Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 29

Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 ✝ Elín FanneyÞorvaldsdóttir fæddist á Vatns- enda í Héðinsfirði 10. nóvember 1929. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 26. desember 2017. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þor- valdur Sigurðsson, f. í Grundarkoti í Héðinsfirði 27. apr- íl 1899, d. 17. 1981 á Siglufirði, og Ólína Einarsdóttir, f. á Ámá í Héðinsfirði 18. desember 1904, d. á Siglufirði 22. nóvember 1976. Systkini Elínar eru: Einar Ás- grímur, f. 1924, d. 1952. Hall- dóra María, f. 1925, d. 1982. Sig- Ólafur H. Kárason. Þau eiga tvö börn. 4) Hulda Björk, f. 29. sept- ember 1964, maki Ólafur Guð- mundur Ragnarsson. Þau eiga tvö börn. Barnabörn Elínar eru fjögur og barnabarnabörnin sex. Elín bjó fyrstu ár ævi sinnar með foreldrum sínum og syst- kinum á Vatnsenda í Héðinsfirði, eða þar til þau brugðu búi og fluttu til Siglufjarðar árið 1949. Eftir að fjölskyldan fluttist til Siglufjarðar bjó hún við Grundargötu 22. Elín fór á vetrarvertíð fljótlega eftir að til Siglufjarðar var komið ásamt systur sinni Önnu, en slíkt var al- gengt meðal Siglfirðinga á þess- um árum. Á Suðurnesjum kynnt- ist Elín eiginmanni sínum, Guðjóni. Elín var lengst af heimavinnandi húsmóðir en starfaði einnig við ræstingar samhliða því. Útför Elínar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 5. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. urður, f. 1927, d. 1927. Sigurður, f. 1928, f. 2001. Anna Lilja, f. 1931, búsett í Reykjanesbæ. Kristinn Ásgrímur, f. 1933, d. 1955. Haraldur Freyr, f. 1936, d. 1999. Helga Ingibjörg, f. 1941. Elín gekk að eiga Guðjón Marinó Sigurgeirsson hinn 15. apríl 1954. Guðjón lést 30. janúar 2002. Þau eignuðust sam- an fjögur börn og eru þrjú þeirra á lífi. 1) Sigrún Helga, f. 23. september 1954, d. 28. september 1954. 2) Sigurgeir Helgi, f. 19. júní 1957. 3) Ólína Þórey, f. 1. desember 1959, maki Amma mín, Elín Fanney Þor- valdsdóttir frá Vatnsenda í Héðinsfirði, lést annan jóladag síðastliðinn. Ævi ömmu var hvorki spennusaga né heldur var hún harmsaga. Hún er sagan um íslenskan hversdagsleika, saga alþýðukonunnar – hin ósagða saga Íslands á tuttugustu öld. Við þekkjum öll goðsögnina af sterka sjómanninum eða verka- manninum sem vann heilu sólar- hringana í beit. Færri eru hins vegar frásagnirnar af venjuleg- um konum sem alla tíð stóðu vaktina, héldu heimili, önnuðust börnin, fæddu þau og klæddu. Gerðu það sem gera þurfti til þess að allt gengi snurðulaust fyrir sig. Amma var fædd í torfbæ árið 1929 í firði sem ekki komst í tengingu við nútímann fyrr en með jarðgöngum árið 2010. Heimurinn sem hún fæddist í er löngu horfinn og í raun ómögu- legt fyrir okkur að skilja hann til fulls, enda svo fjarlægur okkur í háttum sem frekast getur orðið. Það er samt svo merkilegt að þegar ég hugsa til hennar, vit- andi þetta, þá fannst mér hún aldrei gamaldags, a.m.k. ekki í minningunni. Mér fannst gaman að sitja með henni þegar ég var lítill í heimsókn og spyrja hana spjörunum úr um lífið í Héðins- firði. Hún sagði manni sögur frá uppvextinum og æskuárunum og maður trúði stundum ekki því sem hún sagði, svo fjarlægt var þetta. Þrátt fyrir að þetta væru erfiðari tímar voru þetta að mörgu leyti einfaldari og á sinn hátt örugglega góðir tímar. Amma var samt aldrei haldin neinni nostalgíu varðandi árin í Héðinsfirði, það voru sannarlega góðar stundir en í grunninn var þetta auðvitað kotbúskapur sem einkenndist af harðri lífsbaráttu og satt best að segja hokri. Ég hef alltaf haft þann grun að henni hafi ekki þótt þetta neitt sérstaklega eftirsóknarvert líf, svona innst inni, en samt talaði hún alltaf um fjörðinn sinn, upp- vöxtinn og fjölskylduna af virð- ingu. Ég hef verið þeirrar gæfu að- njótandi að vera umkringdur ömmum og öfum sem hafa hvert á sinn hátt gefið mér tíma og kennt mér margt um lífið. Amma Ella var trúuð kona og mátti ekkert aumt sjá. Hún var vinur litla mannsins, lítilmagnans í samfélaginu og þeirra sem áttu erfitt. Allir voru velkomnir og engum var vísað á dyr, ekki einu sinni þeim sem stundum voru búnir að fá sér vel neðan í því. Það var bæði gott og gaman að vera hjá henni þegar maður var lítill gutti og alltaf hlakkaði ég til þess að fara til Grindavíkur til ömmu og afa. Með henni og afa Gauja eign- aðist ég margar góðar minningar sem ég verð alltaf þakklátur fyrir. Takk kærlega fyrir mig. Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér. (Mt 25.40) Guðjón M. Ólafsson. Elín Fanney Þorvaldsdóttir HINSTA KVEÐJA Hún amma mín er mamma hennar mömmu og mamma er það besta sem ég á. Gaman væri að gleðja hana ömmu og gleðibros á vanga hennar sjá. Í rökkrunum hún segir mér oft sögur og svæfir mig þá dimma tekur nótt. Hún syngur við mig sálmakvæðin fögur sofna ég þá bæði vært og rótt. (Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti) Takk fyrir mig, elsku amma, þín Elín Fanney. ✝ Þórunn ÓlafíaKristbjörg Sig- urðardóttir fæddist í Reykjavík 21. mars 1929. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. desember 2017. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Jóhannsson, f: 7.5. 1905, d. 11.11. 1937, og Guðlaug Ólafs- dóttir, f. 1.11. 1898, d. 10.10. 1966. Fósturfaðir hennar var Gísli Gíslason, f. 31.3. 1909, d. 19.2. 1994. Þórunn á yngri syst- ur, Guðrúnu, f. 24.5. 1932, maki Bragi Guðnason. Þórunn giftist 30. desember 1950 Pétri Ágústi Þorgeirssyni, f. á Akureyri 2. janúar 1928, d. 24. apríl 2003. Þau slitu sam- vistum 1985. Börn þeirra eru: 1) Sigríður Petra, f. 28.2. 1952, maki Jónas Már Ragnarsson, f. 7.8. 1951. Börn Sigríðar eru: Guðlaug Kristbjörg, maki Hann- es Jónsson. Þau eiga tvö börn, 2017. 3) Guðlaug, f. 17.12. 1956, d. 22.4. 2016. Eftirlifandi maki er Bjarni Júlíus Einarsson, f. 22.4. 1953. Börn Guðlaugar eru Pétur Þór, maki Sigríður Þóra Þor- steinsdóttir, dóttir þeirra er Nat- alía. Fyrir á Pétur Þór Pétur Arnar og Sigríður Þóra Krist- ófer og Sunnevu. Gísli, maki Kol- brún Gígja Björnsdóttir, dóttir þeirra er Kleópatra Rós. Fyrir á Gísli Amelíu Rós. Elísa, maki Baldur Brynjar Þórisson, dóttir þeirra er Christel Gía. Fyrir á El- ísa Gabríelu. 4) Gísli, f. 21.3. 1959. Hann býr á sambýli í Svölu- hrauni 19, Hafnarfirði. 5) Rúna, f. 23.7. 1965, maki Egill Lárus- son, f. 9.6. 1964, börn þeirra eru Jökull Alexander, Ragnheiður Þóra og Hekla. Þórunn, sem jafnan var kölluð Þóra, tók fullnaðarpróf úr Austurbæjarskólanum í Reykja- vík og var í Húsmæðraskólanum á Akureyri frá 1949-1950. Hún vann við verslunarstörf frá unga aldri. Var verslunarstjóri í Bóka- búð Helgafells við Laugaveg 100. Þau hjónin ráku einnig Verslun Péturs Þorgeirssonar til nokk- urra ára. Hún var heimavinnandi en þegar börnin voru komin á fullorðinsár starfaði hún sem hjúkrunarritari á Landspítal- anum. Útför Þórunnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 5. janúar 2018, klukkan 15. Unni Ösp, maki Haukur Björg- vinsson, dóttir þeirra er Guðmunda Kristbjörg, og Arn- ar Atla. Fyrir á Hannes Jón Gunnar. Pétur Gísli, maki Bryndís Bergmann, dóttir þeirra er Íris. Fyrir á Pétur Gísli Sigríði Birtu. Dóttir Sigríðar og Jónasar er Þórunn Hilda, maki Magnús Þór Ágústsson, dóttir þeirra er Kolbrún Lillý. Fyrir á Jónas Hrafnhildi Jónu, maki Jóhann Gunnar Elísson, þau eiga þrjú börn, Ragnhildi Rún, f. 28.9. 1994, d. 16.4. 1998, Jónas Elís og Rúnar Alexander. 2) Þorgerður Rannveig, f. 7.11. 1954, maki Öy- vind Glömmi, f. 29.8. 1952. Börn þeirra eru Snorri, maki Kjersti Gakkestad, börn þeirra eru Lilja og Olav. Silja, dóttir hennar er Indíana. Símon, maki Gintare Siniauskaite, dóttir þeirra er Emilía, f. 22.8. 2017, d. 22.8. „Mamma þín væri ekki til ef ég væri ekki til.“ Það er rétt sagt hjá þér, elsku besta amma mín, enda er ég endalaust þakklát að þú hafir verið til og komið öllum þín- um börnum í þennan heim. Þú varst alltaf glöð og í fjöri, einu skiptin sem þú skiptir skapi og maður heyrði það á þér, þurfti maður að bruna af stað og koma með sikkur(sígó) handa þér. En þú reyktir nú ekkert, þetta var bara vinkona þín. Þitt hjarta og ást var það stærsta sem fyrir- finnst, enda áttir þú mörg ætt- menni til að gefa alla þína ást, en ég fann það innilega að ég var ein af uppáhalds (það má rífast um það seinna). Ég gat treyst þér fyrir öllu enda rötuðu öll mín vandamál og leyndarmál til þín, þú varst alltaf tilbúin að hlusta og koma með ráð. Gleymi ekki þegar ég skrópaði heila önn í FÁ þegar ég var 15 ára, kom þá á hverjum morgni til þín og við kúrðum yfir Bold og Nágrönnum. Og þegar mamma hringdi sagðir þú ekki orð um það að ég væri hjá þér. Takk, elsku amma mín, fyrir að vera til staðar allan þennan tíma sem þú lifðir. Þú varst alltaf í takt við tímann og við gátum hlegið endalaust og gert grín, enda vildi ég að allir gætu þekkt og kynnst þér. Þú varst engri lík og svona ömmur eins og þú eru ekki á hverju strái. Hverjum sem heils- aði þér heilsaðir þú á móti eins og þú þekktir viðkomandi, enda kannaðist þú við alla „ég þekki þennan“ eða „eitthvað kannast ég nú við þennan“ sagðir þú oft, ekki skrítið því öllum líkaði vel við þig og voru tilbúnir að tala við þig og eyða tíma með þér. Þú ert drottning, elsku amma mín. Ég elska þig, ég elska þig líka. Þín Elísa. Elsku amma Tóta. Orð geta ekki á nokkurn hátt lýst þeim tómleika sem þú skilur eftir með brottför þinni úr þess- um heimi. Þú varst alltaf það fastur punktur í gegnum mitt líf að það er óhugsandi að þú sért ekki hér enn til staðar. Ef það er til einhver með hjarta úr gulli þá varst það þú. Þú gast alltaf séð það besta í öllum og varst fljót að fyrirgefa. Þig skorti aldrei hlýju, umhyggju né góðmennsku og ég gat alltaf reitt mig á að þú lyftir mér upp því hlýlegt eðli þitt var læknandi og smitandi. Mér líður eins og ég hafi alltaf haft þig mér við hlið á einn eða annan hátt. Jafnvel þegar ég bjó erlendis í 10 ár þá héldust böndin sterkari en nokkurn tíma og þeg- ar ég flutti aftur til Íslands þá bauðstu mig velkomna og opnað- ir faðm þinn fyrir mig. Ég er inni- lega þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Við vorum öll mjög heppin að eiga að mann- eskju eins og þig sem höfuð fjöl- skyldunnar. Hvíldu í friði, elsku engillinn minn. Þitt „litlabarn“, Hekla. Ömmur eru ótrúlega nauðsyn- legar. Amma Tóta var ein af þessum nauðsynlegu ömmum, samt var hún ekki þessi venjulega amma með svuntuna á lofti, alltaf eitt- hvað að brasa í eldhúsinu og með eitthvað á prjónunum. En henni var mjög annt um það að maður væri ekki svangur þegar komið var í heimsókn til hennar. Maður gat bara fundið eitt- hvað sjálfur inni í eldhúsi. Hún var líka sjúklega fyndin kona á margan hátt, enda eru til óteljandi ömmu Tótu-sögur. Það var líka svo heppilegt að hún hafði svo mikinn húmor fyrir sjálfri sér og í raun var ótrúlega glaðlynd kona sama hvað á dundi. Eins held ég að hún hljóti að hafa verið drottning eða prins- essa í fyrra lífi. Því ég þekki engan sem átti jafn auðvelt með að fá fólk til að aðstoða sig og þjónusta án nokk- urs hroka eða leiðinda. Hún bara laðaði að sér fólk sem vildi allt fyrir hana gera. Ég held t.d. að hún hafi verið eini viðskiptavinur Háteigskjörs sem fékk starfs- manninn til að ganga á eftir sér heim á Flókagötuna haldandi á innkaupapokunum. Hún elskaði að fá búkketta (blómvönd), var með sólgleraugu öllum stundum inni, úti, í sól og myrkri. Glommaði í sig kók og fékk sér sikku (sígó). Sagði alltaf „ohh, það er svo langt síðan ég hef séð þig“ og spurði svo alltaf „og hvenær ætlarðu svo að koma til mín næst?“ Við kveðjum þig kæra amma með kinnar votar af tárum á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Elsku amma Tóta, það er í al- vörunni enginn eins og þú, mikið eru guðirnir ríkir að hafa fengið þig til sín. Kær kveðja, þín nafna, Þórunn Hilda. Þórunn Ólafía Kristbjörg Sigurðardóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN SIGURÐSSON, lést á dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík, að kvöldi Þorláksmessu, 23. desember. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 6. janúar klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnþór Hákonarson Margrét Arngrímsdóttir Olga Hermannsdóttir Friðrik Brynjarsson Hrafnhildur Gunnþórsdóttir Sigurður Jóhannson Sæþór Örn Þórðarson Brynjar Magnús Friðriksson Thelma Líf Friðriksdóttir Alexía Líf Friðriksdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA BJARNADÓTTIR, áður til heimilis að Skúlagötu 20, Reykjavík, lést sunnudaginn 31. desember á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 12. janúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Kjartan Oddur Jóhannsson Björk Jónsdóttir Jóhann Egill Jóhannsson Sigrún Erla Sigurðardóttir Anna Sigríður Jóhannsdóttir Richard Ólafur Briem Þórir Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR AÐALGEIRSSON, Grímsstöðum 3, Mývatnssveit, andaðist sunnudaginn 31. desember. Jarðsungið verður frá Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 6. janúar klukkan 14. Bjarnfríður Valdimarsdóttir Örn Arnar Hauksson Þóra Ottósdóttir Ellert Aðalgeir Hauksson Kristín A. Sigurðard. Hammer Birgir Valdimar Hauksson Steinunn Ósk Stefánsdóttir afa- og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI FINNBOGI GUÐMUNDSSON skipstjóri Prestastíg 6 Reykjavík lést sunnudaginn 1. janúar á líknardeild Landspítalans. Jarðarförin fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 9. janúar klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans, Rjóður í Kópavogi. Þórey Erla Ragnarsdóttir Ágústa Finnbogadóttir Magnús Jónatansson Guðmundur Finnbogason Þorgerður Guðrún Sveinsd. Arnbjörg Gísla Finnbogad. Ragnhildur Finnbogadóttir Sólrún Elín Rögnvaldsdóttir Sigurður Ingason Ragnar Rögnvaldsson Rögnvaldur Rögnvaldsson Rakel Sigurðardóttir Alda J. Rögnvaldsdóttir Arne Sólmundsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.