Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16 – www.rafkaup.is
DOKKA frá
Mikael er almennt kallaður Mikkó. Hann fæddist í Reykjavík5.1. 1978 en flutti fjögurra ára með foreldrum sínum til Car-mel í Kaliforníu þar sem faðir hans vann við matreiðslu.
Mikael var í grunnskóla í Kaliforníu, flutti heim árið 1989 og lauk
grunnskólanámi hér heima. Þá fór hann að vinna fyrir sér: „Ég mátti
ekkert vera að því að læra meira, fór því strax að vinna, sinnti ýmsum
verkamannastörfum, var síðan við lagerstörf, verslunarstörf, sinnti
verkstjórn og vann við ferðaþjónustu um nokkurt skeið, bæði fyrir Ís-
lendinga og erlenda ferðamenn. Auk þess vann ég við ferðaþjónustu
fatlaðra um skeið.“
En síðan fórstu að vinna við tónleika, viðburðahald og kvik-
myndgerð og hefur fyrst og fremst sinnt störfum tengdum slíkum
verkefnum?
„Já. Það er engin tilviljun að ég hef sótt í slík verkefni. Þau eru af-
skaplega spennandi og skemmtileg. Ég er hvorki tökumaður, klipp-
ari, hljómaður, leikari né leikstjóri, söngvari né tónlistarmaður. En
það koma fleiri að kvikmyndagerð og tónleikum en þessir aðilar. Við
kvikmyndagerð og tónleika þarf góða reddara sem eru fljótir að
hugsa, finna raunhæfar lausnir á ófyrirséðum vandamálum sem upp
koma, leigja, kaupa eða útvega á annan hátt ýmiskonar búnað og
koma honum á staðinn sem allra fyrst. Þetta hafa verið mín verkefni
og það er afskaplega gaman að geta leyst vanda á einfaldan hátt.“
Hjónin Mikkó og Íris Mjög nálægt því hér að vera kominn í hlutverk.
Allsherjarreddarinn
Mikael Jón Jónsson er fertugur í dag
B
jarni Reynarsson fædd-
ist í Reykjavík 5.1.
1948: „Ég á góðar
minningar frá æsku
minni í Reykjavík upp
úr miðri síðustu öld. Við eldri systk-
inin fórum öll í sveit á sumrin til
móðurbræðra okkar í Strandasýslu.
Um fermingaraldur fór ég í sveit í
Borgarfjörð að Eskiholti og Brenni-
stöðum. Sveitadvölin var mér góð
lífsreynsla.
Á mínum yngri árum stundaði ég
svo frjálsar íþróttir hjá KR og körfu-
bolta hjá KFR í íþróttahúsinu að
Hálogalandi.“
Bjarni var í Ísaksskóla, Laug-
arnesskóla, lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands og síðan stúd-
entsprófi þaðan og lauk BSc-prófi í
landfræði frá HÍ vorið 1973. Árið
1974 fékk Bjarni Fulbrightstyrk til
náms í Bandaríkjunum og nam land-
fræði og skipulagsfræði við Illinois
háskólann. Þaðan lauk hann dokt-
orsprófi 1980.
Bjarni Reynarsson, land- og skipulagsfræðingur – 70 ára
Vetrarmynd af fjölskyldunni Bjarni og Jóhanna heima á verönd með börnum, tengdabörnum og barnabörnunum.
Lífið hefur leikið við mig
Hjónin Bjarni og Jóhanna hafa ferðast víða. Hér eru þau á Azoreyjum, 2016.
Reykjavík Sara Dögg Ma-
ier fæddist á fæðing-
ardeild Landspítalanns 6.
júní 2017 kl. 4.20. Hún vó
3.556 g og var 52 cm að
lengd.
Foreldrar Söru Daggar
eru Rebekka Júlía Magn-
úsdóttir og Óskar Jósef
Maier en stóra systir
hennar heitir Eva Lilja
Maier.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is