Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvítugur matarklúbbur Páll Pálsson, Sigurjón Davíðsson, Hjörleifur Ólafsson, Pálmi Jónsson, Sigurður Sverrisson (heiðursgestur), Hilmar Svavarsson.
Björn Sigfússon, Hrólfur Ragnarsson, Jóhann Lárusson, Níels Jóhannsson, Sigmar Maríusson og Ölver Arnarsson.
Himinsæll er hópurinn
hér í skapi jóla.
Dável reyndist rauðmaginn,
rauðmaginn frá Óla.
Engar konur, ekkert áfengi,
allur matur soðinn
Nokkrar venjur hafa skapast í
eldhúsinu hjá þeim Ógeðsfélögum og
segir Ölver þessar helstar: „Allur
matur er soðinn, aldrei hefur neitt
verið steikt, bakað eða grillað. Aldrei
er haft áfengi um hönd. Heimilt er að
bjóða svokölluðum „heiðursgestum“
og hafa þeir verið allmargir í gegnum
tíðina. Konur hafa verið bannaðar í
klúbbnum og hefur það haldið utan
eitt skipti þegar Sigurður Jens frá
Hvammi var heiðursgestur og Kristín
kona hans sótti hann um kvöldið og
var auðvitað boðið inn í veisluna.“
Kristín var þá upplýst um það að
hún væri eina konan sem hefði fengið
þá miklu upphefð að vera boðin í mat
hjá Ógeðinu en hún lét sér fátt um
finnast og taldi að það hefði trúlegast
bara verið vegna þess að fæstir
klúbbfélagar hefðu séð hana áður og
því hefði forvitnin ráðið meira en
gestrisnin varðandi matarboðið!
Hjá Ógeðinu er boðið upp á
kjarngóðan íslenskan mat og dæmi
um aðalrétti eru sigin grásleppa, sig-
inn fiskur, saltfiskur og skata. Einnig
svið og lappir, feitt hangikjöt, kjöt-
súpa, saltkjöt og baunir. Hrogn og
lifur með nýjum fiski kemur svo síð-
ari hluta vetrar og snarkandi hamsa-
tólg hellt ríkulega út á. Eftirréttirnir
eru ekki endilega alltaf íslenskir en
þeir hafa verið rúgbrauðssúpa, royal-
búðingar og ávextir úr dós með
þeyttum rjóma.
Heimsins besti kokkur
verðlaunaður
Svona fínn matarklúbbur hefur
auðvitað sinn eigin yfirbryta sem er
Jóhann Ólafur Lárusson frá Hallgils-
stöðum á Langanesi. Ölver á varla til
orð sem lýsa nægilega vel einstökum
matreiðsluhæfileikum Jóhanns:
„Hann hefur að mati klúbb-
meðlima staðið sig með svo einstakri
prýði að ástæða þótti til að sæma
hann orðu og viðurkenningarskjali
sem minnir sterklega á hina frægu
Michelin-stjörnu en kallast hjá okkur
Mars-stjarnan, fyrir framlag sitt við
matreiðslu á sjávarfangi og landbún-
aðarafurðum en hann hefur nú í 15 ár
verið yfirkokkur klúbbsins.“
Eftir matinn er glatt á hjalla hjá
þeim félögum og oft sögustund svo
gaman væri að vera þá fluga á vegg.
Gamlir Langnesingar og Þistlar
luma oft á góðum sögum og er þá
skemmtanagildið sett skör hærra en
harðar sagnfræðilegar staðreyndir,
þegar spjallað er um menn og mál-
efni á gömlu heimaslóðunum.
Í desember var auðvitað skötu-
veisla ásamt signum fiski og söltuðu
selspiki að vestan en spikið passar fá-
dæma vel með fiskinum og lýsið
rennur ljúflega niður. Matarilmurinn
var megn og sterkur og því vand-
ræðalaust fyrir ljósmyndara
Morgunblaðsins að renna á lyktina.
Hann hafði náðarsamlegast fengið
leyfi til að heimsækja Ógeðið og karl-
ana sem þar sátu síðustu veislu árs-
ins með pompi og pragt. Jóhann yfir-
bryti og heimsins besti kokkur stóð
þar vaktina með svuntu sína og bar
fram dýrðlegar kræsingar með
krassandi ilmi og voru öllu gerð góð
skil.
Þrátt fyrir nafn klúbbsins, sem
hljómar ekki mjög lystilega, þá hefur
félögum í Ógeðinu fjölgað með ár-
unum og þykir afar eftirsóknarvert
að komast í þennan einstaka matar-
klúbb.
Stóra spurningin er hins vegar
hvort konum tekst að brjóta blað í
sögu klúbbsins og fá þar félagsaðild
en það er „seinni tíma vandamál“
eins og gjarnan er sagt á Þórshöfn.
Hefðir Allur matur er soðinn, ekkert bakað, steikt eða grillað.
Þeir gæddu sér á svið-
um og kindalöppum og
eftir það varð ekki aftur
snúið, ákveðið var að
svo dýrðlegar sam-
komur yrðu fastur við-
burður hjá hópnum.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir í fötum
ÚTSALAN
er hafin
30-50% afsláttur