Morgunblaðið - 05.01.2018, Page 44

Morgunblaðið - 05.01.2018, Page 44
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Nafn mannsins sem lést 2. Typpahvíttun nýjasta æðið 3. Farþegi handtekinn í Los … 4. Gjaldtöku í göngunum hætt »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í nýju tölublaði óperutímaritsins Opera Now birtist afar lofsamleg gagnrýni Neil Jones um uppfærslu Ís- lensku óperunnar á Toscu í vetur en hann gefur bæði tónlistarflutn- ingnum og sviðsetningunni fimm stjörnur. „Þessi jákvæða umfjöllun er okkur mikils virði því hún staðfestir að okk- ar óperusýningar standast fyllilega alþjóðlegan samanburð,“ segir í til- kynningu frá Íslensku óperunni. Í rýn- inni segir að svið Eldborgarsalarins sé ekki hannað fyrir uppfærslu sem þessa en sviðsmyndin hafi engu að síður verið svo glæsileg að hún hefði varla verið betri á sérhönnuðu óp- erusviði. Söngvararnir fá mikið lof en einkum Claire Rutter; frammistaða hennar ein er sögð hafa verið ferðar til Íslands virði. Þá er hljómsveitin sögð hafa leikið stórkostlega vel. Tosca fær fimm stjörnur í Opera Now  Á þriðja tug handrita barst í sam- keppni um Svartfuglinn, ný glæpa- sagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðar- dóttir og Ragnar Jónasson hafa stofnað til í samvinnu við útgefand- ann Veröld. Verðlaunin verða afhent í fyrsta sinn í apríl, fyrir handrit að áð- ur óbirtri glæpasögu sem Veröld gef- ur þá út. Þá býðst þeim sem hlýtur Svartfuglinn samningur við virtan breskan umboðsmann rithöfunda. Markmiðið með verð- laununum er að hvetja höfunda til að spreyta sig á forminu, greiða leið til útgáfu og stuðla að því að fleiri skrifi á íslenskri tungu. Á þriðja tug handrita í glæpasagnakeppni Á laugardag Vestlæg átt, 10-18 m/s, hvassast á annesjum N-til og víða snjókoma, en slydda við SV-ströndina. Lægir heldur og rofar til um kvöldið. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust allra syðst. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum, en dálítil él úti við N- og A-ströndina. Gengur í sunnan 10-18 m/s og fer að snjóa V-lands seint í kvöld, hvassast á annesjum. Frost 0 til 14 stig. VEÐUR KR og ÍR eru jöfn að stigum á toppi Dominos-deildar karla í körfuknattleik eftir leiki gærkvöldsins en þá fóru fram fjórir leikir í 12. umferð. KR vann Njarðvík suður með sjó og ÍR lagði Tindastól í miklum slag í Breiðholtinu, enda tvö af toppliðunum þar á ferð. Keflavík vann mjög nauman sigur á Val en Stjarnan fór létt með Hött. 2-3 KR og ÍR eru jöfn á toppnum „Ég var bara allt í einu með fullt af skilaboðum í símanum og vissi ekk- ert hvað var í gangi. Ég er mjög ánægð, og bara mjög spennt, enda hef ég stefnt á þetta lengi,“ segir hin 17 ára gamla Guðný Árna- dóttir sem í gær var í fyrsta sinn valin í ís- lenska landsliðið í knatt- spyrnu. Hún getur orðið fyrst FH-inga til að spila A- landsleik kvenna frá árinu 1981. »4 Allt í einu með fullt af skilaboðum í símanum Teitur Örn Einarsson, handknattleiks- maður á Selfossi og liðsmaður B- landsliðs Íslands, hefur tilboð frá sænsku meisturunum Kristianstad undir höndum. Teitur Örn æfði með Kristianstad fyrir jólin og gæti orðið fjórði Íslendingurinn í herbúðum liðs- ins á næsta keppnistímabili ef samn- ingar nást. Tetur er markahæstur í Olísdeildinni á leiktíðinni. »1 Er með tilboð frá sænsku meisturunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Að vera með leiðsöguhund er frelsi,“ segir Lilja Sveinsdóttir, for- maður leiðsöguhundadeildar Blindrafélagsins. Lilja fékk sinn fyrsta leiðsöguhund, tíkina Asitu, ár- ið 2008 en fyrir þremur árum settist Asita í helgan stein og þá fékk Lilja rakkann Oliver. Hún segir hundana hafa breytt lífi sínu. „Það fylgir mikið frelsi því að vera með leiðsöguhund. Frelsi til að geta farið í strætó og ferðast um eða að fara ein út í búð. Ég geng líka hraðar með hund en bara með staf og þá fæ ég almennilega hreyfingu," segir Lilja. „Ég þarf að treysta á hundinn. Þegar ég fer út að labba hverfa oft kennileitin og ég sé ekkert í myrkri en hundurinn stoppar alltaf á gatna- mótum. Maður þarf samt alltaf að hafa bæði stafinn og hundinn, þeir tveir vinna vel saman. Núna þegar það er snjór yfir hverfa allar gang- stéttabrúnir en Oliver stoppar við kanta og gætir þess að ég gangi ekki út af. Ef það er skurður eða ein- hverjar breytingar á umhverfinu, t.d trjágreinar sem slúta yfir göngustíg- inn, þá taka hundarnir sveig framhjá greininni eða öðru sem er á göngu- leiðinni. Leiðsöguhundar eru þjálf- aðir til að vera 2 metrar á hæð og 1,5 m á breidd, að það sé pláss fyrir þá og manneskju við hlið þeirra. Hund- urinn er alltaf vinstra megin við mig og ég held í beislið á ákveðinn máta og líka með tauminn á milli fingr- anna.“ Smullu saman Fimm leiðsöguhundar eru nú hér á landi, þrír þeirra eru fæddir og þjálfaðir á Íslandi en tveir, m.a. Oliver, komu frá Svíþjóð fyrir þremur árum síðan. Leið- söguhundarnir hafa mest verið sjö hér á landi, langflestir Labradorar en líka Golden retriever. Lilja segir Schae- fer-hunda og Kónga-poodle einnig hafa verið þjálfaða sem leiðsögu- hunda erlendis. „Það geta ekki allir hundar orðið leiðsöguhundar. Það er byrjað að þjálfa þá sem hvolpa og kannski af tíu hunda hópi enda að- eins þrír sem leiðsöguhundar. Það er stundum talað um að leiðsöguhundar séu rjóminn af rjómanum því ef þeir standast ekki leiðsöguhundaprófið þá fara þeir til björgunarsveitanna eða lögreglunnar, a.m.k erlendis.“ Lilja segir góða leiðsöguhunda þurfa að vera með gott innsæi. Þá séu hundar valdir með það í huga að skapgerð þeirra og manneskjunnar passi saman. „Ég var skoðuð fyrst og hundurinn valinn í kjölfarið og það small í bæði skiptin hjá mér.“ Leiðsöguhundur veitir frelsi  Fimm leiðsögu- hundar eru starf- andi hér á landi Morgunblaðið/Hari Félagar Lilja Sveinsdóttir segir Oliver vera mikilvægan hluta af lífi sínu, hann veiti henni frelsi til að ferðast og þá sé hann líka skemmtilegur félagsskapur. Lilja er formaður leiðsöguhundadeildar Blindrafélagsins. Lilja segir skemmtilegast við Oli- ver hvað hann er fjörugur. „Þegar leiðsöguhundur er í vinnubeislinu er hann í vinnunni og má hvorki klappa honum né trufla á annan hátt. Þegar beislið er tekið af honum er hann eins og hver annar hundur," segir Lilja og það er eins og Oliver viti að verið er að tala um hann því hann sperrir sig allan og dillar rófunni. Lilja tekur af honum beislið og þá breytist ásjóna hans strax, hann fer úr því að vera yfirvegaður og hljóður við hlið eiganda síns í að heilsa upp á fólk. Lilju hefur einu sinni verið vikið út af veitingastað með leið- söguhund. „Ég fór þá á annan og spurði hvort ég mætti koma inn með hundinn og þá sagði starfs- maðurinn; „Ekki fer ég að taka af þér hjólastólinn“. Ég hafði aldrei litið á hann í því samhengi, því að sjálfsögðu er hann hjólastóllinn minn, hann er augun mín." „Hann er augun mín“ MÁ EKKI TRUFLA LEIÐSÖGUHUND Í VINNUNNI Oliver

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.