á 230
milljarða dollara. Síðan þá hefur vegur þess vaxið og Alibaba er nú ein
stærsta netverslun heims, metin á yfir 420 milljarða dollara. asdis@mbl.is
Fékk fyrstu
tölvuna 33 ára
’Í fyrstu ferð sinni til Banda-ríkjanna árið 1995, semhann fór í sem túlkur, kynntisthann netinu. Sér til furðu, eft-
ir að hafa leitað að bjórteg-
undum á netinu frá ýmsum
löndum, komst hann að því
að engan kínverskan bjór
var að finna á netinu.
Ma er í dag einn ríkasti
maður Asíu, metinn á
tæpa 48 milljarða dollara.
THAI CHI Jack Ma hefur æft kínversku
sjálfsvarnaríþróttina tai chi chuan. Árið
2009 hóf hann nám hjá Wáng Xi’an, mjög
vel þekktum sjálfsvarnarmeistara og kenn-
ara. Árið 2011 réð hann nokkra þekkta tai
chi-kennara til að koma og kenna hjá Ali-
baba og er starfsmönnum skylt að mæta.
Ma vill, að sögn aðstoðarmanns hans, að
einn dag verði hans minnst sem thai chi-
meistara, frekar en stofnanda stærsta int-
ernets fyrirtækis Kína.
Nýlega lék hann hlutverk í stuttmynd-
inni Gong Shou Dao (The Art of Attack
and Defence), sem er sýnd ókeypis á net-
inu. Þar leikur hann með frægum stjörn-
um úr þessum geira, Jet Li, Donnie Yen,
Sammo Hung Kam-bo, Tony Jaa og súmó-
glímukónginum Asashoryu.
Stutt útgáfa var sett á netið síðasta laug-
ardag og var fljótlega komin með sjö millj-
ón áhorfendur. Myndin hefur fengið mis-
jafna dóma. Ma lék í stuttmynd með frægum sjálfsvarnarmeisturum.
Sjálfsvarnaríþrótt og stuttmynd
Í PRÓFÍL
Jack Ma gekk alltaf illa í grunnskóla en hafði mikinn áhuga á ensku sem
hann lærði af ferðamönnum.