Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 5. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 4. tölublað 106. árgangur
FRÆÐSLA UM
SKÓLA OG
NÁMSKEIÐ ÓGEÐIÐ MEÐ KRÆSINGAR
RÓTARÝ STYRKIR
JÓNU OG HRAFN-
HILDI MÖRTU
MATARKLÚBBUR 12 STÓRTÓNLEIKAR 38SÉRBLAÐ 32 SÍÐUR
Morgunblaðið/Eggert
NPA Samningarnir opna fötluðu fólki nýja
möguleika á mörgum sviðum lífsins.
„Einn félagi minn þarf að vera
einn heima um það bil helming
mánaðarins. Hann er lamaður í
höndum og fótum og algjörlega
ósjálfbjarga án aðstoðar og því illa
settur eins og svo margir í svipaðri
stöðu,“ sagði Rúnar Björn Herrera
Þorkelsson, formaður NPA-
miðstöðvarinnar. NPA stendur fyr-
ir notendastýrða persónulega að-
stoð. Hann sagði að þessi félagi
hans væri með beingreiðslusamn-
ing við Reykjavíkurborg og hefði
beðið í fimm ár eftir að fá NPA-
samning.
Rúnar sagði að hefðbundin þjón-
usta við fatlað fólk væri yfirleitt
bundin við tilteknar stofnanir þar
sem þjónusta er veitt. NPA-
samningar gerðu fólki kleift að
komast út af heimili sínu, stunda
vinnu, nám, tómstundir, íþróttir,
ferðast, stofna fjölskyldu og taka
þátt í lífinu, líkt og ófatlað fólk, eft-
ir því sem getan leyfði. »11
Hefur beðið í
fimm ár eftir að
fá NPA-samning
Meira en í útrásinni
» Gangi spá VMST eftir munu
hafa orðið til allt að 29.300
störf á árunum 2012-2018.
» Til samanburðar hafi orðið
til 22.600 störf 2005-2008.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sérfræðingar Vinnumálastofnunar
spá 2.500-3.000 nýjum störfum í ár.
Gangi það eftir munu hafa orðið til
allt að 29.300 störf á sjö árum.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, telur sennilegt
að það sé Íslandsmet. Það hafi aldrei
áður orðið til jafn mörg störf á Ís-
landi á svo fáum árum. Til saman-
burðar horfir hann til uppgangstím-
ans 1984-87 og um aldamótin, áður
en netbólan sprakk. Þá hafi orðið til
fjöldi starfa á fáum árum. Eftir fyrri
uppsveiflur hafi komið niðursveifla
með fækkun starfa. Slíkt virðist hins
vegar ekki í kortunum nú.
Nýlegar kannanir benda til að
stjórnendur fyrirtækja telji nú þörf
á færri ráðningum en áður. Varðandi
þetta bendir Karl á að þriðji hver
stjórnandi hafi í desember talið sig
þurfa að fjölga starfsfólki. Það sé
hátt hlutfall í desember.
Fjölgun starfa síðustu ár vitnar
um gífurleg áhrif ferðaþjónustunnar
á íslenskt hagkerfi. Karl telur þetta
ár munu verða með þeim betri í sögu
íslensks vinnumarkaðar.
Spá allt að 3.000 störfum
Vinnumálastofnun telur að Íslandsmet í fjölgun starfa sé að falla Þeim hafi
fjölgað sjö ár í röð Gangi spáin eftir hafa orðið til um 29.300 störf árin 2012-18
MVinnumálastofnun spáir … »6
Morgunblaðið/Hari
Frú Ragnheiður Hluti þess útbún-
aðar sem má nálgast í bílnum.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ástand heimilislausra og þeirra sem
sprauta fíkniefnum í æð versnaði
mikið á síðasta ári, að sögn Svölu Jó-
hannesdóttur, verkefnastýru Frú
Ragnheiðar – skaðaminnkunarverk-
efnis Rauða krossins. Frú Ragnheið-
ur aðstoðar fólk sem sprautar vímu-
efnum í æð og heimilislausa ein-
staklinga við að lágmarka áhættuna
og skaðann sem fylgir lífi þeirra.
Um 120 einstaklingar nýta sér
þjónustu Frú Ragnheiðar í hverjum
mánuði og hefur þeim fjölgað veru-
lega síðustu ár. Um 80% þeirra nota
vímuefni í æð og 20% eru heimilislaus.
Breytingar til hins verra urðu í þess-
um hópi á nýliðnu ári að sögn Svölu
og líkamlegu og andlegu ástandi hans
hrakaði mikið, m.a vegna langrar
dvalar á götunni. Erfiðara aðgengi að
morfínskyldum lyfjum hafi líka haft
áhrif þar á. Hún segir Ísland vera aft-
arlega í að þjónusta þennan hóp út frá
skaðaminnkun og að mikilvægt sé að
opna hér neyslurými m.a. til að draga
úr því að fólk deyi úr ofskömmtun
sem hafi aukist. »14
Efla þarf skaðaminnkun
Ástand fólks á götunni hefur versnað Vantar neyslurými
Reglulega þarf að uppfæra loftræstikerfið í
Hvalfjarðargöngunum til þess að auka loftgæði
eins og best verður á kosið og sér Meitill - GT
Tækni ehf. á Grundartanga um það fyrir Spöl.
Í gær var starfsmaður fyrirtækisins önnum
kafinn við að menja einn af þremur hlutum viftu-
rörsins og miðað við ákveðnina og handtökin má
ætla að mengun í göngunum verði með minnsta
móti á næstunni.
Morgunblaðið/RAX
Hugað
að viðhaldi
ganganna
„Við þurfum
að nálgast málin
af bjartsýni því
ef rétt er á mál-
um haldið eru
mikil tækifæri í
íslenskum land-
búnaði,“ segir
Ásmundur Frið-
riksson alþing-
ismaður sem
stendur ásamt
fleirum fyrir fundi á Hellu á morg-
un um markaðsmál lambakjöts.
Hann segir að hægt sé að gera bet-
ur á markaðnum. Fundarmönnum
er boðið til veislu í lokin. »16
Nálgast markaðs-
málin af bjartsýni
Ásmundur
Friðriksson
Skipulagsbreytingar hjá Icelandair
Group og nýtt skipurit sem kynnt
var í gær eiga að gera stjórnendur
fyrirtækisins fljótari og faglegri til
ákvarðanatöku í þeirri miklu sam-
keppni sem er í alþjóðaflugrekstri.
Starfsemi félagsins verður skipt í
tvennt. Annars vegar er alþjóðaflug-
starfsemi sem kjarnastarfsemi fyr-
irtækisins. Hins vegar er fjárfesting
í ferðaþjónustu á Íslandi.
Alþjóðaflugrekstrinum verður
skipt upp í fimm svið. Koma tveir ný-
ir framkvæmdastjórar inn í fram-
kvæmdastjórn félagsins sem fram-
kvæmdastjórar tveggja af þessum
sviðum.
Skýr fókus í framtíðinni
„Með nýju skipuriti erum við að
skerpa línurnar enn frekar. Alþjóð-
legi flugreksturinn er kjarnastarf-
semi félagsins og þar verður skýr
fókus í framtíðinni,“ segir Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair
Group. Ferðaþjónustufyrirtækin
sem fyrirtækið á hér á landi eru að
fullu í eigu þess og engar ákvarðanir
hafa verið teknar um breytingar á
því. »18
Breytingar til að
mæta samkeppni