Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég var rosalega ánægð með við-
tökurnar, það er alltaf erfiðast að
sýna í heimalandi sínu, ég er bara
alveg í skýjunum,“ segir Ása
Helga Hjörleifsdóttir um frum-
sýninguna á fyrstu kvikmynd
hennar í fullri lengd, Svaninum,
sem fram fór í Háskólabíói í
fyrrakvöld en almennar sýningar
á myndinni hefjast í dag.
Kvikmyndin var heimsfrumsýnd
á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Toronto í september í fyrra við
góðar viðtökur og hefur þegar
verið sýnd á fjölda hátíða. „Hún
er búin að ferðast milli mjög
margra kvikmyndahátíða og hefur
hlotið tvenn verðlaun, annars veg-
ar fyrir bestu leikstjórn á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Kolkata á Indlandi og hins vegar
sem besta kvikmyndin á kvik-
myndahátíðinni í Kaíró í Egypta-
landi. Hún mun svo fara víðar á
þessu ári,“ segir Ása.
– Þessar tvær hátíðir sem þú
nefnir eru ansi langt frá okkur
hérna á Íslandi. Er ekkert erf-
iðara að koma kvikmyndum inn á
slíkar hátíðir?
„Maður hefði kannski haldið
það en mér finnst þetta sýna
manni að þessar mannlegu tilfinn-
ingar sem sagan byggir á ferðast
og fólk þekkir þær þó þær tilheyri
allt öðrum menningarheimi,“ svar-
ar Ása. Saga úr íslenskri sveit
geti því allt eins höfðað til fólks á
Indlandi eins og Íslendinga.
Dregst inn í óvænta
atburðarás
Ása skrifaði handrit kvikmynd-
arinnar upp úr samnefndri skáld-
sögu Guðbergs Bergssonar frá
árinu 1991 sem segir af níu ára
stúlku, Sól, sem send er í sveit til
frænku sinnar til að bæta fyrir
brot sitt eftir að hafa verið staðin
að búðahnupli. Í fyrstu er hún
einmana og niðurbrotin en kynnist
svo betur fólkinu á bænum og
lærir að meta bæði dýr og nátt-
úru. Sól þroskast mikið á meðan á
dvöl sinni stendur og verður
óvænt þátttakandi í dramatískri
atburðarás á heimilinu, fylgist
með ástum og átökum hinna full-
orðnu og oft grimmdarlegri hegð-
un þeirra og verður hugfangin af
vinnumanni sem hún þarf að deila
með herbergi.
Hóf skrifin í Columbia
Ein átta ár eru liðin frá því að
Ása hóf að vinna að handriti kvik-
myndarinnar en þá var hún í námi
í Columbia-háskóla í New York.
Hún segir margt hafa gerst síðan
og að hún hafi unnið að öðrum
verkefnum en hugmyndin að kvik-
myndinni hafi kviknað veturinn
2009-10. Þá fékk hún það verkefni
í skólanum að vinna handrit eftir
skáldsögu.
„Ég vann heilmikið að henni í
náminu og undir lok þess þurfti ég
að útbúa möppu til að geta útskrif-
ast, möppu með stuttmyndum sem
ég leikstýrði og svo tilbúnum
handritum. Svanurinn var eitt af
þessum handritum sem ég vann
mikið í og fékk leiðsögn kennara
við skrifin. En framleiðsla mynd-
arinnar fór ekki á fullt skrið fyrr
en í byrjun 2014, þá komst verk-
efnið inn á meðframleiðslumarkað
á kvikmyndahátíðinni í Berlín og
líka á International Jerusalem
Film Lab sem er vinnusmiðja sem
12 alþjóðleg verkefni voru valin á.
Þar var ég að vinna með mjög
reyndum handritsráðgjafa og sama
ár fengum við líka vilyrði fyrir
framleiðslustyrk frá Kvikmynda-
sjóði Íslands,“ segir Ása.
Spennandi, flókið og fljótandi
– Hvað var það sem heillaði þig
við Svaninn þegar þú last bókina í
fyrsta sinn?
„Það var margt. Mér fannst frá-
sagnaraðferðin svo rosalega mynd-
ræn,“ svarar Ása. „Guðbergur not-
ar myndræn element til að tjá
tilfinningar og einhverja miklu
stærri sögu.“
– Í anda töfraraunsæisins?
„Já, algjörlega. Svo fannst mér
persónurnar í bókinni svo marg-
laga, þær eru ekki bara eitthvað
eitt heldur er tilfinningalíf þeirra
svo spennandi, flókið og fljótandi á
einhvern hátt ... mig langaði strax
að takast á við það í kvikmynd.“
Að vera manneskja
– Hver myndir þú segja að væri
kjarni sögunnar? Hvað er Guð-
bergur að skrifa um þegar
skyggnst er undir yfirborðið?
„Um það að vera manneskja,“
svarar Ása án umhugsunar.
„Stelpan í bókinni er níu ára og ég
held að ég hafi verið svipað gömul
þegar ég byrjaði að átta mig á því
að æskan væri að líða undir lok og
maður er dálítið nostalgískur
gagnvart henni. Maður er að byrja
að sjá hvernig líf fullorðinna er og
máta sig við það og það er ótrú-
lega mikill sársauki en líka gleði
og einhvers konar endurfæðing.“
– Það eru miklar andstæður í
kvikmyndinni, mikil fegurð á móti
miklum ljótleika og grimmd?
„Einmitt, það er líka eitt af því
sem sagan fjallar um, stelpan er
að kynnast þessum tveimur hliðum
tilvistarinnar. Fegurðin og
grimmdin eða ljótleikinn eru ein-
hvern veginn samofin.“
Urðu vinkonur
– Aðalleikkonan, Gríma Vals-
dóttir, stendur sig frábærlega í
myndinni og er nánast í hverju
einasta atriði. Þurftir þú að æfa
mikið með henni áður en kom að
tökum?
„Við höfðum gert stuttmynd
saman sem var góður grunnur að
okkar samstarfi en jú, við æfðum
slatta og fórum yfir allar senurnar
og þá sérstaklega þær flóknu, milli
hennar og vinnumannsins. Við
æfðum þær mikið og ég vildi passa
upp á að hún væri örugg og kviði
ekki fyrir neinu,“ svarar Ása. „Við
urðum líka vinkonur og fórum til
dæmis á reiðnámskeið saman fyrir
myndina því hún þurfti að sitja
hest vel í henni. Fyrir utan æfing-
arnar gáfum við okkur tíma í að
vera bara saman og spjalla um hitt
og þetta. Þannig myndaðist traust
á milli okkar sem var ekki síður
mikilvægt en æfingarnar og þess
vegna var ekkert af þessu óyf-
irstíganlegt.“
Svanurinn verður sýndur á
fjölda kvikmyndahátíða fram á vor
og því mikil ferðalög framundan
hjá Ásu.
Náttúrufegurð Svanurinn var að mestu tekinn upp í Svarfaðardal. Hér sést Sól mæta með rútu í sveitina en eftir
henni bíður Karl, leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni, bóndinn á bænum sem hún þarf að dvelja á sumarlangt.
Grimmdin og feg-
urðin ofin saman
Myndræn frásögn Guðbergs heillaði leikstjóra Svansins
Morgunblaðið/Hanna
Vinkonur Ása og Gríma á hátíð-
arfrumsýningu Svansins í fyrradag.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Fös 23/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas.
Sun 7/1 kl. 20:00 55. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s
Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s
Síðustu sýningar leikársins!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s
Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s
Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Medea (Nýja sviðið)
Lau 13/1 kl. 20:00 Frum Þri 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 5. s
Sun 14/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 4. s Mið 24/1 kl. 20:00 6. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 5/1 kl. 20:00 aukas. Fös 12/1 kl. 20:00 aukas. Fim 18/1 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/1 kl. 20:00 aukas. Lau 13/1 kl. 20:00 aukas. Fös 19/1 kl. 20:00 aukas.
Draumur um eilífa ást
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 7/1 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas.
Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas.
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 6/1 kl. 13:00 Frums. Lau 13/1 kl. 13:00 3. s Lau 20/1 kl. 13:00 5. s
Sun 7/1 kl. 13:00 2. s Sun 14/1 kl. 13:00 4. s Sun 21/1 kl. 13:00 6. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 7/1 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00
Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 6/1 kl. 19:30 Auka Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka
Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Hafið (Stóra sviðið)
Fös 5/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn
Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 6/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn
Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 5/1 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30 Fös 26/1 kl. 20:00
Fös 5/1 kl. 22:30 Sun 14/1 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 22:30
Lau 6/1 kl. 20:00 Fös 19/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 20:00
Lau 6/1 kl. 22:30 Fös 19/1 kl. 22:30 Lau 27/1 kl. 22:30
Fim 11/1 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 20:00 Fim 1/2 kl. 20:00
Fös 12/1 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 22:30 Fös 2/2 kl. 20:00
Fös 12/1 kl. 22:30 Sun 21/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00
Lau 13/1 kl. 20:00 Fim 25/1 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Efi (Kassinn)
Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 Auka
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 7/1 kl. 15:00 Frums Lau 20/1 kl. 15:00 3.sýn
Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 4.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Atvinna