Morgunblaðið - 05.01.2018, Page 37

Morgunblaðið - 05.01.2018, Page 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stundum verður bara að kýla á hlutina en ekki bíða þess að þeirra tími sé kominn. Mundu að þú getur ekki vænst þess að aðrir sýni þér örlæti nema þú gerir það sama. 20. apríl - 20. maí  Naut Smáfólkið í kringum þig krefst þess hugsanlega að þú segir sannleikann um ótilgreint efni í dag. Reynið að koma auga á gráu tóna lífsins. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú munt að öllum líkindum fá nýja innsýn í hlutina í dag. Nú ættir þú að láta til skarar skríða og sækja það mál sem þig hefur lengi langað til þess að leiða til lykta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samræður við maka og nána vini eru í alvarlegri kantinum um þessar mund- ir, en á sama tíma innihaldsríkar og hag- nýtar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Margir munu leita ráða hjá þér. Sýndu þolinmæði fram eftir degi og gerðu ráð fyr- ir einhverju óvæntu í eftirmiðdaginn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að koma lagi á fjármálin og þarft því að beita þig aga og sleppa öllu sem kallar á óþarfa eyðslu. Ef þú vilt frið, skaltu biðja um hann hreint út. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú færð tækifæri til þess að hafa áhrif á eða vingast við erfiða manneskju áttu að grípa tækifærið og hafa hraðan á. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Viðureignin hefur margar lotur og stigin eru ekki talin fyrr en bjallan glym- ur í síðasta sinn. Vertu kátur, en jafnframt lítillátur svo aðrir óttist þig ekki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er mikil orka í loftinu í dag sem bæði getur nýst til góðs og ills. Gerðu ekki lítið úr málflutningi þeirra sem nálgast viðfangsefnin úr annarri átt en þú. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hver sem er getur sameinað fólk ef tilgangurinn er mikilvægur. Við- fangsefni sem eru þess virði að taka að sér einkennast bæði af jákvæðri og neikvæðri orku. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er vert að gefa gaum hug- myndum um hvernig þú getur aukið tekjur þínar. Dagurinn í dag færir þér ábyggilega gæfu, nýttu tækifæri sem gefast. 19. feb. - 20. mars Fiskar Misskilningur í samskiptum við vin er afar sennilegur núna. Vinna þín batnar örugglega á árinu, hafðu það bak við eyr- að. Víkverji er orðinn nægilega verald-arvanur til að átta sig á því að út- sölur eru víða í boði í janúar. Er það jafn meitlað í stein og að fulltrúar Svía í Eurovision þurfi að tjá sig með söng í mótvindi. x x x Þær geta nú verið misáhugaverðarþessar útsölur, að mati Víkverja, en nú virðist hins vegar hafa verið sett í gang útsala sem bragð er að. Ljós við enda ganganna í skammdeg- inu. Jólabjór mun nú vera á lækkuðu verði í ríkiseinokunarversluninni. Megi þeir sem að því standa njóta allrar mögulegrar blessunar himna- feðganna. x x x Víkverji er ekki vísindamaður entelur hæpið að hægt sé að kom- ast óbrjálaður í gegnum íslenska vet- urinn án þess að neyta áfengis. Er því óvitlaust að kaupa jólabjór á verði sem er nær verði sem talist getur eðlilegt. Þegar maður hefur verið í Tékklandi, og drukkið þær gæðabjór fyrir 200 krónur íslenskar, þá þykir manni „tekjuöflun“ ríkisins og „neyslustýringarskattar“ lítt sjarm- erandi fyrirbæri. x x x Undir áhrifum jólabjórs gæti Vík-verji átt auðveldara með að skilja eina helstu frétt internetsins í gær en þar var fjallað um limhvíttun í Tælandi. Var fullyrt að hundrað karl- menn sæki læknasetur í Bangkok í hverjum mánuði í þessum tilgangi. x x x Víkverji skildi ekki almennilega til-ganginn með þessu enda blá- edrú. Sendi hann fréttina á kunn- ingja sína með hjálp tölvukerfis heimsins. Kunningi sagðist vera al- veg „bærilega limhvítur“ og gæti frekar hugsað sér brúnku. x x x Annar kunningi svaraði því til aðhann hefði bara ekkert velt fyrir sér „litasamsetningunni“ hjá starfs- manninum á neðri hæðinni. Þessa óvísindalega könnun bendir til þess að þetta nýja „æði“ sé fjarri Íslands- ströndum enn sem komið er. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér getur ekki verið lærisveinn minn.“ (Lúkasarguðspjall 14:27) Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira en bara ódýrt! VIAIR Loftdælur, Mikið úrval Tjakkur 2.25T Viðgerðar- kollur, hækkanlegur Mössunarvél Viðgerðarbretti Loftpressa 180L/24L kútur Multitoppur 9-21mm frá 7.495 frá 14.995 4.995 19.9952.485 17.995 7.495 Hleðslutæki í miklu úrvali 6/12/24V. Bílagorma- klemmur 6Amp 4.995 frá 4.995 Sigurður Aðalsteinsson hrein-dýraskytta sendi mér svolát- andi tölvupóst: „Í tilefni umræðu um launahækkun biskups, aðkomu verklýðsleiðtoga þar að er köstuðu grjóti að biskupi úr glerhúsi, skein- andi utan í #metoo byltingunni og þeim er reyndu að taka niður um biskup á allan hátt! – Flaug mér þetta um huga: Lækkun á laununum biður um, líklega skapist þá friður um. Barnaleg trú, þar birtist #metoo! Er biskupinn tekur hann niður um.“ Pétur Stefánsson yrkir þetta skemmtilega ljóð, Hrafnaþing, á Boðnarmiði: Hringsóla hrafnar hátt yfir sveitum. Haukfránum glyrnum grandskoða landið. Leitandi hræja, lamba og fugla. Svífa þar svangar, svifléttar krákur. Lítið er æti, ekkert að hafa. Hvorki sést maður né mús á kreiki. Líflaust og freðið er land fyrir sjónum. Annað skal leita ljúffengra rétta. Krunka nú krummar, kvaldir af hungri. Holdlitlir fljúga til höfuðborgar. Angan af rusli ilmar í lofti. Senn munu hrafnar setjast að veislu. Gósenland heilsar glorsoltnum fuglum sem stefnu taka til stórborgarinnar. Pylsur í brauði, pizzur og kjúllar. Vænn er sá staður til vetrarsetu. Ingólfur Ómar Ármannsson fann þessa stöku í vísnabing sínum: Nú er úti norðanátt nístingskaldi stinnur. Krummi soltinn krunkar hátt hvergi æti finnur. Þannig er staðan hjá Ármanni Þorgrímssyni í byrjun árs: Lífið vosbúð orðið er ekki brosi lengur illa trosið í mig fer en allvel losun gengur. halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Metoo, hrafnaþing og norðanátt GRÁGLETTIÐ VAR ORÐIÐ GRÁTBROSLEGT Á ÖRSKOTSSTUNDU „ÞÚ ÁTT AÐ NUDDA ÞESSU Á HÖFUÐIÐ, EKKI DREKKA ÞAГ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna hina einu sönnu Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GAMLI NÓI, GAMLI NÓI, LEIKUR PÍPUR Á… ÉG ER SYFJAÐUR! JÁ ,HERRA! ÞAÐ MÁ VERA AÐ ÉG HAFI LAGT MIG MEIRA FRAM ÞAÐ ERU ENGIN STÖRF LAUS Æ, ÞETTA ER VÍST FJÖRUKRÁIN HÁR- ÁBURÐUR HÁR- ÁBURÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.