Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 2

Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umferð um Víkurskarð jókst um 10,4% á síðasta ári. Umferðin er orðin 38,5% meiri en gert var ráð fyrir í upphafi þegar ákveðið var að ráðast í gerð Vaðlaheiðarganga. Valgeir Bergmann, framkvæmda- stjóri Vaðlaheiðarganga, segir þessa þróun sýna að umræðan um mikilvægi jarðganganna á sínum tíma hafi verið réttmæt. Ef ekki hefði verið farið af stað í ganga- gerðina þá, væru væntanlega mikl- ar umræður nú um það að hefjast handa. Langt umfram spár Valgeir bendir á að í byrjun árs 2012 hafi því verið spáð að umferð um Vaðlaheiðargöng yrði 1300 bílar á sólarhring á árinu 2017 en þá var reiknað með að göngin yrðu komin í rekstur á árinu 2016. Raunin varð sú að um Víkurskarð fóru 1800 bílar á síðasta ári. Er það 59% meiri umferð en árið 2011 þegar 1131 bíll fór um skarðið. Ef áætl- unin frá 2011 er borin saman við umferðina í fyrra sést að aukningin er 38,5%. Ber þó að taka fram að vegna þess að dregist hefur að ljúka gangagerðinni er engin reynsla komin á það hversu hátt hlutfall ökumanna mun nýta Vaðla- heiðargöng. Auðveldar endurfjármögnun Aukin umferð styrkir fjárhags- grundvöll ganganna en ríkið hefur þurft að aðstoða við fjármögnun verksins. Valgeir segir að því fleiri sem noti göngin þeim mun lægra geti veggjaldið orðið. Miðað var við að hvert ökutæki myndi skila lið- lega 1200 kr. tekjum að meðaltali, án virðisaukaskatts. Segir Valgeir of snemmt að segja hvaða stefna verði tekin í því. Ríkið ráði ferðinni. Hann segir þó víst að aukin umferð muni auðvelda hugsanlega endur- fjármögnun framkvæmdarinnar. Í úttekt sem Friðrik Friðriksson gerði fyrir fjármálaráðuneytið og birt var í ágúst sl. kemur fram að sú mikla umferðaraukning sem orð- ið hefur um Víkurskarð bæti rekstrarhorfur verulega og vegi á móti auknum framkvæmdakostnaði. Rekstrarlíkan sem gert var benti til þess að nokkuð góðar líkur væru á fullri endurgreiðslu lána á eðlileg- um lánstíma. Þá var áætlunin kom- in í 1.750 bíla á sólarhring. Enn hefur umferðin aukist og styrkir það verkefnið og niðurstöður út- tektarinnar. Eins og sést á meðfylgjandi línu- riti má búast við að umferð um Vaðlaheiðargöng tvöfaldist á næstu tveimur til þremur áratugum. Aukin umferð styrkir göngin  Umferð um Víkurskarð hefur aukist stórlega  1.800 ökutæki fóru um skarðið á síðasta ári sem er 59% aukning frá þeim tíma er ákveðið var að ráðast í framkvæmdina  Gjaldið gæti lækkað Spá um þróun umferðar um Vaðlaheiðargöng Miðað við meðalumferð á dag, allt árið 3.600 3.000 2.400 1.800 1.200 600 0 1989 1999 2009 2019 2029 2039 2049 Heimild: Vegagerðin Umferð 1989-2017 Háspá Líklegasta spá (miðspá) Lágspá Meðalþróun 1989-2017 Alþjóðlegt unglingaskákmót, sem haldið er í minningu Steinþórs Baldurssonar, stjórnarmanns í Skáksambandi Íslands, hófst í gær og stendur það til 7. janúar. Mótið fer fram í glerstúkunni við Kópavogsvöll. Skáksambandið og Skákskóli Ís- lands standa að mótinu. Þar taka þátt tæplega 30 ungmenni, þar af ell- efu frá útlöndum. Keppendur koma meðal annars frá Lettlandi, Færeyjum, Svíþjóð og Hollandi. Alþjóðlegt unglingaskákmót í minningu Steinþórs Baldurssonar Morgunblaðið/Hari Teflt af gleði en í fullri alvöru Búfesti, húsnæðissamvinnufélag, sem á og rekur 234 íbúðir á Ak- ureyri og í Norðurþingi, stefnir að því að byggja allt að 125 íbúðir á Akureyri á næstu fimm árum. Fé- lagið vill hefjast handa strax á þessu ári og hefur þegar óskað eftir að fá úthlutað lóðum í Holtahverfi, neðan Krossanesbrautar, en nú er unnið að deiliskipulagi þess svæðis. Forráðamenn Akureyrarbæjar vilja afmarka byggingareiti og jafn- vel einstakar lóðir, til að auðvelda byggingu hagkvæmra leigu- og bú- seturéttaríbúða sem reknar verða án hagnaðarkröfu á vegum Búfesti eða samstarfsfélaga þess. Vilja- yfirlýsing þessa efnis verður und- irrituð í dag. Búfesti hefur óskað eftir því að fá lóðir strax í fyrstu úthlutun í Holta- hverfi neðan Krossanesbrautar og yrðu íbúðir þar byggðar í samstarfi við Félag eldri borgara á Akureyri. Þá renna forsvarsmenn Búfesti hýru auga til ýmissa reita sem eru að verða til í þéttingartillögum aðal- skipulags Akureyrar. Búfesti starfar í dag norður í landi, sem fyrr segir, en vert er að geta þess að félagið hefur leitað eftir samstarfi við stéttarfélög, sveitar- félög og „velvildarfjárfesta“, eins og það er orðað í minnisblaði fram- kvæmdastjóra félagsins frá því í haust, „um átak til að efla og koma á fót neytendadrifnum íbúðafélögum sem víðast um landið“. skapti@mbl.is Vilja byggja 125 íbúðir á Akureyri  Húsnæðissamvinnufélagið Búfesti vill hefjast handa í ár  Bærinn ætlar að afmarka byggingareiti eða einstakar lóðir  Hluti íbúðanna fyrir eldri borgara Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Uppbygging Séð yfir þann hluta Holtahverfis, sem er óbyggður að mestu, austan Krossanesbrautar. Þarna mun rísa íbúðabyggð á næstu árum. Maðurinn sem lést í fyrradag í bílslysi á Vesturlandsvegi, skammt austan Esjubergs, hét Einar Þór Einarsson. Hann var 37 ára gamall og bú- settur á Akranesi. Einar Þór var ógiftur og barnlaus. Enn hefur ekki verið upplýst um tildrög slyssins en hinn látni var öku- maður fólksbíls sem skall fram- an á flutningabíl að morgni 3. janúar sl. Einar Þór var einn í bílnum. Mikill viðbúnaður viðbragðs- aðila var á vettvangi eftir slysið og lokað var fyrir umferð um slysstað í nokkrar klukkustund- ir. Var umferð af þeim sökum beint um hjáleið um Kjósar- skarð. Lést í slysi á Kjalarnesi ÁTVR seldi tæplega 21,9 milljónir lítra af áfengi á árinu 2017. Það er um 4,8% aukning frá árinu 2016, er 20,9 milljónir lítra af áfengi seldust og samsvarar magnið rúmum 60 lítr- um af áfengi á hvern mann ef miðað væri við íbúa landsins. Þetta kemur fram í svari ÁTVR við fyrirspurn mbl.is. Breytinga gætir í áfengis- neyslumynstri, en 23,7% söluaukn- ing varð í flokki blandaðra drykkja, gosblöndum sem byggjast á sterkum drykkjum eða skotum á borð við Opal og Tópas. Sala á freyðivíni og kampavíni jókst og um 20,2% á milli ára. Uppistaðan í áfengisneyslunni er þó sem fyrr bjór, en alls seldu Vín- búðirnar tæplega 16,5 milljónir lítra á nýliðnu ári, 16,1 milljón lítra af lag- erbjór og 368 þúsund lítra af öðrum bjórtegundum. Sala áfengis í desember jókst um 3,6% á milli ára og varð mest aukn- ing í sölu ciders og blandaðra drykkja. Söluaukning á kampavíni og freyðivíni var 6,7% í desember, sé miðað við fyrra ár. Viðskiptavinir Vínbúðarinnar í fyrra voru rúmlega 4,9 milljónir talsins og fjölgaði við- skiptavinum um 4% á milli ára. 60 lítrar á mann í fyrra  Áfengisneysla meiri en árið á undan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.