Morgunblaðið - 05.01.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Falsfréttir (e. Fake News) eruhvimleiðar og varasamar en
getur verið að fjöldi þeirra og
áhrif séu ofmetin? Andrés Magn-
ússon, fjölmiðlarýn-
ir Viðskiptablaðs-
ins, fjallar um fyrir-
bærið og segir frá
rannsókn tveggja
fræðimanna sem
benda til að svo sé.
Andrés segir aðrannsóknin, sem beindist að
falsfréttum fyrir bandarísku for-
setakosningarnar, „sýndi fram á að
í fyrsta lagi hefðu fregnir af fals-
fréttum (margar byggðar á hæp-
inni fréttaskýringu Buzzfeed frá
2016) verið mjög orðum auknar og
raunar ekki síður til þess fallnar
að hafa áhrif á kosningahegðun og
niðurstöður kosninganna.
Tíndar hefðu verið til marg-
víslegar tölur um falsfréttir og þá
fjármuni, sem varið hefði verið til
þess að dreifa þeim, en þær ekki
settar í neitt samhengi. Að öllu
virtu hefði sú dreifing aðeins num-
ið um 0,1% af keyptri dreifingu á
Facebook. Notendavirkni á Face-
book (læk, deiling o.s.frv.) af völd-
um falsfrétta hefði ekki síður verið
hverfandi og takmörkuð í út-
breiðslu.“
Andrés bendir einnig á að jafn-vel hjá New York Times, sem
vill láta taka sig alvarlega sem
fréttamiðil, hafi aðeins tíunda hver
kosningafrétt snúist um málefnin.
Ekkert bendi til að aðrir miðlar
hafi staðið sig betur.
Þó að ekki sé ástæða til að geralítið úr fréttafölsunum er ekki
síður áhyggjuefni ef fjölmiðlar
verða of uppteknir af auka-
atriðum. Skortur á vandaðri um-
fjöllun er samkvæmt þessu meira
áhyggjuefni en tiltölulega fáar
falsfréttir, jafn slæmar og þær
annars eru.
Andrés
Magnússon
Falsfréttir um
falsfréttir?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.1., kl. 18.00
Reykjavík -1 heiðskírt
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri -4 léttskýjað
Nuuk -11 skýjað
Þórshöfn 3 rigning
Ósló 1 snjókoma
Kaupmannahöfn 3 rigning
Stokkhólmur 2 rigning
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 10 rigning
Brussel 11 þoka
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 5 rigning
London 8 skýjað
París 11 rigning
Amsterdam 9 þoka
Hamborg 6 skýjað
Berlín 6 rigning
Vín 6 heiðskírt
Moskva 0 skýjað
Algarve 15 alskýjað
Madríd 13 skýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 7 heiðskírt
Aþena 9 skýjað
Winnipeg -24 léttskýjað
Montreal -9 snjókoma
New York -5 snjókoma
Chicago -16 snjókoma
Orlando 6 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:15 15:53
ÍSAFJÖRÐUR 11:54 15:23
SIGLUFJÖRÐUR 11:38 15:05
DJÚPIVOGUR 10:52 15:14
Guðríður Arnardóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara, gef-
ur kost á sér til áframhaldandi for-
mennsku í félaginu þegar kosning
formanns og stjórnar félagsins fer
fram fyrir aðalfund sem haldinn
verður í apríl. Guðríður staðfesti
þetta í samtali í gær en hún hefur
verið formaður FF frá febrúar
2014.
Guðmundur Björgvin Gylfason,
framhaldsskólakennari í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, tilkynnti
uppstillinganefnd félagsins í fyrra-
dag að hann byði sig fram til for-
manns FF.
Framboðsfrestur rennur út á
miðnætti 10. janúar en kosningin
fer fram 5. til 9. mars.
Guðríður
gefur áfram
kost á sér
Guðmundur Gylfa-
son tilkynnir framboð
Guðríður
Arnardóttir
Guðmundur
Björgvin Gylfason
Víða í byggðum lands verða hátíða-
höld á morgun, 6. janúar, þar sem
jólin verða kvödd. Á Ásvöllum í
Hafnarfirði verður hátíð sem hefst
kl. 17 og Helga Möller stjórnar. Á
svæðið mæta jólasveinar, púkar og
forynjur og fleiri. Kakó og vöfflur
verða í boði á hátíðinni sem lýkur um
kl. 18 með flugeldasýningu.
Í Reykjanesbæ verður hátíð sem
byrjar kl. 17 þar sem gengið í fylgd
álfakóngs og drottningar og hirðar
þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíð-
arsvæði við Hafnargötu. Þrettánda-
brennan verður á sínum stað á
Bakkalág og svo verða jólin kvödd
með glæsilegri flugeldasýningu.
Ýmsir tónlistarhópar og félög taka
þátt í viðburðinum.
Í Mosfellsbæ verður þrettánda-
hátíð sem hefst kl. 18 þegar gengið
verður frá miðbæjartorginu að
brennusvæði við Leirvog. Þá verður
hátíð á Selfossi sem hefst með blys-
för frá Tryggvaskála kl. 20 þaðan
sem verður farið að brennu við tjald-
svæði bæjarins.
Eins og hefð er fyrir í Vest-
mannaeyjum verður bryddað upp á
ýmsu. Þrettándagleði ÍBV með flug-
eldasýningu, blysför, álfabrennu og
fleiru sem er á þróttavelli bæjarins
er í dag og dansleikur í kvöld, en svo
ýmsir menningartengdir viðburðir á
morgun, hinum eiginlega þrettánda,
6. janúar. sbs@mbl.is
Forynjur, púkar og jólasveinar mæta
Jólin kvödd Hátíðahöld á þrettándanum Kakó, vöfflur og flugeldasýning
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarson
Þrettándinn Hvað er svo glatt?