Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Mikil fjölgun hefur orðið í þeim hópi sem leitar sér þjónustu í Frú Ragn- heiði – skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins í Reykjavík á síðustu tveimur árum. Um 120 einstaklingar leita nú til Frú Ragnheiðar á mánuði en á bak við þann fjölda eru 250 til 300 komur. Frú Ragnheiður er sérinnréttaður bíll sem er á ferðinni á ákveðnum tímum á höfuðborgarsvæðinu sex kvöld í viku og veitir hjúkrunar- og nálaskiptaþjónustu fyrir heimilis- lausa einstaklinga og þá sem nota vímuefni í æð. Svala Jóhannesdóttir, verkefna- stýra Frú Ragnheiðar, segir þeim ekki hafa fjölgað sem nota vímuefni í æð á Íslandi en Frú Ragnheiður nái orðið til mun fleiri einstaklinga innan hópsins. „80% þeirra sem koma til okkar nota vímuefni í æð, meirihluti þeirra er heimilislaus og hinn hlutinn í leiguhúsnæði. 20% þeirra sem leita til okkar koma vegna þess að þau eru heimilislaus, þau koma í heilbrigðis- þjónustu, fá hlý föt, svefnpoka, tjald- dýnur og mat. Á fimm ára tímabili, frá 2012 til 2017, er 95% fjölgun heim- ilislausra í Reykjavík og í dag eru þeir skráðir 349. Flestir eru skráðir við ótryggar aðstæður, svo er ágætis hópur í athvörfunum Konukoti og Gistiskýlinu og annar hópur sem fer á milli vina og ættingja en síðan eru um 80 manns sem eru af og til á göt- unni,“ segir Svala. Í verri stöðu en áður Breytingar til hins verra urðu hjá þessum hópum á nýliðnu ári, að sögn Svölu. „Vegna þess að mun fleiri voru farnir að sofa úti sem gerir það að verkum að líkamlegu og andlegu ástandi hrakaði mikið. Þegar fólk lendir á götunni ýkjast öll neikvæð einkenni eins og af geðröskunum, andlegt ástand versnar mjög mikið, sjálfsvígshugsanir aukast og líkam- legir veikleikar verða meiri, eins og lungnabólga og alvarlegar sýkingar. Á nýliðnu uppsveifluári voru okkar skjólstæðingar í verri stöðu en á ár- unum áður og það er m.a. húsnæð- iseklunni að kenna. Því meiri ójöfn- uður og misskipting sem verður í samfélaginu, því meira heimilisleysi verður, vegna þess að við lítum á hús- næði sem viðskiptavöru, en ekki sem mannréttindi.“ Ofskömmtun algengari Svala gagnrýnir að ekki skuli vera opið athvarf yfir daginn fyrir heim- ilislausa. „Næturskýlin loka klukkan tíu á morgnana og opna ekki aftur fyrr en klukkan fimm. Þannig að í sjö tíma er þessi hópur úti, sem er mjög erfitt fyrir einstaklingana og álag á heilbrigðiskerfið og á borgarsam- félagið.“ Svala segir ástandið á þeim sem nota morfínskyld lyf í æð líka hafa versnað mikið eftir að aðgengi að lyfj- um varð erfiðara. „Það er minna að koma inn af morfínskyldum lyfjum á ólöglega markaðinn eftir að nýr lyfja- gagnagrunnur var tekinn í notkun en með honum var eftirlit með lyfjaávís- unum hert. Það hefur gert það að verkum að ein 100 mg. Contalgin- tafla kostar núna 8000 kr. en var á 4000-5000 kr. fyrir rúmu ári síðan, þetta er mikið inngrip fyrir ein- staklinga sem eru háðir efnunum. Því hafa sumir neyðst til að skipta yfir í Fentanýl-plástra sem er í raun hættulegasta efnið til að sprauta sig með en með því fá þau meira fyrir peninginn og ná frekar að koma í veg fyrir fráhvörfin.“ Svala segir að vegna þessa hafi m.a. verið aukning á ofskömmtunum af morfínskyldum lyfjum hér á landi. „Nokkrir af skjólstæðingum Frú Ragnheiðar hafa dáið á síðastliðnu ári úr ofskömmtun. Það er nauðsyn- legt að innleiða gagnreynd skaða- minnkandi inngrip sem draga úr þessum dauðsföllum, eins og Nalox- one sem kemur í veg fyrir að fólk deyi úr ofskömmtun af morfínskyldum lyfjum. Þetta er hættulaust lyf og hjálpar fólki að vakna upp frá of- skömmtun. Ef við í Frú Ragnheiði gætum gefið okkar skjólstæðingum Naloxone og kennt endurlífgun þá myndi það klárlega bjarga nokkrum mannslífum á ári, en Naloxone er dreift til þessa hóps í mörgum lönd- um.“ Erum langt á eftir Svala vill sjá skaðaminnkunar- þjónustu hér á landi eflda verulega en hún segir Ísland vera langt á eftir nágrannalöndunum. Mikilvægt sé að opna hér neyslurými. „Neyslurými er staður þar sem fólk getur komið með sín eigin vímuefni og notað í öruggu, hreinu og áhættulausu umhverfi þar sem sérþjálfað starfsfólk getur gripið inn í ef eitthvað gerist. Það eru um 100 svona rými til í heiminum og ég hef skoðað fjögur þeirra. Árangurinn af neyslurýmum er aðallega sá að fólk deyr ekki úr ofskömmtun þar, það dregur úr að fólk samnýti búnað þannig að smitsjúkdómatíðni lækkar, það dregur úr húðsýkingum og skjól- stæðingarnir fá miklu betri alhliða þjónustu því þeir geta rætt sín mál við starfsfólk sem aðstoðar. Í þeim neyslurýmum sem ég hef heimsótt var starfsfólk sammála um að það væri magnað að sjá hversu margir fengu áhuga á að losa sig við vímuefn- in og væru hættir í dag. Skaðam- innkun er fyrsta skrefið í batamód- elinu. Það að ætlast til þess að fólk sem er á þessum stað í lífinu fari bara í meðferð og losi sig við allt er rosa- lega stórt skref. Neyslurými er kjörinn vettvangur til að hitta skjólstæðinga og byggja upp meðferðarsamband. Hjá mörg- um er einhver hvati til að reyna að komast út úr þessu og þau verða að fá rými til að vinna með áhugahvötina. Síðan þarf að vinna með þessa sál- rænu þætti sem gera það að verkum að fólk lendir á þessum stað, það er oft mjög erfið áfallasaga að baki. Það er svo stimplað inn í kerfið okkar að fólk þurfi að vera búið að losa sig við vímuefnin áður en að það fær sál- ræna aðstoð, það þarf að vinna með orsökina að vandanum en við í ska- ðaminnkun teljum sterkt samband þarna á milli.“ Svala vill líka sjá öfluga viðhalds- meðferð út frá skaðaminnkun. „Þá er hugsunin að lágmarka sem mestan skaða í lífi fólks án þess að krefjast al- gjörs bindindis. Þeir sem hafa verið háðir morfíni lengi og nota það í æð gætu þá fengið lyf í læknis- fræðilegum tilgangi og meðferðar- vinnan væri þá út frá skaða- minnkun.“ Lágmarka áhættuna Svala segir verkefnið Frú Ragn- heiði vera búið að festa sig í sessi. Starfsmenn þess hafi náð mjög góðu sambandi við hópinn og hann treysti þeim. „Frú Ragnheiður er öruggt rými. Við mætum þeim þar sem þau eru stödd og dæmum þau ekki heldur hjálpum þeim að lágmarka áhættuna og skaðann sem fylgir lífi þeirra.“ Nauðsynlegt að fá neyslurými  Ástandið á götunni versnar  Margir heimilislausir  Erfitt aðgengi að morfínlyfjum margfaldar verðið  Þarf að efla skaðaminnkunarþjónustu verulega að sögn verkefnastýru Frú Ragnheiðar Morgunblaðið/Hari Skaðaminnkun Svala Jóhannesdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar, segir heimilislausum hafa fjölgað. Morgunblaðið/Hari Búnaður Frú Ragnheiður býður upp á nálaskiptaþjónustu. Skaðaminnkunarverkefnið Frú Ragnheiður var sett á laggirnar af Rauða krossinum árið 2009. Bíllinn er á ferðinni alla daga, nema laugardaga, frá kl. 18 til 21. Hann fer á ákveðna staði en sinnir mest símaþjónustu, þá geta skjólstæðingarnir hringt í ákveðið símanúmer og mælt sér mót við bílinn. Í Frú Ragnheiði er öll þjónustan í nafnleynd og þar er 100% trún- aður. „Við byrjuðum með símaþjónustuna fyrir þremur árum og hún hafði mikil áhrif á aukninguna. Skjólstæðingar okkar lifa margir flóknu lífi, sumir eru á fleygiferð um bæinn að reyna að redda málunum, búa til pen- inga fyrir efnunum og við þurfum að koma til móts við þá.“ Svala hefur verið verkefnastýra Frú Ragnheiðar í þrjú ár. „Ég er eini starfsmaðurinn en svo eru 70 sjálfboðaliðar. Það eru þrír á hverri vakt og þar af einn heilbrigðismenntaður,“ segir Svala. Karlmenn eru í meirihluta skjólstæðinga Frú Ragnheiðar sem eru á aldrinum 18 til 66 ára, langflestir á milli 20 og 30 ára. Konur geta líka leit- að í Konukot sem er athvarf rekið út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði. Rauði krossinn á Akureyri var að byrja með samskonar skaðaminnk- andi úrræði og Frú Ragnheiður sem kallast Ungfrú Ragnheiður. Svala seg- ir það mjög ánægjulegt enda oft mun erfiðara fyrir fólk sem sprautar vímuefnum í æð að nálgast hreinan búnað í smærri bæjarfélögum en stærri. Á fleygiferð um bæinn FRÚ RAGNHEIÐUR OG UNGFRÚ RAGNHEIÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.